Fréttatíminn - 24.03.2016, Síða 62
Helga Kristjáns er ein af
færustu förðunarfræðingum
landsins og hefur farðað fyrir
og stíliserað ótal myndatökur.
Þegar hún giftist ástinni sinni
kviknaði óbilandi áhugi á
brúðkaupum og hefur hún
farðað fjöldann allan af
brúðum síðan.
„Við ákváðum að gifta okkur ári
eftir að hann bað mín og þess
vegna var nægur tími til undir-
búnings. Ég kom út úr skápnum
sem alger „brúðkaupsperri“ því
síðan hef ég elskað allt tengt brúð-
kaupum og væri til í að skipuleggja
þau á hverju ári,“ segir förðunar-
fræðingurinn, stílistinn og Viku-
blaðamaðurinn Helga Kristjáns-
dóttir sem gekk í hið heilaga með
Magnúsi Þór Ásgeirssyni markaðs-
stjóra einn fagran sumardag fyrir
þremur árum. „Dagurinn okkar var
yndislegur í alla staði og ég hefði
engu viljað breyta. Ég myndi alltaf
ráðleggja fólki að missa sig ekki of
mikið í smáatriðin í brúðkaupsund-
irbúningnum. Hafa gaman af þessu
og muna hvað það er sem skiptir í
raun og veru máli.“
Giftust á „heimaslóðum“
Eftir töluverðar vangaveltur ákváðu
Helga og Magnús að láta pússa sig
saman í Hallgrímskirkju. „Upp-
runalega langaði okkur að giftast
á suðrænum slóðum en gerðum
okkur fljótt grein fyrir því að það er
hægara sagt en gert. Svo vorum við
lengi vel að skoða litlar sveitakirkjur
en enduðum á „heimaslóðum“ þar
sem við bæði erum alin upp, í Þing-
holtunum. Veislan var svo haldin
niðri í bæ í afslöppuðum anda, í sal
með útsýni út á höfn. Við ákváðum
að vera með spænska smárétti frá
Tapas barnum og það tókst mjög
vel,“ segir Helga. Þriggja rétta borð-
hald heillaði ekki og því varð þessi
afslappaði stíll fyrir valinu.
Eins og fyrr sagði kviknaði brenn-
andi áhugi hjá Helgu á brúðkaupum
fljótlega eftir að hún hóf undir-
búning á sínu eigin. „Það verður að
segjast eins og er að ég varð svolítið
mikið heltekin og varði góðum tíma
í að skoða hugmyndir á Pinterest.
En ég gerði mér samt grein fyrir því
að öll smáatriði skiptu ekki öllu;
aðalmálið væri að skemmta sér vel,
hafa nánasta fólkið sitt samankom-
ið, góðan mat, góða tónlist og ef við
kæmum gift út úr deginum hafði
allt farið á besta veg.“
Spöngin vakti mikla athygli
Kjóllinn hennar Helgu var hönnun
Veru Wang, „White By Vera Wang“.
„Ég var ekki með neinar fastmót-
aðar hugmyndir um kjólinn. Mér
fannst ótrúlega gaman að skoða
allskonar stíla en fann fljótt í hvaða
átt ég vildi fara. Ég hef alltaf verið
hrifin af svona grísku sniði eins
og er á kjólnum og fannst líklegt
að sniðið á honum færi vaxtarlagi
mínu vel. Ég tók hinsvegar risastór-
an séns þar sem ég pantaði kjólinn á
netinu en pabbi minn var svo góður
að koma með hann heim úr einni
Ameríkuferðinni. Hann endaði
með að smellpassa og ég var virki-
lega ánægð með hann,“ segir Helga.
Magnús klæddist afslöppuðum
Dolce Gabbana jakkafötum. „Ætli
upprunalega hugmyndin um suð-
rænt brúðkaup hafi ekki haft svolítil
áhrif á fatavalið og afslappaða stíl-
inn. Við vorum bæði allavega strax
sammála um að við vildum alls ekk-
ert of stíft eða hefðbundið.“
Hárgreiðsla Helgu var áreynslu-
laus og frjálsleg en spöngin vakti
mikla athygli. „Þegar ég rakst á
þessa tilteknu spöng var það ást við
fyrstu sýn. Síðan hefur hún birst á
forsíðu brúðkaupsblaðs Vikunnar
og nokkrar konur komið til mín og
viljað leigja hana af mér!“
Endaði á því að mála sig sjálf
Starfandi sem förðunarfræðingur
og stílisti ætlaði Helga að gefa sjálfri
sér frí á brúðkaupsdaginn og fór í
prufuförðun til förðunarfræðings.
