Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 29.01.2016, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 29.01.2016, Blaðsíða 40
Impostor Syndrome, eða loddaraheilkenni, er heiti yfir þá tilhneigingu fólks, sem nær miklum árangri, að taka ekki mark á eigin árangri og lifa í stöðugum ótta við að vera afhjúpað sem loddar- arnir sem því finnst það vera. Öll merki um eigin verðleika stimplar það sem ávöxt heppni eða þess að þú hafir gabbað aðra til að trúa því að það sé velgengninnar vert. Hljómar kunnuglega? Oft eru þeir sem finna fyrir loddaraheilkenni ein- mitt fólkið sem nær sem mestum árangri. Meðal þekktra einstaklinga sem þjáðst hafa af þessari rökvillu eru metsöluhöfundurinn Neil Gaiman og leikkonan Emma Watson. Ætli þeir sem við lítum upp til hér á landi kannist við þetta líka? María rut Kristinsdóttir er talskona Druslugöngunnar og fékk nýlega stöðu innan innanríkisráðuneytisins til að endurskoða verkferla þegar kemur að kynferðisabrotum. Hún hafði ekki heyrt um hugtakið áður en segir það eiga vel við sig. „Unn- usta mín hefur oft hlegið að mér þegar ég býsnast yfir því af hverju það sé verið að fá MIG í hitt og þetta, en ég held þetta sé líka ákveðið verkfæri til að halda sér á tánum og ofmetnast ekki. Ég þarf samt að venja mig á að gefa mér ekki alltaf afslátt og halda að það sé tilviljun þegar vel gengur, en ég held að þetta sé ekki af hinu slæma ef maður áttar sig á að tilfinningin er ekki raunveruleg.“ Ég held að þetta sé ekki af hinu slæma ef maður áttar sig á að tilfinningin er ekki raunveruleg. Þorsteinn B. FriðriKsson er forstjóri fyrirtækisins Plain Vanilla: „Auðvitað fer maður í gegnum tímabil þar sem fyrirtæki sem ég var með gengu ekki vel og þá fyllist maður hugsunum um hvort maður sé bara að gera einhverja vitleysu. Ég held samt að sú tilhneiging manna til að þakka allan árangur sjálfum sér en kenna utanað- komandi aðstæðum um þegar illa gengur, sé jafnvel verri. Árangur er alltaf sambland af vinnu, heppni, fólkinu sem vinnur með manni og svo framvegis. Svo það væru mistök ef ég eignaði mér sjálfum minn árangur. Í samfélaginu sem við búum í er fólk oft tilbúið að stimpla það sem heppni þegar ein- hverjum gengur vel, það er kannski þaðan sem þetta óöryggi kemur.“ Fólk [er] oft tilbúið að stimpla það sem heppni þegar einhverjum gengur vel. Loddarar Rannsóknir sýna að um 70% þjást af Imposter Syndrome. Fyrirmyndirnar eru líka óöruggar Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir salka@frettatiminn.is Margrét erla MaacK dagskrárgerðarkona: „Algjörlega, maður hefur tilhneig- ingu til að lesa ótrúlega mikið í gagnrýni en humma hrós- ið svo af sér. Svo er maður líka bara loddari í alvörunni á sumum sviðum og það getur oft bara hjálpað manni. Að skítamixa sig aðeins í gegnum hluti af og til hjálpar manni oft, ég hef alveg DJ-að þó ég kunni ekki öll trixin og farið í viðtöl á tungumáli sem ég kann ekki fullkomlega, en það er bara allt í lagi. Enginn er fullkominn í því sem hann gerir, þó maður eigi alltaf að gera 100% eftir sinni eigin getu. Það er svo mikilvægt að fatta að allir eru óöruggir að einhverju leyti. Besta leiðin til að ráða við það er að líta til baka á stöður sem maður fékk og fannst maður ekki eiga skilið. Þegar tíminn líður frá sé ég þær í réttu ljósi: Auðvitað réðu þau mig í þetta, af hverju fannst mér það eitthvað skrýtið?“ Að skítamixa sig aðeins í gegn- um hluti af og til hjálpar manni oft. Mynd | Hari Mynd | Hari unnsteinn Manuel steFánsson tónlistarmaður og þáttagerðarmaður, tengir strax við loddaraeinkennið: „Já, ég hef þjáðst af þessu. Þegar ég byrjaði að gera sjónvarpsþættina Hæpið gat ég varla sofið á næturnar, þetta var alveg hræðilegt. Ég var að vinna 10-12 tíma á dag en var samt aldrei sátt- ur við það sem kom út úr því. Svo komu þættirnir út og fólk hrósaði manni fyrir þá og þá fattaði ég að þetta hefðu verið aðeins of miklar áhyggjur. Ég held að flestir sem gera eitthvað skapandi takist á við þetta. Lykillinn er að hugsa ekki um hvað öðrum finnst þegar maður semur, heldur semja til að hafa gaman sjálfur. Af því ef þú miðar það sem þú gerir út frá öðrum ertu orðinn alvöru loddari, eins og þú óttaðist.“ Ég var að vinna 10–12 tíma á dag en var samt aldrei sáttur. Mynd | Hari 40 | FréttatíMinn | HELGIn 29. JAnúAr-31. JAnúAr 2015 Ævintýri Breka Yndisleg bók um mikilvægi þess að vera öðruvísi www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 Hvað ef ég skyldi nú ekki vera nógu góður til að komast í bók? Ný ísle nsk barnab ók
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.