Fréttatíminn - 29.01.2016, Page 34
Fleiri myndir á
frettatiminn.is
Mynd | Hari
Abba babb, segir Kári. Þú gætir hjálpað
miklu fleira fólki. Bara ef þú vilt. Svo fór
Kári og fékk meira en fimmtíu þúsund
manns til að skrifa undir yfirlýsingu um að
hann hefði rétt fyrir sér en ekki Simmi.
Fréttaskýring fyrir barnið í okkur
Kári safnar undirskriftum
Kári er alls ekki glaður. Kári er
reiður. Kára finnst að við eigum að
hugsa betur um veika fólkið
Láttu veika fólkið fá meiri pening, segir Kári við Simma.
Já, ég skal gera það, segir Simmi. En samt ekki eins
mikið og þú vilt. Það er alltof mikið.
Láttu þá fá meiri pening!, hrópaði Kári. Nei!, sagði
Simmi. Ef þú lætur þá ekki fá meiri pening þá hvæsi
ég og blæs til söfnunar undirskrifta, segir Kári.
Þú getur það ekki, segir Simmi. Þú þorir
það ekki. Víst þori ég það, segir Kári. Mér
er svo sem alveg sama, segir Simmi. Það
er ekkert að marka svona undirskriftir.
Fólk veit ekkert hvað það vill. Það skrifar
undir allskonar.
Þú ert bara fúll og leiðinlegur, segir Kári. Og vondur.
Þú vilt ekki hjálpa veika fólkinu. Jú, víst vil ég hjálpa
veika fólkinu, segir Simmi. Ég er alltaf að hjálpa veika
fólkinu. Það hefur enginn hjálpað veika fólkinu eins
mikið og ég.
Umbreytti íbúðinni
í smíðaverkstæði
Ellilífeyrisþeginn Jón T. Karlsson
hefur unnið hin ýmsu störf til sjós
og lands frá því hann var strákur
í Sandgerði. Síðastliðin fjögur ár
hefur hann búið í miðbæ Reykja-
víkur þar sem hann leigir íbúð
í þjónustukjarna fyrir aldraða.
Það er ævintýri að heimsækja
Jón því lítilli íbúðinni hefur hann
umbreytt í smíðaverkstæði þar
sem bóndabæir, kirkjur, vitar og
nákvæmar eftirlíkingar af skipum
renna undan fingrum hans.
Smíðarnar hefur hann dundað við
í tuttugu ár en það var ekki fyrr
en hann fór að þiggja ellilífeyri
sem hann fór að selja handverkið
á götum Reykjavíkur. „Þetta er
nú aðallega gert til að maður hafi
eitthvað á milli handanna því það
lifir auðvitað enginn af ellilífeyri,“
segir Jón. „Ég næ rétt svo að borða
fyrir hann en svo þarf maður auð-
vitað að hafa eitthvað á milli hand-
anna. Ég kvarta samt ekki því ég
hef gaman af þessu. Ekki nenni ég
að horfa á sjónvarpið því hún er
mannskemmandi vitleysan sem
þar er að finna. Ég hef svo sem
ekkert betra að gera á kvöldin.
Svo fer ég út á götu að selja þegar
veðrið er gott,“ segir Jón sem held-
ur mikið til við Vesturlandsveginn
þegar vel viðrar um helgar. | hh
Jón T. Karlsson ólst upp í Sand-
gerði þar sem faðir hans var
útgerðarmaður. „Sjórinn er mér
ákaflega kær. Hann síaðist í mig
og fer ekki neitt.“
„... spennandi saga um venjulegt
fólk í óvenjulegum aðstæðum.“
K ATRÍN JAKOBSDÓTTIR
„Hröð og óvænt ... hvergi dauður
punktur, það var ekki nokkur leið
að hætta. Frábær spennusaga.“
GUÐRÍÐUR HAR ALDSDÓTTIR / VIK AN
GLÆPASAGNA-
DROTTNING
„... sterk f létta er borin uppi af
stórgóðri frásagnartækni höfundar.“
SÓLVEIG ÁSTA SIGURÐARDÓTTIR / DV
„... blússandi spenna frá
upphafi til enda.“
VIGDÍS GRÍMSDÓTTIR
„Virkilega hressandi lesning.“
FRIÐRIK A BENÓNÝSDÓTTIR / FRÉTTATÍMINN
ný
Komin í kilju!
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
Teikningar | Hari
34 | fréttatíminn | Helgin 29. Janúar-31. Janúar 2015