Fréttatíminn - 29.01.2016, Blaðsíða 42
Unnið í samstarfi við
Icecare
Bio Kult gerlarnir hjálpa til við að
viðhalda náttúrulegri bakteríuflóru
líkamans. Gerlarnir koma í hylkja-
formi og eru fáanlegir í tvenns
konar útgáfum, Bio-Kult Original
og Bio-Kult Candéa. Bio-Kult
Candéa hylkin innihalda hvítlauk
og greipfræ og geta virkað sem
öflug vörn gegn candida-sveppa-
sýkingu en hún getur komið fram
með ólíkum hætti hjá fólki, til
dæmis sem munnangur, fæðuóþol,
pirringur og skapsveiflur, þreyta,
brjóstsviði, verkir í liðum, mígreni
eða ýmis húðvandamál.
Laus við sveppasýkingar
„Ég er alveg tilbúin að gefa Bio-
Kult Candéa mín meðmæli, ég hef
notað það síðastliðin tvö ár og
finn mikinn mun á heilsunni. Ég
er ein af þeim sem þarf að nota
talsvert af meðuum og fékk oft
sveppasýkingu ef ég þurfti að taka
penisilín, en það hefur ekki gerst
síðan ég byrjaði að taka Bio-Kult,“
segir Svala Guðmundsdóttir. Til að
byrja með tók hún inn tvö hylki á
dag en í dag tekur hún eitt hylki á
dag og dugir það vel. „Áður en ég
fór að taka inn Bio-Kult Candéa var
ég alltaf þreytt og hafði mjög lítið
úthald, en eftir að hafa tekið inn
hylkin í um það bil mánuð fann ég
mikinn mun á mér og síðan hef ég
tekið það með smá hléum en um
leið og ég fer að verða þreklítil þá
tek ég það aftur.“ Svala hafði litla
trú á Bio-Kult í byrjun, en hefur nú
sannreynt að þetta virkar.
Bio-Kult er fáanlegt í öllum
apótekum, heilsuverslunum og
heilsuhillum stórmarkaða. Nánari
upplýsingar má nálgast á www.
icecare.is.
Kynningar | Heilsa
Á undanförnum áratug eða
svo hafa komið fjölmörg
matvæli á markað víða
erlendis undir vöruheitinu
Benecol. Benecol er skrá-
sett vörumerki fyrir vörur
sem innihalda ákveðna gerð
plöntustanólesters, en rann-
sóknir hafa sýnt að hann
hefur áhrif til lækkunar kólesteróls
í blóði. Mikilvægt er að halda kól-
esterólgildum innan eðlilegra marka
því of hátt kólesteról í blóði er einn
helsti þáttur kransæðasjúkdóma og
æskilegt að heildarkólesteról í blóði
sé undir 5 mmól/l þar sem allt yfir 6
mmól/l telst hátt.
Algengi of hás kólesteróls eykst með
aldri og hér á landi hafa rétt tæp-
lega 40% karla á aldrinum 40-50
ára og kvenna á aldrinum 50-60 ára
kólesterólgildi yfir 6mmól/l og því er
mikilvægt að þeir sem komnir eru á
fullorðinsár láti fylgjast með blóð-
fitunni hjá sér.
Heilnæmur drykkur sem hefur áhrif
Benecol er náttúrulegur mjólkur-
drykkur sem ætlaður er þeim
sem vilja lækka kólesteról í blóði.
Drykkurinn frá MS er sýrð undan-
renna sem inni-
heldur 5% plöntustanólester
og hentar vel í baráttunni gegn
kólesteróli sem hluti af fjölbreyttu
mataræði. Allra nýjustu niðurstöður
hafa sýnt fram á að mun betri
árangur næst sé Benecols neytt með
eða strax eftir máltíð en ef þess er
neytt á fastandi maga. Því er mælt
með að neyta Benecols í kringum
einhverjar af máltíðum dagsins.
Rannsóknir staðfesta
virkni Benecols
Fjölmargar rannsóknir hafa verið
gerðar á áhrifum plöntustanólesters,
hinu virka efni í Benecol, á kólester-
óli í blóði. Niðurstöður eru einróma
á þá leið að neysla á honum lækkar
blóðkólesteról þar sem efnið hindrar
upptöku á því úr fæðu í þörmum
og kemur lækkunin yfirleitt
fram nokkrum vikum eftir
að neysla hefst og er allt
að 15% að meðaltali þó
engar aðrar ráðstafanir
séu gerðar. Lækkunin er
einkum í heildarkólesteróli
og hinu svokallaða „vonda
kólesteróli“ (LDL), en
engar breytingar verða í
„góða kólesterólinu“ (HDL).
Rannsóknir hafa einnig sýnt
að mikilvægt er að neyta
vörunnar reglulega til að
árangurinn haldist og sé neyslu
hætt, fer kólesterólgildi aftur í
fyrra horf.
