Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 29.01.2016, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 29.01.2016, Blaðsíða 12
Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Upplifðu einstaka náttúrufegurð og stórkostlega fjallasýn á einu fallegasta fjallasvæði Alpanna, Zugspitz Arena, á landamærum Austurríkis og Þýskalands. Tær vötn, blómstrandi engi og skemmtileg hreyfing í góðum félagsskap. Ómissandi ferð fyrir alla útivistarunnendur! Verð: 169.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Sp ör e hf . Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir 18. - 25. maí Trítlað í Alpadölum Sumar 1 Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist undir tuttugu prósentum. Stefna hans sögð óboðleg fyrir yngra fólk. Sigurjón Magnús Egilsson sme@sme.is Viðmælendur, sem eiga það sam- eiginlegt að hafa fylgt Sjálfstæðis- flokknum að málum, og hafa starfað innan flokksins og haft hugsjónir sem hafa átt samleið með honum, virðast vera frá að hverfa. Þeir segja flokkinn frekar vera afturhaldsflokk en íhaldsflokk. Þegar svo stórt er sagt, er spurt hvort það fólk sem þannig talar berjist gegn afturhaldsfólkinu eða hafi einfaldlega gefist upp. Svörin eru á báða bóga. Að frjálslyndara fólk hafi gefist upp og, eins að lands- fundur flokksins í október hafi sýnt, að fólk sé enn tilbúið að berjast fyrir hugsjónum sínum. Þó á móti blási, allavega um stund. Tíu prósenta flokkur Mikið hefur verið fjallað um að fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist undir tuttugu prósentum í nýjustu skoð- anakönnun MMR. Hafa verður í huga að fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist að jafnaði meira í Þjóðar- púlsi Gallup, en hjá MMR. Það er fréttnæmt og það er sögu- legt þegar Sjálfstæðisflokkurinn mælist undir tuttugu prósentum. „Sjálfstæðisflokknum hefur tek- ist með einhverjum hætti að færa sig frá fólki undir fertugu, jafnvel undir fimmtugu. Rétt um tíu pró- sent yngri kjósenda segjast ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Það segir mér að verulega mikið er að,“ sagði einn viðmælandinn. Fleiri tóku í sama streng. Segja afturhaldsstefnunni stýrt af eldri flokksmönnum, fyrrum ráðamönn- um flokksins, og þeirra stefna sé óboðleg fyrir yngra fólk. Og því sjá- ist staður í fylgiskönnunum. Flokkur eða valdastofnun Viðhorf eru uppi um að Sjálfstæðis- flokkurinn virki, á marga, sem gam- aldags valdastofnun, frekar en sem nýmóðins stjórnmálaflokkur. „Því fækkar þeim sem telja sig eiga sam- leið með honum.“ Hversu djúpt er flokkurinn sokk- inn, að mati yngra fólks? „Hann á ekki séns hjá ungu fólki. Mér finnst leitt að segja þetta, en þannig sé ég stöðu flokksins hjá minni kynslóð,“ sagði maður sem á að baki nokkuð langa sögu í flokkn- um. „Mínir félagar eru ýmist gengnir úr flokknum, hættir að starfa innan hans eða hættir að kjósa Sjálf- stæðisflokkinn.“ Það sem hér er skrifað endurómar raddir ann- arra viðmælenda. Málefni gera flokknum erfitt fyrir Það er eitthvað að. En hvað? Allir sem talað var við segja Bjarna Benedikts- son fínan formann og afnám tolla og vörugjalda, til að mynda, sýni að hann sé trúr grunn- stefnu flokksins. „Ráðherrar ríkis- stjórnarinnar eru frjálslynt fólk,“ sagði einn, en bætti við að annað trufli starf ríkisstjórnarinnar. Aftur- haldið. Er Sjálfstæðisflokkurinn útvörð- ur sérhagsmuna, þar sem hann er sagður líkari valdastofnun en stjórnmálaflokki? „Já,“ segja sumir. Er það útgerðin sem ræður miklu, með Morgunblaðinu og styrkjum til flokks og þingmanna? Sú kenning var sögð hafa átt rétt á sér þar fyrir skömmu. Aðgerðirn- ar gegn Rússum og samstaða ríkis- stjórnarinnar eru sagðar hafa verið happafeng fyrir Bjarna Benedikts- son, formann flokksins. Þar stóð hann upp í hárinu á útgerðinni og Davíð Oddssyni. Vék hvergi frá sam- þykkt ríkisstjórnarinnar þrátt fyrir bæði leyndan og ljósan þrýsting. Var landsfundurinn góður? Já, var landsfundurinn góður eða var hann vondur? Við munum helst framgöngu unga fólksins. Óvænt fékk Guðlaugur Þór Þórðarson mót- framboð til ritara flokksins. „Ég held að tilkoma mín inn í þetta starf breikki ásýnd foryst- unnar. Ég er í háskóla og á vinnu- markaði á sumrin svo kannski er ég meira að upplifa það sem aðrir kjósendur eru að upplifa.