Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 29.01.2016, Síða 43

Fréttatíminn - 29.01.2016, Síða 43
www.apotekarinn.is - lægra verð Fyrsta hjálp fyrir þurrar varir Decubal lips & dry spots balm: Nærandi og mýkjandi smyrsli með býflugnavaxi sem hjálpar til við enduruppbyggingu þurra vara, tættra naglabanda og þurra olnboga. Decubal er heil húðvörulína fyrir andlit og líkama. Í 40 ár höfum við þróað mildar og nærandi vörur fyrir þurra og viðkvæma húð, í nánu samstarfi við húðsjúkdómalækna. Decubal er algjörlega laust við ilmefni, litarefni og parabena og er eingöngu selt í apótekum. Án parabena, ilm- og litarefna. Búðu til þitt eigið granóla morgunkorn Uppskrift frá hinni vinsælu Nönnu Rögnvaldardóttur. Nanna Rögnvaldardóttir var að senda frá sér nýja matreiðslubók, Létt og litríkt. Þar er meðal annars að finna þessa skemmtilegu gran- ólablöndu. „Í staðinn fyrir sykur eða síróp nota ég þeyttar eggjahvítur til að blandan verði stökk. Hægt er að nota alls konar fræ, hnetur og fleira í granólablönduna,“ segir Nanna. „Hitaðu ofninn í 160°C. Blandaðu saman í skál hafragrjónum, fræjum, hnetum og kryddi. Hristu saman ólífuolíu og vanillu, helltu yfir og blandaðu vel. Stífþeyttu að lokum eggjahvíturnar og blandaðu þeim saman við með sleikju. Dreifðu blöndunni jafnt á papp- írsklædda bökunarplötu og ristaðu hana í miðjum ofni í um 25 mín- útur, eða þar til hún er gullinbrún og stökk. Hrærðu einu sinni eða tvisvar á með- an – ég geri það einfald- lega með því að lyfta brúnunum á pappírn- um, hvolfa öllu inn að miðju og dreifa svo úr því aftur. Láttu svo blönduna kólna, settu hana í krukku og geymdu.“ 500 g af granólablöndu 250 g grófvölsuð hafragrjón 50 g sólblómafræ 30 g graskersfræ 50 g heslihnetur, grófsaxaðar 50 g möndluflögur 1 tsk kanill 1 tsk engifer (duft) ½ tsk salt 100 ml ólífuolía 1 tsk vanilluessens 2 eggjahvítur fréttatíminn

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.