Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 29.01.2016, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 29.01.2016, Blaðsíða 2
Prestur innflytjenda bendir á að fjölmörg hjálpar- og mannúðarsamtök gagnrýni aðbúnað flóttafólks í Búlg- aríu. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is „Mér líður mjög illa með þetta, ég var að vona að ég fengi að vera hérna,“ segir Ahmad Algasm Ibra- himn, 23 ára Sýrlendingur, en Út- lendingastofnun ákvað í síðustu viku að senda hann aftur til Búlg- aríu. Ahmad hefur búið hér í sjö mánuði en segist hafa verið á göt- unni í Búlgaríu. Hann hafði vinnu en fékk engin laun greidd og hafði því ekkert milli handanna. Hann hafði lítið að borða og svaf úti eða í moskum eða í kirkjum, meðan hann dvaldi í landinu. Þá hrædd- ist hann að verða fyrir árás glæp- manna sem herja á flóttafólk. Ahmed náði að flýja árið 2013 gegnum Tyrkland og til Búlgar- íu, en á flóttanum tvístraðist fjöl- skyldan hans en foreldrar hans eru núna í Tyrklandi. Einnig var hann hræddur við árásir glæpamanna sem herja á flóttafólk. Samtökin Ekki fleiri brottvísanir segja brott- vísunina hrottalega og hvetja alla til að mótmæla þessari ákvörðun. „Ég er hræddur við að fara héðan, ég vona að þeir hætti við þetta,“ segir hann sjálfur. Toshiki Toma, prestur innflytj- enda, segir að meðferð f lótta- manna í Búlgaríu hafi kallað yfir sig gagnrýni fjölda hjálparstofn- ana, þeirra á meðal Amnesty Int- ernational. Þeir fá hryllilega mót- töku, vonda málsmeðferð og jafnvel ef þeir fá hæli fá þeir nær engan að- gang að grunnþjón- ustu ríkisins. Í haust haf i búlgarskir lög- reglumenn skotið á hóp f lóttamanna við tyrk- nesku landamærin og drepið afganskan strák. „Mér finnst þetta mjög ómannúðlegt, hans bíður ekkert nema líf á götunni,“ seg- ir Toshiki. „Ég get ekki skilið að það sé neitt samræmi í þessu,“ segir hann og bend- ir á að annars- vegar sé verið að taka á móti hópi flóttafólks frá Sýrlandi, en hinsvegar að senda ungan strák sem hefur verið hér í sjö mánuði, í óviss- una í Búlgaríu. Mér finnst þetta mjög ómannúðlegt, hans bíður ekkert nema líf á götunni. Toshiki Toma prestur innflytjendakemur HeILSuNNI í Lag eIN tafLa á dag SykurLauSar íSLeNSk framLeIðSLa Útlendingastofnun Sýrlendingur sendur til Búlgaríu „Ég er hræddur við að fara héðan“ Leikhús Rithöfundasambandið lætur lögfræðing sinn skoða texta sem voru notaðir í leyfisleysi Höfundar Njálu fara frjálslega með verk Helgu Kress Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is „Mér var ansi brugðið þegar ég heyrði lesna upp langa og orðrétta texta úr fræðigreinum eftir mig,“ segir Helga Kress, prófessor emer- itus við Háskóla Íslands, aðspurð í stuttu við- tali. Hún hafði keypt sér miða á forsýningu á Njálu í Borgarleikhúsinu en í sýningunni er lesið upp úr verkum hennar án þess að hún hefði verið beðin um leyfi. „Ég var mjög spennt að sjá þessa sýningu sem fyrirfram var látið mikið af sem einni dýrustu sýningu sem leikhúsið hefur nokkurn tímann sett á svið, en sjálf hef ég skrifað mikið um Njálu, þá einkum um konurnar og karni- valið, og er sagan á mínu rannsóknasviði.