Fréttatíminn - 24.03.2016, Page 65
Unnið í samstarfi við
Gull og silfur
Sigurður G. Steinþórsson gullsmíðameistari smíðaði sína fyrstu giftingarhringa árið 1970 og ári síðar, 3.
apríl 1971, stofnaði hann Gull og
silfur ásamt fjölskyldu sinni og
hefur hann staðið vaktina allar
götur síðan. Það þýðir að aðeins
nokkrir dagar eru í 45 ára afmæli
fyrirtækisins, sem fyrst var til húsa
við Laugaveg 35 en hefur í rúman
áratug verið í húsi númer 52 við
verslunargötuna góðu. Gull og silfur
hefur verið rekið við góðan orðstír
allan þennan tíma og ávallt lagt
mikla áherslu á smíði giftingar- og
trúlofunahringa.
„Munurinn á okkur og mörgum
öðrum er að við handsmíðum alla
okkar hringa. Það eru margir sem
eru meira og minna í innflutningi.
Allir okkar hringar eru smíðaðir á
staðnum – og þeir eru meira að
segja ódýrari en þessi innfluttu,“
segir Sigurður. „Þessi bransi er að
breytast svo mikið.“
Ábyrgð á þúsundum hjónabanda
Sigurður segir fólk hafa ýmsar
skoðanir á því hvernig það vill hafa
hringana og þeir eru smíðaðir í
öllum stærðum og gerðum. „Við
klæðskerasaumum hringana að
þörfum hvers og eins. Þetta er
svo stór stund í lífi fólks að það er
gaman að geta veitt þessa þjónustu.
Sumir vilja klassíkina í formi og lit
en aðrir eitthvað allt annað og aðra
liti eins og hvítagull, rósagull og
jafnvel silfur. Fólk getur komið með
sínar eigin hugmyndir að hringum
sem við smíðum svo eftir,“ segir
Sigurður sem hefur ásamt öðrum
gullsmiðum Gulls og silfurs að öllum
líkindum smíðað fleiri trúlofunar- og
giftingarhringa en nokkur annar hér
á landi. „Ætli við berum ekki ábyrgð
á nokkur þúsund hjónaböndum
gegnum tíðina, við erum búin að
vera svo lengi í bransanum.“
Snýst um virðingu fyrir faginu
Sigurður leggur ríka áherslu á að
Gull og silfur sé fyrst og fremst
íslenskt handverk og íslensk fram-
leiðsla. „Mikið af því sem kallað er
íslensk hönnun og boðin víða til
sölu er framleidd erlendis, svipað og
með prjónavörurnar, sem eru mikið
í umræðunni. Það er alltaf verið að
reyna að finna ódýrt vinnuafl en
við tökum ekki þátt í því. Svo snýst
þetta líka um að bera virðingu fyrir
okkur og faginu. 95% af öllum þeim
vörum sem til sölu er í versluninni
er handsmíðuð vara á okkar eigin
gullsmíðaverkstæði og mjög oft
bara eitt eintak af hverju. Sumum
finnst það kannski tímaskekkja en
svoleiðis viljum við hafa það.“
Á vefsíðu Gulls og silfurs,
gullogsilfur.is, er mikið úrval af
fallegum trúlofunar- og giftingar-
hringjum. Vikuna 1. apríl til og
með 9. apríl verður 15% afsláttur
af trúlofunarhringum og 25% af
allri annarri vöru í tilefni af 45 ára
afmæli fyrirtækisins.
„Munurinn á okkur og
mörgum öðrum er að við
handsmíðum alla okkar
hringa. Það eru margir sem
eru meira og minna í inn-
flutningi.“
Handsmíðaðir hringar í 45 ár
Íslensk skartgripasmíði af betri gerðinni hjá Gull og silfur við Laugaveg
Klassískir gulagullshringar eru aðalsmerki Gulls og silfurs.
Sigurður hefur staðið vaktina ásamt fjölskyldu
sinni í 45 ár í Gulli og silfri.
Mynd | Rut
Fallegar gjafir fyrir lifandi heimili
Við hjá Húsgagnahöllinni bjóðum upp á mikið úrval gjafavöru fyrir stóru
stundirnar í lífinu. Okkar vinsælu brúðagjafalistar auðvelda vinum og
fjölskyldu að finna gjöfina sem ykkur langar sem mest í. Hvort sem um er
að ræða vinsælu matarstellin eða stærri gjafir sem ykkur langar að safna.
Skráið ykkur á gjafalista á husgagnahollin.is Öll brúðhjón sem skrá sig fá
veglega gjöf.
Það er okkur ánægja að auðvelda ykkur valið.
Reykjavík
Bíldshöfða 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
|13fréttatíminn | pÁSkAHeLGin 24. MArS–28. MArS 2016
Kynningar | Brúðkaup AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is