Fréttatíminn - 29.01.2016, Qupperneq 40
Impostor Syndrome, eða loddaraheilkenni, er
heiti yfir þá tilhneigingu fólks, sem nær miklum
árangri, að taka ekki mark á eigin árangri og lifa
í stöðugum ótta við að vera afhjúpað sem loddar-
arnir sem því finnst það vera. Öll merki um eigin
verðleika stimplar það sem ávöxt heppni eða þess
að þú hafir gabbað aðra til að trúa því að það sé
velgengninnar vert. Hljómar kunnuglega? Oft
eru þeir sem finna fyrir loddaraheilkenni ein-
mitt fólkið sem nær sem mestum árangri. Meðal
þekktra einstaklinga sem þjáðst hafa af þessari
rökvillu eru metsöluhöfundurinn Neil Gaiman og
leikkonan Emma Watson. Ætli þeir sem við lítum
upp til hér á landi kannist við þetta líka?
María rut Kristinsdóttir
er talskona Druslugöngunnar og fékk nýlega stöðu innan
innanríkisráðuneytisins til að endurskoða verkferla þegar
kemur að kynferðisabrotum.
Hún hafði ekki heyrt um hugtakið áður en segir það
eiga vel við sig. „Unn-
usta mín hefur oft hlegið
að mér þegar ég býsnast
yfir því af hverju það sé
verið að fá MIG í hitt og
þetta, en ég held þetta
sé líka ákveðið verkfæri
til að halda sér á tánum
og ofmetnast ekki. Ég þarf samt að venja mig á að gefa
mér ekki alltaf afslátt og halda að það sé tilviljun þegar
vel gengur, en ég held að þetta sé ekki af hinu slæma ef
maður áttar sig á að tilfinningin er ekki raunveruleg.“
Ég held að þetta sé
ekki af hinu slæma
ef maður áttar sig
á að tilfinningin er
ekki raunveruleg.
Þorsteinn B. FriðriKsson
er forstjóri fyrirtækisins Plain Vanilla: „Auðvitað fer
maður í gegnum tímabil þar sem fyrirtæki sem ég var
með gengu ekki vel og þá fyllist maður hugsunum um
hvort maður sé bara að gera
einhverja vitleysu. Ég held
samt að sú tilhneiging manna
til að þakka allan árangur
sjálfum sér en kenna utanað-
komandi aðstæðum um þegar
illa gengur, sé jafnvel verri.
Árangur er alltaf sambland
af vinnu, heppni, fólkinu sem vinnur með manni og
svo framvegis. Svo það væru mistök ef ég eignaði mér
sjálfum minn árangur. Í samfélaginu sem við búum í er
fólk oft tilbúið að stimpla það sem heppni þegar ein-
hverjum gengur vel, það er kannski þaðan sem þetta
óöryggi kemur.“
Fólk [er] oft
tilbúið að stimpla
það sem heppni
þegar einhverjum
gengur vel.
Loddarar Rannsóknir sýna að um 70% þjást af Imposter Syndrome.
Fyrirmyndirnar
eru líka óöruggar
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
Margrét erla MaacK
dagskrárgerðarkona: „Algjörlega, maður hefur tilhneig-
ingu til að lesa ótrúlega mikið í gagnrýni en humma hrós-
ið svo af sér. Svo er maður líka bara loddari í alvörunni á
sumum sviðum og það getur oft bara hjálpað manni. Að
skítamixa sig aðeins í gegnum
hluti af og til hjálpar manni oft,
ég hef alveg DJ-að þó ég kunni
ekki öll trixin og farið í viðtöl
á tungumáli sem ég kann ekki
fullkomlega, en það er bara allt
í lagi. Enginn er fullkominn í því
sem hann gerir, þó maður eigi
alltaf að gera 100% eftir sinni eigin getu.
Það er svo mikilvægt að fatta að allir eru óöruggir að
einhverju leyti. Besta leiðin til að ráða við það er að líta
til baka á stöður sem maður fékk og fannst maður ekki
eiga skilið. Þegar tíminn líður frá sé ég þær í réttu ljósi:
Auðvitað réðu þau mig í þetta, af hverju fannst mér það
eitthvað skrýtið?“
Að skítamixa
sig aðeins í gegn-
um hluti af og til
hjálpar manni oft.
Mynd | Hari
Mynd | Hari
unnsteinn Manuel
steFánsson
tónlistarmaður og þáttagerðarmaður, tengir strax við
loddaraeinkennið: „Já, ég hef þjáðst af þessu. Þegar ég
byrjaði að gera sjónvarpsþættina Hæpið gat ég varla
sofið á næturnar, þetta var alveg
hræðilegt. Ég var að vinna 10-12
tíma á dag en var samt aldrei sátt-
ur við það sem kom út úr því. Svo
komu þættirnir út og fólk hrósaði
manni fyrir þá og þá fattaði ég að
þetta hefðu verið aðeins of miklar
áhyggjur. Ég held að flestir sem
gera eitthvað skapandi takist á við þetta. Lykillinn er að
hugsa ekki um hvað öðrum finnst þegar maður semur,
heldur semja til að hafa gaman sjálfur. Af því ef þú
miðar það sem þú gerir út frá öðrum ertu orðinn alvöru
loddari, eins og þú óttaðist.“
Ég var að
vinna 10–12
tíma á dag en
var samt
aldrei sáttur.
Mynd | Hari
40 | FréttatíMinn | HELGIn 29. JAnúAr-31. JAnúAr 2015
Ævintýri
Breka
Yndisleg bók um
mikilvægi þess að
vera öðruvísi
www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39
Hvað ef ég
skyldi nú
ekki vera
nógu góður
til að komast
í bók?
Ný ísle
nsk
barnab
ók