“ Njála er samstarfsverkefni Íslenska dans- flokksins og Borgarleikhússins, leikverkið er eftir Mikael Torfason og Þorleif Örn Arnars- son, Þorleifur Örn leikstýrir og Erna Ómars- dóttir semur dansverkið. „Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum, svo að ég fór aftur á sýninguna nokkrum dögum síðar, þegar mér tókst að fá miða því að það var alltaf uppselt, og varð mér þá um leið úti um leikskrá – ekki í boði hússins. Þar er vísað í tvo texta eftir mig og sagt að til þeirra sé vitnað í sýningunni, eins og um tilvitnanir sé að ræða, en þetta er nú meira en það, tveir kaflar úr viðtali, sem einhvers konar upptaktur að sýningunni, og grein sem lesin er upp í heild, sem undirleikur við kóreógrafíu um örlög Hallgerðar. Textarn- ir eru mjög vel lesnir, það verður að segjast, en túlkun þeirra er byggð á misskilningi á mínum fræðum og eru þeir í engu samræmi við það sem er að gerast á sviðinu eða við sýninguna í heild.“ Þar sem textarnir eru notaðir án leyfis telur Helga það vera brot á höfundalögum. Hún hefur leitað til Rithöfundasambands Íslands um faglegt álit. Þetta staðfestir Ragnheiður Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Rithöfunda- sambandsins, og að málið sé til skoðunar hjá lögfræðingi sambandsins. Ahmad Algasm Ibrahimn er 23 ára Sýrlendingur sem kom hingað frá Búlgaríu. Mynd | Rut Toshiki Toma, prestur inn- flytjenda, gagnrýnir fjölda hjálpar- stofnana. Eitt aðalágreiningsefnið er grein Helgu Kress sem nefnist Hár Hallgerðar, en í leikritinu er greinin lesin í heild. Kópavogur Blindir telja á sér brotið Blindrafélagið stefnir Kópavogsbæ Blindrafélagið hefur ítrekað sent lögfræðing á bæinn. Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir salka@frettatiminn.is Blindrafélagið ætlar að stefna Kópa- vogsbæ vegna ófullnægjandi þjónustu bæjarins við blinda og sjónskerta ein- staklinga. Eins og staðan er nú verða blind- ir og sjónskertir að nýta sér ferða- þjónustu fatlaðra í stað sérsniðinnar leigubílaþjónustu sem Garðabær og Reykjavík veita. Kristinn Halldór Ein- arsson, framkvæmdastjóri Blindra- félagsins, segir félagið ítrekað hafa sent kröfu í gegnum lögfræðing sinn um að þörfum tveggja skjólstæðinga félagsins verði mætt, en Kópavogsbær hafi ekki orðið við því. Í stað þess hafi bærinn bent á skólaakstur bæjarins og ferðaþjónustu fatlaðra. Iva Marín Adrichem er ein þeirra einstaklinga sem telur á sér brotið. „Garðabær býður upp á ferðaþjón- ustu sem er sniðin að mínum ferðum. Ég nýti mér þá leigubílaþjónustu sem Blindrafélagið samdi um við Hreyf- il og borga fyrir þjónustuna upp- hæð sem nemur almennu fargjaldi í strætó. Sveitarfélagið niðurgreiðir svo restina.“ Þegar fjölskylda hennar flutti í Kópavog komst hún svo að því að Kópavogur býður einfaldlega ekki upp á þessa þjónustu, því sveitarfé- lagið skrifaði á sínum tíma ekki undir samning við Blindrafélagið um leigu- bílaþjónustu fyrir blinda. Nú verður Iva Marín því að nýta sér ferðaþjónustu fatlaðra, sem panta verður með sólarhrings fyrirvara. Þjónustan virkar þannig að oft er fólk í bílnum fyrir sem líka á að skutla á marga mismunandi staði. „Það er því ekki í boði fyrir mig að fara ferða minna fyrirvaralaust, sem skerðir lífs- gæði mín verulega.“ Sigríður Björg Tómasdóttir, upp- lýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, seg- ir engin áform uppi um að breyta þjónustu við blinda og sjónskerta, en Kópavogsbæ sé kunnugt um að ferða- þjónusta fatlaðra sé ekki með sama hætti í bænum og í nágrannasveitar- félögunum. Blindir og sjónskertir einstaklingar fá ekki ferðaþjónustu sniðna að sínum þörfum í Kópavogsbæ. 2 | fréttatíminn | Helgin 29. Janúar-31. Janúar 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.