“ Þannig mæltist Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur eftir að hún var kjörin ritari Sjálfstæðisflokksins á landsfundinum. Framboð hennar féll í grýttan jarðveg, allavega mis- grýttan. „Hún hafði uppi sömu aðferð og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hafði á landsfundi Samfylkingarinnar. Guðlaugur Þór kaus að fara ekki í kosn- ingu og dró framboð sitt til baka. Áslaug Arna var því sjálfkjörin ritari. Sjálfstæðisfólk taldi, að því er haldið var, að með velheppnuðum landsfundi og ungum ritara hefði fundist vörn, jafnvel sókn, gegn stanslausri fylgisaukningu Pírata. „Það er bara Moggaskýring. Að flokkurinn eigi að eltast við Pírata, en ekki yngra fólkið í eigin flokki, eru merkileg viðhorf. Sú hugsun kemur úr hinu vonda afturhaldi.“ Borgunarmálið dýrkeypt Sama hvað hver segir og hvað hverj- um þykir er ljóst að Borgunarmálið mun reynast Sjálfstæðisflokki erfitt. Einn viðmælendanna sagðist viss um að Bjarni Benediktsson hafi ekki komið að því hvernig Borgun var seld eða hverjir keyptu. Allir við- mælendurnir töluðu á sama veg. Málið er og verður Bjarna erfitt. Svona mál eru erfið. „Umræðan í samfélaginu er þannig að litlu virð- ist skipta hvað er rétt og hvað er rangt. Það er erfitt að leiðrétta um- ræðuna. Þá breytir litlu hver sann- leikurinn er,“ sagði einn af þeim sem rætt var við. Eins var talað um vandamál Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Ill- uga Gunnarssonar. „Það er ljóst að þau hjálpa ekki.“ Er f lokkurinn þá og verður í langvarandi vanda? Sumir segja svo vera á meðan aðrir telja hann vera fallandi, jafnvel ónýtan. „Það tekur tíma að hreinsa afturhaldið af flokknum,“ sagði einn viðmæl- endanna. Málefnin og fólkið Viðmælendurnir voru að mörgu leyti sáttir við Bjarna Benedikts- son sem formann og ýmislegt sem hann hefur gert. Einn nefndi að Bjarni hefði þurft að þola margt inn- an flokksins vegna afstöðu sinnar í Icesave. Nú hafi komið skýrt í ljós að hann hafði rétt fyrir sér. „Það er búið að lemja og berja á honum vegna málsins. Nú stendur hann uppi sem sigurvegari,“ sagði einn af þeim sem rætt var við. Á móti kemur að flokkurinn virð- ist hafa sérstöðu í nokkrum veiga- miklum og fyrirferðarmiklum málum. Málum sem geta ekki fært flokknum almennar vinsældir. Þar má nefna breytingar á stjórn- arskránni, rannsókn á sölu bank- anna á sínum tíma, breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, húsnæð- isfrumvörp Eyglóar Harðardóttur og verðtrygginguna, svo eitthvað sé nefnt. Hér að framan var sagt: Viðhorf eru uppi um að Sjálfstæðis- flokkurinn virki, á marga, sem gam- aldags valdastofnun, frekar en sem nýmóðins stjórnmálaflokkur. „Því fækkar þeim sem telja sig eiga sam- leið með honum.“ Svo er það fólkið sem kemur til með að berjast um forystusætin við næstu þingkosningar vorið 2017, en prófkjörin verða í haust. Af orðum viðmælenda má ætla að öll þau sem skipi efstu sæti fram- boðslistanna verði með í barátt- unni. En of snemmt er að segja til um það. Svo mikið er víst, staða Sjálfstæð- isflokksins er snúin – og spennandi. Fréttaskýring Sjálfstæðisflokkurinn er í djúpri kreppu Er Sjálfstæðisflokkurinn íhald eða afturhald? Vandi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Illuga Gunnarssonar hefur ekki létt undir með flokknum. Bjarni Bene- diktsson nýtur trausts sem formaður. Samt er óvíst hvernig honum tekst að stýra flokknum í gegnum mótlætið. Mótlæti 10% meðal ungra Sjálfstæðisflokkurinn hefur mátt þola mikið mótlæti og fylgi hans meðal yngri kjósenda er lítið. Hann virkar á flokksfólk sem valdastofnun. 12 | fréttatíMinn | Helgin 29. Janúar-31. Janúar 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.