„Mig langaði að vera „stikkfrí“ á
brúðkaupsdaginn en það endaði
hins vegar á því að ég farðaði ekki
bara sjálfa mig, heldur líka mömmu
mína og stjúpdóttur,“ segir Helga
og hlær. „Maður þekkir sitt and-
lit og sinn stíl best. Ég fór ekkert
út fyrir þægindarammann með
brúðarförðunina, ég hélt mig við
það sem ég vissi að klæddi mig vel.
Lúkkið endaði sem brúnt „smokey“
með ferskjulituðum vörum.“
Smáatriðin
skipta ekki
máli
Helga og Magnús eiga samtals fimm börn; Magneu Ástu,
Ásgeir Snæ, Júlíu Heiði, Jórunni Ósk og Birtu Maríu sem
kom undir stuttu eftir brúðkaupið.
Million Dollar Tan
Ilmar vel - léttur og ferskur ilmur
Sérð litinn strax - Liturinn kemur strax í ljós og verður betri eftir sturtubað
Endist lengi - allt að 6-12 daga
Náttúrulegir litir - inniheldur hæstu prósentu af DHA
Þornar fljótt - á innan við 5 mínútum getur þú klætt þig aftur
Nuddast ekki af - mörg brúnkukrem nuddast auðveldlega af, en ekki MDT
Algjörlega skaðlaust - Brúnka án skaðlegra UV sólargeisla og enginn bruni
Inniheldur lífrænt DHA - virka efnið í brúnkusprayinu sem gefur litinn
Eitt það
skemmtilegasta
sem ég veit er að
vera með í brúð-
kaupsundirbúningi
og gera konur
hrikalega fal-
legar og ljómandi
fyrir stóra daginn
þeirra.
Við ákváðum að biðja Braga Þór
Jósefsson um að mynda okkur, því ég
hafði unnið með honum í fjölmörg
ár og veit fyrir hvað hann stendur.
Hann er einn af okkar allra bestu
ljósmyndurum, þægilegur í nær-
veru og alger fagmaður. Hann vissi
nákvæmlega að hverju við vorum
að leita og ég mæli með því að fólk
velji vel og hittist og spjalli við við-
komandi ljósmyndara fyrir stóra
daginn. Myndirnar frá deginum eru
dýrmætustu minningarnar.
Myndir | Bragi Þór Jósefsson
Undirbúningur skemmtilegastur
Síðustu ár hefur Helga farðað
margar brúðir en síðasta sumar var
alger sprengja. „Er það bara ég eða
giftu sig bókstaflega allir í fyrra-
sumar,“ spyr Helga og hlær. „Eitt það
skemmtilegasta sem ég veit er að vera
með í brúðkaupsundirbúningi og
gera konur hrikalega fallegar og ljóm-
andi fyrir stóra daginn þeirra. Það er
mikilvægast að konur séu þær sjálfar
á brúðkaupsdaginn, bara besta útgáf-
an af sjálfri sér,“ segir Helga og bætir
við að mikilvægt sé að konur fari í
prufuförðun og séu óhræddar að
segja sína skoðun, hvað þeim líkar og
líkar ekki. „Það er alltaf gott að vera
með einhverja mynd í huga og jafnvel
sýna förðunarfræðingnum mynd af
förðun sem þér þykir falleg, svo þið
séuð að tala sama tungumálið.“
Ekki prófa á brúðkaupsdaginn
Aðspurð um pottþétt ráð þegar förð-
unin er annars vegar segir Helga mik-
ilvægt að konur séu trúar sínum stíl
og séu ekki að prófa eitthvað spánnýtt
þegar kemur að stóra deginum. „Til
dæmis myndi ég ekki mæla með rauð-
um varalit ef það er ekki eitthvað sem
konan er vön að bera. Svo er ýmis-
legt sem gott er að nota á húðina til að
undirbúa hana fyrir farðann og láta
hann endast sem lengst, eins og gott
rakakrem og farðagrunn. Gott er að
hafa með sér hyljara, púður og gloss
eða varalit í töskunni, til að lappa upp
á sig yfir daginn og kvöldið.“
facebook.com/makeupbyhelga
10 | fréttatíminn | páskaHelgin 24. mars–28. mars 2016
Brúðkaup AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is