Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 29.01.2016, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 29.01.2016, Blaðsíða 34
 Fleiri myndir á frettatiminn.is Mynd | Hari Abba babb, segir Kári. Þú gætir hjálpað miklu fleira fólki. Bara ef þú vilt. Svo fór Kári og fékk meira en fimmtíu þúsund manns til að skrifa undir yfirlýsingu um að hann hefði rétt fyrir sér en ekki Simmi. Fréttaskýring fyrir barnið í okkur Kári safnar undirskriftum Kári er alls ekki glaður. Kári er reiður. Kára finnst að við eigum að hugsa betur um veika fólkið Láttu veika fólkið fá meiri pening, segir Kári við Simma. Já, ég skal gera það, segir Simmi. En samt ekki eins mikið og þú vilt. Það er alltof mikið. Láttu þá fá meiri pening!, hrópaði Kári. Nei!, sagði Simmi. Ef þú lætur þá ekki fá meiri pening þá hvæsi ég og blæs til söfnunar undirskrifta, segir Kári. Þú getur það ekki, segir Simmi. Þú þorir það ekki. Víst þori ég það, segir Kári. Mér er svo sem alveg sama, segir Simmi. Það er ekkert að marka svona undirskriftir. Fólk veit ekkert hvað það vill. Það skrifar undir allskonar. Þú ert bara fúll og leiðinlegur, segir Kári. Og vondur. Þú vilt ekki hjálpa veika fólkinu. Jú, víst vil ég hjálpa veika fólkinu, segir Simmi. Ég er alltaf að hjálpa veika fólkinu. Það hefur enginn hjálpað veika fólkinu eins mikið og ég. Umbreytti íbúðinni í smíðaverkstæði Ellilífeyrisþeginn Jón T. Karlsson hefur unnið hin ýmsu störf til sjós og lands frá því hann var strákur í Sandgerði. Síðastliðin fjögur ár hefur hann búið í miðbæ Reykja- víkur þar sem hann leigir íbúð í þjónustukjarna fyrir aldraða. Það er ævintýri að heimsækja Jón því lítilli íbúðinni hefur hann umbreytt í smíðaverkstæði þar sem bóndabæir, kirkjur, vitar og nákvæmar eftirlíkingar af skipum renna undan fingrum hans. Smíðarnar hefur hann dundað við í tuttugu ár en það var ekki fyrr en hann fór að þiggja ellilífeyri sem hann fór að selja handverkið á götum Reykjavíkur. „Þetta er nú aðallega gert til að maður hafi eitthvað á milli handanna því það lifir auðvitað enginn af ellilífeyri,“ segir Jón. „Ég næ rétt svo að borða fyrir hann en svo þarf maður auð- vitað að hafa eitthvað á milli hand- anna. Ég kvarta samt ekki því ég hef gaman af þessu. Ekki nenni ég að horfa á sjónvarpið því hún er mannskemmandi vitleysan sem þar er að finna. Ég hef svo sem ekkert betra að gera á kvöldin. Svo fer ég út á götu að selja þegar veðrið er gott,“ segir Jón sem held- ur mikið til við Vesturlandsveginn þegar vel viðrar um helgar. | hh Jón T. Karlsson ólst upp í Sand- gerði þar sem faðir hans var útgerðarmaður. „Sjórinn er mér ákaflega kær. Hann síaðist í mig og fer ekki neitt.“ „... spennandi saga um venjulegt fólk í óvenjulegum aðstæðum.“ K ATRÍN JAKOBSDÓTTIR „Hröð og óvænt ... hvergi dauður punktur, það var ekki nokkur leið að hætta. Frábær spennusaga.“ GUÐRÍÐUR HAR ALDSDÓTTIR / VIK AN GLÆPASAGNA- DROTTNING „... sterk f létta er borin uppi af stórgóðri frásagnartækni höfundar.“ SÓLVEIG ÁSTA SIGURÐARDÓTTIR / DV „... blússandi spenna frá upphafi til enda.“ VIGDÍS GRÍMSDÓTTIR „Virkilega hressandi lesning.“ FRIÐRIK A BENÓNÝSDÓTTIR / FRÉTTATÍMINN ný Komin í kilju! www.forlagid.i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39 Teikningar | Hari 34 | fréttatíminn | Helgin 29. Janúar-31. Janúar 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.