Fréttatíminn - 29.01.2016, Blaðsíða 19
við eldri borgara. Ef lífeyririnn er
brotinn niður á íbúa að teknu tilliti
til ólíkrar aldurssamsetningar er
lífeyririnn á Íslandi um 30 prósent
lægri.
Og þegar þjónusta við eldri
borgara er borin saman kemur
í ljós að Íslendingar verja um 43
prósent minna til hennar á íbúa,
að teknu tilliti til aldursamsetning-
ar, en hinar þjóðirnar.
Samanlagt má því segja að fram-
lög Íslendinga til eldri borgara
þyrftu að hækka úr 109 milljörð-
um króna árið 2013 í 169 milljarða
króna til að jafna meðaltal Noregs,
Danmerkur og Svíþjóðar. Mismun-
urinn er hvorki meiri né minni en
60 milljarðar króna.
Ef við brjótum þessa upphæð
niður á fjölda Íslendinga sem eru
67 ára eða eldri þá nemur hún
um 130 þúsund krónum á mann í
hverjum mánuði eða tæplega 1,6
milljónum króna á ári.
Það sem einkennir íslenska kerf-
ið er síðan hversu mikið fólk legg-
ur með sér úr lífeyrissjóðunum
og sínum eigin sparnaði. Á meðan
um 45 prósent af því sem varið er
til málefna eldri borgara koma úr
ríkissjóði og sveitarfélögunum á
Norðurlöndunum er það hlutfall
aðeins 23 prósent á Íslandi.
Ofvaxnir lífeyrissjóðir
Það eru einmitt lífeyrissjóðirnir
sem helst einkenna íslenska vel-
ferðarkerfið. Gríðarlega háar upp-
hæðir eru eyrnamerktar sparnaði
til efri áranna og geymdar í sjóð-
um til seinna tíma nota. Saman-
lagt eru skattgreiðslur og lífeyris-
sjóðsiðgjöld á Íslandi síst lægri
en skattgreiðslur á Norðurlönd-
unum. Skatturinn á Norðurlönd-
unum stendur undir mun hærri
barnabótum, meiri stuðningi við
fjölskyldur, veigameiri réttindum
og greiðslum til eldri borgara og
margs annars sem ekki hefur verið
tilgreint hér.
Kári Stefánsson hefur bent á að
til að jafna íslenska heilbrigðis-
kerfið við það sem íbúar Norður-
landanna búa við vanti árlega
um 45 milljarða króna í framlög
ríkissjóðs til þess málaflokks. Hér
hefur verið sýnt fram á að til að
jafna félagslegan stuðning á Ís-
landi við það sem almennt gerist á
Norðurlöndunum vanti hátt í 100
milljarða króna árlega.
Gátan sem Íslendingar standa
frammi er sú hvað þeir fái í stað-
inn fyrir velferðar- og heilbrigðis-
kerfið sem Norðurlandabúa eiga.
Þjóðartekjur Íslendinga eru við-
líka og hinna landanna og skatt-
greiðslur að viðbættum lífeyris-
sjóðsiðgjöldum ámóta hjá flestu
fólki. Og við þurfum ekki að reka
her. Í hvað fara þá peningarnir
okkar sem aðrar þjóðir nota til að
byggja upp sitt velferðarkerfi og
skapa borgurunum öryggi, rétt-
indi og viðunandi lífskjör?
fréttatíminn
STÍGÐU SKREFIÐ!
// DALE CARNEGIE FYRIR UNGT FÓLK
// 10–12 ÁRA
Námskeið hefst 29. mars, kennt einu
sinni í viku í átta vikur frá
kl. 17:00–20:00
// 13–15 ÁRA
Námskeið hefst 2. febrúar - örfá sæti
laus, kennt einu sinni í viku í átta vikur
frá kl. 17:00–21:00
// KYNNINGARTÍMAR
10 til 15 ára 31. jan kl. 15:00 - 16:00
16 til 25 ára 31. jan kl. 16:00 - 17:00
10 til 15 ára 9. feb kl. 18:00 - 19:00
16 til 25 ára 9. feb kl. 19:00 - 20:00
Sjáðu fleiri kynningartíma
á www.dale.is/ungtfolk
Sími 555 7080
// 16–20 ÁRA
Námskeið hefst 17. febrúar - örfá
sæti laus, kennt einu sinni í viku í átta
vikur frá kl. 18:00–22:00
// 21–25 ÁRA
Námskeið hefst 20. febrúar,
kennt einu sinni í viku í átta vikur
frá kl. 18:00–22:00
NÁMSKEIÐ
Í REYKJAVÍK
SKRÁÐU ÞIG
OG VERTU MEÐ OKKUR
VILTU MEIRA
SJÁLFSTRAUST
EIGA AUÐVELDARA MEÐ
AÐ KYNNAST FÓLKI
LÍÐA
BETUR
VERA
ÞÚ?
Við þjálfum ungt fólk í að standa á sinni skoðun og þora að fara á móti straumnum, auka sjálfstraust sitt og fylgja eigin
sannfæringu. Þau læra að sýna öðrum umburðarlyndi og 98% þátttakenda segjast vera jákvæðari í hugsun eftir námskeiðið.
Leggðu mat á hæfileika barnsins með styrkleikaprófinu
á www.dale.is/styrkleikar_unga
SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP
NÝR BÆKLINGUR STÚTFULLURAF SPENNANDI TÖLVUBÚNAÐI
4BLS
NÝ
SENDIN
G
VAR AÐ
LENDA
NÖTRAND
I Í
LEIKINA!
MEÐ EINUM
HNAPP ER H
ÆGT
AÐ KVEIKJA
Á VIBRATION
MODE SEM G
EFUR NÝJA
UPPLIFUN Í L
EIKINA!
MÖGNUÐ 7.1 LEIKJAHEYRNARTÓL MEÐ
HLJÓÐNEMA OG ÖFLUGUM 50MM VIBRA-
TION BÚNAÐI SEM TRYGGIR NÖTRANDI
BASSA OG HÁMARKS HLJÓMGÆÐI.14.900
7.1 GAMINGHEYRNARTÓL
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is