Fréttatíminn - 29.01.2016, Side 43
www.apotekarinn.is - lægra verð
Fyrsta hjálp fyrir þurrar varir
Decubal lips & dry spots balm:
Nærandi og mýkjandi smyrsli með
býflugnavaxi sem hjálpar til við
enduruppbyggingu þurra vara, tættra
naglabanda og þurra olnboga.
Decubal er heil húðvörulína fyrir andlit og líkama. Í 40 ár höfum við þróað mildar og nærandi vörur
fyrir þurra og viðkvæma húð, í nánu samstarfi við húðsjúkdómalækna. Decubal er algjörlega laust við
ilmefni, litarefni og parabena og er eingöngu selt í apótekum.
Án parabena, ilm- og litarefna.
Búðu til þitt
eigið granóla
morgunkorn
Uppskrift frá hinni vinsælu
Nönnu Rögnvaldardóttur.
Nanna Rögnvaldardóttir var að
senda frá sér nýja matreiðslubók,
Létt og litríkt. Þar er meðal annars
að finna þessa skemmtilegu gran-
ólablöndu.
„Í staðinn fyrir sykur eða síróp
nota ég þeyttar eggjahvítur til að
blandan verði stökk. Hægt er að
nota alls konar fræ, hnetur og fleira
í granólablönduna,“ segir Nanna.
„Hitaðu ofninn í 160°C. Blandaðu
saman í skál hafragrjónum, fræjum,
hnetum og kryddi. Hristu saman
ólífuolíu og vanillu, helltu yfir og
blandaðu vel. Stífþeyttu að lokum
eggjahvíturnar og blandaðu þeim
saman við með sleikju.
Dreifðu blöndunni jafnt á papp-
írsklædda bökunarplötu og ristaðu
hana í miðjum ofni í um 25 mín-
útur, eða þar til hún er gullinbrún
og stökk. Hrærðu einu
sinni eða tvisvar á með-
an – ég geri það einfald-
lega með því að lyfta
brúnunum á pappírn-
um, hvolfa öllu inn að
miðju og dreifa svo
úr því aftur. Láttu
svo blönduna
kólna, settu hana
í krukku og
geymdu.“
500 g af granólablöndu
250 g grófvölsuð hafragrjón
50 g sólblómafræ
30 g graskersfræ
50 g heslihnetur, grófsaxaðar
50 g möndluflögur
1 tsk kanill
1 tsk engifer (duft)
½ tsk salt
100 ml ólífuolía
1 tsk vanilluessens
2 eggjahvítur
fréttatíminn