Fréttatíminn - 29.01.2016, Blaðsíða 44
Airbnb Yfir 3900 íbúðir skráðar á Íslandi
Götulistamenn
héldu stofutónleika
í stofunni minni
gegn því að fá
afslátt af gistingu.
Mynd | Hari
Stormurinn gerir mig hamingjusama
„Ég bjó í fimm ár í Rotterdam þar
sem ég var að vinna við mynd-
list og þar kynntist ég hópi af
Íslendingum,“ segir Rebecca
Erin Moaran sem er frá Oregon í
Bandaríkjunum en hefur búið á
Íslandi í tíu ár. „Það virðist vera
dálítið þannig að þar sem einn Ís-
lendingur er, eru fleiri. Vinir mínir
voru duglegir við að hvetja mig til
að sækja um vinnurými á Íslandi
og vera þar í einhvern tíma og á
endanum sló ég til,“ segir Rebecca
sem fékk vinnurými hjá Kling og
Bang í 3 mánuði árið 2005. „Vinir
mínir í Rotterdam höfðu rétt fyrir
sér, mér leið strax eins og heima
hjá mér og nú eru liðin tíu ár og
enn er ég hér.“
„Ég er algjörlega farin að líta
á Ísland sem heimili mitt. Ég hef
skotið rótum hér og sé það ekki
fyrir mér að ég eigi eftir að fara
héðan. Ég flutti hingað 29 ára og
nú er ég 39 ára svo ég hef búið
hér öll mín fullorðinsár,“ segir
Rebecca sem hefur unnið við leik-
myndagerð fyrir bíó og auglýs-
ingar meðfram listinni auk þess
að kenna við Listaháskólann og
Myndlistarskóla Reykjavíkur. Í list-
inni er ég aðallega að vinna með 16
mm filmu og í kringum það stofn-
aði ég ásamt öðrum Kino Smiðj-
una og við sýndum mánaðarlega í
Rebecca Erin Moaran er frá Oregon í Banda-
ríkjunum en hefur búið á Íslandi í tíu ár.
Hafnarhúsinu en í dag sýnum við
í Mengi.“
„Alls staðar í heiminum eru
plúsar og mínusar. Hér eru pólitík-
usar sem hugsa í skammtíma-
lausnum pottþétt stærsti mínusinn
en það besta við Ísland er samfé-
lagið. Í myndlistarheiminum og í
kvikmyndagerðinni standa allir
svo þétt saman og allir eru alltaf
boðnir og búnir til að hjálpast að.
Ég elska hvað fólk er jákvætt hérna
og til í að framkvæma hvað sem
því dettur í hug, allir trúa því að
hlutirnir muni reddast að lokum.
Þetta reddast er uppáhalds íslenski
frasinn minn, en hann virkar auð-
vitað bara ef allt samfélagið trúir á
hann. Svo verð ég að bæta því við
að ég elska veðrið hérna! Óveður
og stormur gerir mig hamingju-
sama.“ | hh
Vinsælasti Airbnb
gestgjafi landsins
Í fjögur ár hefur Ragnhildur
Sigurðardóttir leigt út íbúðir
í gegnum Airbnb. Hún er
með 1569 ummæli og fimm
stjörnur og segir lykillinn
vera hlýleg samskipti við
gesti.
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildur@frettatiminn.is
Sífellt fleiri hafa tekið að sér hlut-
verk gestgjafans með auknum
ferðamannastraumi til landsins.
Samkvæmt vefsíðunni turisti.
is eru yfir 3900 íbúðir á Íslandi
skráðar á vef Airbnb. Mikil sam-
keppni hefur myndast milli gest-
gjafa enda er vefur Airbnb byggð-
ur upp þannig að gestirnir gefa
dvölinni ummæli og stjörnur fyrir
hreinlæti, samskipti, staðsetningu
og aðbúnað.
Samkvæmt Airbnb er Ragnhild-
ur Sigurðardóttir einn vinsælasti
gestgjafi landsins. Samtals er hún
með 1569 ummæli frá gestum og
fimm stjörnur. Í ummælum er
hún sögð vingjarnleg og hjálpleg,
auðvelt að leita til hennar og gefur
góðar ábendingar um hvað skal
bardúsa í Reykjavík. Hún segir
starfinu fylgja ýmsar skemmti-
legar uppákomur. „Götulistamenn
héldu stofutónleika í stofunni
minni gegn því að fá afslátt af gist-
ingu. Ég bauð vinum og fjölskyldu
að koma og þetta voru frábærir
tónleikar. Ég er fínu sambandi við
þau í dag.“
Ragnhildur segir Airbnb snúast
um persónuleg tengsl, að taka á
móti gestum og vera innilegur.
„Ég spjalla við þá um daginn og
veginn, vísa þeim á það sem lóka-
llinn gerir eins og að fara í sund
og fá sér kaffi á Kaffivagninum.“
Ragnhildur segir góð samskipti
vera lykilinn og gjarnan þessi auka
fyrirhöfn. „Ég aðstoða gestina ef
þeir eru veðurtepptir, að fá far eða
gistingu annarsstaðar. Ég reyni að
svara skilaboðum um hæl, vera
hlýleg í netsamskiptum og bjóða
fólk velkomið. Á sama tíma er mik-
ilvægt að virða einkalíf fólks, finna
þennan fína milliveg. Ég hef lengi
unnið í ferðamannaiðnaðinum og
hef alltaf gaman af þessu, sérstak-
lega þegar gestirnir koma aftur.“
Mynd | Hari Mikil samkeppni hefur myndast milli gest-
gjafa og er Ragnhildur fremst í flokki.
44 | fréttatíminn | Helgin 29. Janúar-31. Janúar 2015
Fákafen 9 | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Kjóll
Stærðir 14-22Verð: 7.590 kr
Afgreiðslutímar í verslun
okkar að Fákafeni 9
Alla virka daga KL: 11-18
Laugardaga KL: 11-16
280cm
98cm
Bláu húsin Faxafeni | S. 588 4499 | Opið mán.-fös. | 11-18 | lau. 11-16
Tískuvöruverslun fyrir konur
RUGL BOTNVERÐ
Peysur, jakkar, tunikur, kjólar og margt fl.
Verð frá 1.000 - 5.000 kr.
Ekkert hærra en 5.000 kr
Nú er bara að hlaupa og kaupa.
Krakkapakkinn inniheldur vítamín og bætiefni,
sérvalin fyrir íslenskar aðstæður. Fyrir börnin.
Kynntu þér úrvalið á gulimidinn.is
FYRIR OKKUR
TILBOÐ
3 fyrir 2