Fréttatíminn - 24.03.2016, Page 34
Augnheilbrigði
Thealoz inniheldur trehalósa sem er nátt-
úrulegt efni sem finnst í mörgum jurtum
og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna horn-
himnunnar gegn þurrki. Droparnir eru án
rotvarnarefna og má nota með linsum.
Hvarmabólga og þurr augu.
Fæst í öllum helstu apótekum.
1. Skolaðu nef og háls reglulega
með volgu saltvatni. Rannsókn-
ir hafa sýnt að saltvatnið getur
minnkað bólgur, losað um slím
og jafnvel hjálpað til við að skola
út bakteríum.
2. Ef þú ert með mikla hálsbólgu
getur verið gott að taka inn
bólgueyðandi lyf til að slá á
bólguna og minnka verkina um
leið.
3. Sofðu og liggðu með hátt undir
höfði.
4. Berðu mentoláburð undir nef
og á gagnauga, jafnvel á háls og
bringu. Þetta hjálpar til við að
losa um.
5. Mörgum líður betur af því að
drekka heitt vatn með engifer,
sítrónu og hunangi. Það virðist
mýkja hálsinn og jafnvel slá á
einkennin tímabundið.
6. Andaðu að þér heitri gufu. Þú
getur jafnvel fyllt vaskinn inni
á baðherbergi með sjóðandi
heitu vatni, sett mentoláburð út
í, staðið yfir vaskinum og andað
að þér gufunni.
7. Passaðu upp á handþvott og
minntu fjölskyldumeðlimi á
það sama – þetta er þó aðallega
til þess að reyna að koma í veg
fyrir flensuna. Læknar og sér-
fræðingar segja handþvott vera
mikilvægastan í að koma í veg
fyrir flensusmit.
8. Hvíld, hvíld, hvíld. Ekki ana
af stað áður en þú ert orðin/n
frísk/ur – það græðir enginn á
því!
8 ráð til að tækla flensuna
Flensutímabilið að undanförnu hefur leikið marga grátt. Ekki sér alveg fyrir endann á
því þó að það sé í rénun. Það er ekkert hægt að útiloka það að flensan banki upp á en ef
hún er til staðar er hægt að nota ýmis ráð til þess að bæta líðanina.
Þriggja klukkustunda gönguferð á annan í
páskum sem er öllum að kostnaðarlausu.
Þegar páskalambinu hefur verið sporðrennt og síðustu
molar páskaeggsins renna ofan í fólk er tilvalið að
hressa sig aðeins við áður en ný vinnuvika hefst.
Á annan dag páska bjóða Bláa lónið og Grindavíkur-
bær upp á gönguferð um stórbrotið umhverfi Bláa lóns-
ins. Gangan hefst klukkan 11 við bílastæði Bláa lónsins
og er áætlað að hún taki um 3 klukkustundir. Hægt er
að fara rúmlega hálfan hring og fá akstur til baka.
Leiðsögumaður er Sigrún Franklín og þátttaka
er ókeypis. Gengið verður um mosagróið Illahraun,
framhjá Rauðhól (gígnum sem hraunið kom úr á sögu-
legum tíma), farið með Skipstíg, fornri þjóðleið, haldið
austur með norðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á
Baðsvelli. Þar er ætlunin m.a. að kíkja á þjófaslóðir og
hin gömlu sel Grindvíkinga. Þá verður gengið um hið
litskrúðuga lónssvæði að lækningalindinni og endað í
heilsulind.
Gengið í umhverfi Bláa lónsins
Gengið verður um stórbrotið umhverfi
Bláa lónsins annan dag páska.
34 | fréttatíminn | páskaHelgin 24. Mars–28. Mars 2016
Heilsutíminn