Mataræði og kólesteról
Mataræði er meðal þeirra þátta sem
helst hafa áhrif á magn kólesteróls
í blóði. Meðal þess sem ráðlagt er
til að lækka kólesteról er að stilla
fituneyslu í hóf, velja frekar mjúka
fitu en harða og neyta grænmetis,
ávaxta og grófs kornmetis í ríkum
mæli. Benecol mjólkurdrykkur er
því góð viðbót við hollt mataræði til
að halda kólesteróli innan eðlilegra
marka og ein flaska á dag dugar til
að ná hámarksvirkni. Drykkurinn er
seldur í kippum sem innihalda sex
65 ml flöskur, en um þessar mundir
er varan á tilboði og fást átta flöskur
á verði sex.
Taktu Benecol daglega og
haltu kólesterólinu í skefjum
Unnið í samstarfi
við MS
Aukið þrek með Bio-Kult
Bio-Kult Original og Bio-Kult Candéa innihalda öfluga blöndu vinveittra gerla
sem styrkja þarmaflóruna.
„Áður en ég fór að
taka inn Bio-Kult
Candéa var ég alltaf
þreytt og hafði mjög
lítið úthald, en eftir að
hafa tekið inn hylkin
í um það bil mánuð
fann ég mikinn mun á
mér,“ segir Svala Guð-
mundsdóttir.
Mynd | Hari.
Bio-Kult Original
n Inniheldur blöndu af vinveittum
gerlum sem styrkja þarmaflóruna.
n Þarf ekki að geyma í kæli.
n Hentar vel fyrir alla, einnig
fyrir barnshafandi konur, mjólkandi
mæður, sem og börn.
n Fólk með mjólkur- og sojaóþol má
nota Bio-Kult.
n Mælt er með Bio-Kult í bókinni
Meltingarvegurinn og geðheilsa eftir
Dr. Natasha Campbell-McBride.
Bio-Kult Candéa
n Inniheldur blöndu af vinveittum
gerlum ásamt hvítlauk og Grape
Seed Extract.
n Öflug vörn gegn Candida sveppa-
sýkingu í meltingarvegi kvenna og
karla.
n Öflug vörn gegn sveppasýkingu á
viðkvæmum svæðum hjá konum.
n Hentar vel fyrir alla, einnig
fyrir barnshafandi konur, mjólkandi
mæður, sem og börn.
n Fólk með mjólkur- og sojaóþol má
nota Bio-Kult.
n Mælt er með að taka 2 hylki á dag.
Bio-Kult Original og Bio-Kult
Candéa innihalda öfluga blöndu
vinveittra gerla sem styrkja
þarmaflóruna.
AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANS
S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
Inniheldurplöntustanólester
sem lækkar kólesteról
MEÐ
PLÖNTUSTANÓLESTER
Í NÆRINGU
EIN
AF
10
STÆ
RSTU UPPGÖTVUNUM
Kólesteról er áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma
2 fylgja fríttmeð ms.is/benecol
FYRIR OKKUR
TILBOÐ
3 fyrir 2 Heilsupakkinn inniheldur vítamín og bætiefni, sérvalin fyrir íslenskar aðstæður. Fyrir okkur öll.
Kynntu þér úrvalið á gulimidinn.is
Stíf dagskrá á
Reykjavíkur-
leikunum
Reykjavíkurleikarnir eru nú haldnir
í níunda sinn. Keppt verður í fjölda
greina um helgina.
Áhugafólk um íþróttir hefur úr nægu að
velja á Reykjavíkurleikunum um helgina.
Í kvöld, föstudagskvöld, verður keppt í hjól-
reiðaspretti á Skólavörðustíg, klukkan 19. Byrjað
er neðst á Skólavörðustíg og hjólað upp að gatna-
mótum við Bergstaðastræti. Hverskonar reiðhjól
eru leyfð og keppa tveir og tveir í einvígi.
Á laugardag og sunnudag verður keppt í dansi
í Laugardalshöll og hefst keppni klukkan tíu
báða dagana. Stjörnuparið Hanna Rún og Ni-
kita Bazev verður á meðal keppenda ásamt
flestum af bestu danspörum landsins í
öllum aldursflokkum. Dagskrá má finna á
www.dsi.is.
Á laugardag verður keppt í borð-
tennis í TBR-húsinu og karate í frjáls-
íþróttasalnum í Laugardalshöll. Þá fer
keilukeppnin fram í Egilshöll.
Í frjálsíþróttasalnum í Laugardalshöll
verður keppt í kraftlyftingum, ólympískum
lyftingum, taekwondo og skylmingum.
Þá er keppt í skíðaíþróttum í Skálafelli og í Bláfjöll-
um á laugardag og sunnudag. Nánari upplýsingar um
dagskrá Reykjavíkurleikanna má finna á www.rig.is
Hanna Rún keppir á
Reykjavíkurleikunum
með Nikita Bazev.
42 | fréttatíminn | HeLGiN 29. JANúAR-31. JANúAR 2015