Fréttatíminn - 24.03.2016, Blaðsíða 58
NÝTT
MIRACLE MATCH
Farði sem aðlagast þínum húðlit fullkomlega.
Jafnar út misfellur og nærir húðina.
Heilbrigt og náttúrulegt útlit.
Sykurmassaofgnótt á undan-
haldi í brúðartertubakstri
„Mér finnst bara almennt séð
áherslan vera að færast frá því að
terturnar eigi bara að „lúkka“ yfir
í að þær eigi bragðast vel,“ segir
Auður Ögn Árnadóttir, eigandi 17
Sorta, um það nýjasta í brúðkaups-
tertubransanum. „Það er minni
áhugi fyrir þessum ægilegu skreyt-
ingum og sykurmassaofgnótt og
fólk er farið að spá meira í bragðið.
Sykurmassinn er svotil ekkert nema
bragðlaus sykur,“ segir Auður.
Vinsælustu brúðarterturnar
Almennilegar kökur eiga einn-
ig meira upp á pallborðið en áður
fyrr, að sögn Auðar, og fólk sækir
minna í kökur sem eru meira eins
og frauð eða mús. „Fólk vill bara
almennilega köku en kakan getur
verið allavega. Vinsælustu brúðar-
terturnar hjá okkur eru annars-
vegar súkkulaði og saltkaramellu og
hins vegar vanillubotnar með hvítu
súkkulaði, kampavíni og jarðarberj-
um. Sú kaka er rosalega sparileg.“
Mikil kúnst að gera nakta köku
Naktar kökur eru að koma mjög
sterkar inn en þeim má lýsa sem
sykurmassakökum – án sykur-
massans. „Það er raunar miklu
erfiðara að gera nöktu kökurnar
Útlitið er að víkja
fyrir bragðinu
Brúðhjónin Katrín Þóra Jóhannes-
dóttir og Þórir Már Björgúlfsson skera
bollakökubrúðartertu frá 17 Sortum.
Naktar kökur eru eitt af því
heitasta í dag. Þær eru einfaldar
en hráefnin verða að vera 100%.
Fersk ber eiga alltaf upp á pall-
borðið.v
Bollakökurnar í 17 sortum hafa vakið lukku.
því þú hefur ekkert til að fela þig
bak við. Þær eru svo einfaldar og
hráefnin verða að vera 100% og
það þarf að hafa hraðar hendur.
Sykurmassaterturnar eru svo vel
einangraðar og loftþéttar en þegar
sykurmassanum er sleppt er hætta
á að hún þorni. Það þarf að passa
vel upp á hlutfall krems og köku
og að kakan sé ekki of þurr eða of
blaut,“ segir Auður.
Bollakökubrúðartertur
Auður segir 17 Sortir hafa komið
inn á markaðinn til þess að vera
öðruvísi en bakaríin og mikil
áhersla sé til að mynda á vel gerðar
og öðruvísi bollakökur hjá þeim.
„Margir eiga sér eftirlætis köku hjá
okkur og biðja um hana í bolla-
kökuformi. Það var svo mikil eftir-
spurn eftir bollakökum í brúðkaup
að við fluttum inn stand sem tekur
margar hæðir af bollakökum. Efst
er síðan lítil terta sem brúðhjónin
skera og hún dugir fyrir háborðið
og svo er ein bollakaka á mann.
Þetta myndar brúðartertu þó að
óhefðbundin sé,“ segir Auður og
bætir við að með þessu sé hægt
að koma til móts við mismunandi
smekk gesta og kaupa kannski 3-4
týpur af bollakökum.
Bara konur
Auður er með tvo bakara í vinnu,
þær Írisi Björk Óskarsdóttur og
Rakel Hjartardóttur. Báðar eru þær
nýútskrifaðar í iðninni. „Ég vildi
ekki fá konditormeistara til mín því
þeir gera oftar kökur sem eru meira
eins og eftirréttir. Ég var svo heppin
að fá þessar öflugu stelpur til mín í
vinnu. Það eru reyndar bara konur
sem vinna hér, bæði í framleiðslu,
þetta er bara „girl power“ alla leið.“
Mynd | Unnur Ósk Kristinsdóttir
Auður Árnadóttir, eigandi 17 Sorta, segir fólk í dag vilja
almennilega bragðgóða köku í stað sykurmassaofgnótt-
arinnar sem hefur verið ríkjandi í mörg ár.
Mynd | Hari
6 | fréttatíminn | páskaHelgin 24. mars–28. mars 2016
Brúðkaup AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is