Fréttatíminn - 24.03.2016, Page 60
Fagnaðu stóra
deginum í Hörpu
Fáðu tilboð: veislur@harpa.is eða 528 5070
Við sjáum um að útfæra brúðkaupsveisluna með þér, eins og þú vilt hafa hana.
Úrvals aðstaða, glæsilegir salir og hagstætt verð — og útsýnið er innifalið.
Veislustjórn er ansi mikil-
vægur hlekkur í því að skapa
góða stemningu í brúð-
kaupsveislunni. Veislustjór-
inn verður að halda vel um
taumana til þess að veislan
gangi smurt og hnökralaust
fyrir sig. Hér eru nokkur
atriði sem stuðla að vel
heppnaðri veislu.
Ef brúðhjónin fara í mynda-
töku áður en þau mæta í
veisluna þá er gott að vera
búinn að fara yfir praktísk
atriði þegar þau mæta. Til dæmis
varðandi mat og drykk, skemmtiat-
riði og almennan framgang veisl-
unnar; til dæmis hvort það verður
vinsælt að fara í „kossaleikinn“
(klingt í glösum og brúðhjón fara
upp á stól að kyssast – ekki öll brúð-
hjón nenna þessu, veislustjórinn
verður að lesa í aðstæður).
Munið að skála reglulega. Það
léttir stemninguna og brýtur
upp veisluna.
Sumum gæti þótt það snilldarhug-
mynd að raða á borð ókunnugu
fólki og blanda saman hópum. Það
gæti verið sniðugt ef á gestalistan-
um eru aðallega opnar týpur sem
fíla ögrandi aðstæður en veislu-
stjórinn ætti þó að undirstinga
það við brúðhjónin að raða saman
fólki sem þekkist. Þannig er hægt
að losna við alls konar vandræða-
legheit og pínlegar samræður og
fólk getur notið kvöldsins betur.
Látið mælendaskrá lokast á
einhverjum tímapunkti, það
gengur ekki að fólk sé að koma
frameftir öllu kvöldi og kveða
sér hljóðs – eftir því sem líður á
verða ræðurnar innihaldsrýr-
ari og leiðinlegra að sitja undir
þeim – þó að sá/sú sem mælir sé
ekki endilega sammála því.
Passið að fólk tali ekki of lengi. Haf-
ið einhvern hámarkstíma á ræðum.
Veislustjóri verður að hafa
kjark til þess að stoppa af með
lagni atriði eða ræður sem
eru komnar á hálan ís. Það
er ákveðin list að skynja það
hvaða áhrif orð eða gjörðir
eru að hafa á stemninguna og
þá aðallega brúðhjónin. Það
verður að vera hægt að gera
góðlátlegt grín en meiðandi eða
særandi orð eða upprifjun á
leiðinlegum atvikum eiga ekki
heima í brúðkaupsveislum.
Segið gestum að háborðið sé ekki
heilagt – það má og á að fara til
hjónanna, skála við þau og segja
þeim brandara.
Látið dagskrána hefjast undir
borðhaldi og stefnið að því
að henni sé lokið á ákveðnum
tímapunkti. Það er engum
greiði gerður með því að láta
dagskrána teygjast fram eftir
öllu, athyglin er farin út í veður
og vind og fólk þreytist undir
löngu borðhaldi. Þegar nær
dregur miðnætti vill fólk bara
fara á flakk og byrja að spjalla
eða dansa og brúðhjónin vilja
smávegis „frjálsan tíma“ áður
en þau halda út í brúðkaups-
nóttina.
Ef það koma upp vandamál (ofur-
ölvi frænka, eldur í servíettu eða
stíflað klósett, t.d.) passið þá að
brúðhjónin verði ekki vör við það.
Fáið einhvern öflugan og lausna-
miðaðan með ykkur í lið til þess að
leysa vandamálið á eins skilvirkan
hátt og hægt er.
Margir sem eru beðnir um að
vera veislustjórar halda að þeir
hafi verið ráðnir í uppistand.
Það er ekki raunin, veislustjór-
inn virkar meira eins og leik-
stjóri – hann á að draga það
besta fram í gestunum og passa
að brúðhjónin njóti sín og veisl-
unnar sinnar. Ef hann er fynd-
inn í ofanálag er það bara plús.
Haltu vel utan
um veisluna
Lausar fléttur og nátt-
úrulegir liðir eru það
sem flestar brúðir
sækjast eftir í dag.
Frjálslegar áherslur í hárgreiðslum
Það er af sem áður var að brúðir skarti
stífum, ofspreyjuðum uppgreiðslum og
slöngulokkum á brúðkaupsdaginn. Í dag
snýst allt um náttúrulega og frjálslega liði,
lausar fléttur og hippalega blómakransa.
Þessi tíska fylgir tíðaranda sem margir
fagna því að honum fylgir meira frelsi og
fjölbreytni en lengi hefur tíðkast.
Fallegur
blóma-
krans með
lifandi
blómum
getur gert
ótrúlega
mikið fyrir
einfalda
greiðslu.
8 | fréttatíminn | páskaHelgin 24. mars–28. mars 2016
Brúðkaup AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is