Fréttatíminn - 24.03.2016, Side 66
samkvæmi og að ég verði komin
með rauðvínsbletti í kjólinn minn
áður en fyrstu gestirnir fara. Þetta
á að vera gaman, rífandi gott tjútt
sem endar á bestu timburmönn-
um í heimi – þú veist, gjafirnar og
allt það.
Hvernig er staðan; kalt mat?
Á þessum tímapunkti mætti alveg
ganga betur. Satt best að segja.
Við eyddum heilli viku í það að
hanna boðskortin okkar í febrúar
sem ég ætlaði svo að láta prenta
núna í mars þegar ég var búin taka
lokasprettinn á gestalistanum.
Ekki það að ég sé ekki að bæta við
hann og henda út á hverjum ein-
asta degi. Ferlega erfitt mál þessir
gestalistar.
En vikuvinna, vænn slatti af
rifrildum og almennu volæði við
fór svolítið fyrir bí þegar senda átti
boðskortin í prentun og ég fann
hvergi kortin inni á vefsíðunni sem
við höfðum notast við. Enda hafði
mannvitsbrekkan, ég, aldrei vistað
bannsett kortin. Og þau með öllu
horfin. Ég er meira að segja búin
að hringja háskælandi eitthvert til
útlanda og ekkert hægt að gera.
Nema búa til ný boðskort. Eða
bjóða fólki símleiðis og eyða meiri
pening í áfengar veigar.
Áður en við ákváðum að græja
boðskortin á þennan hátt fór ég
einmitt og eyddi formúu í fínan
pappír, límmiða og fokdýra penna
af því ég ætlaði að vera frumleg og
ægilega persónuleg og handskrifa
boðskortin. Ég skrifaði tvö stykki.
Gafst upp og tróð öllu draslinu
ofan í skúffu. Þetta var svona
fyrsta alvöru bakslagið hvað fjár-
hagsáætlunina varðar...
Guðrún Veiga hatar Excel en elskar skipulag. Hún ætlar að
ganga í heilagt hjónaband í sumar en undirbúningurinn
hefur litast af misgáfulegu kroti í tugi minnisbóka,
nokkrum tárum yfir glötuðu boðskorti og fjárhagsáætlun
sem mögulega er löngu sprungin. Við fengum að gægjast
bak við tjöldin í skipulagðasta en jafnframt kaotískasta
brúðkaupsundirbúningi sem sögur fara af.
Hvernig undirbýr skipulagsfíkill
með kvíðaröskun brúðkaup?
Sjá lengri útgáfu af
dagbók skipulagsfíkils
á frettatíminn.is
Hvenær ætli brúðkaupsundirbún-
ingurinn hafi byrjað – þegar litið
er um öxl? Tja, svona um það bil
sex mínútum eftir að kærastinn
féll í stafi yfir rómantísku bónorði
mínu. Sem átti sér stað þegar hann
var að skipta um rúmföt. Og ég
áttaði mig skyndilega á að kona
lætur ekki mann sem skiptir um
rúmföt ganga sér úr greipum.
Nú, um leið og vilyrði fyrir brúð-
kaupi var fengið fleygði ég mér í
fangið á honum, umvafin tandur-
hreinum rúmfötum auðvitað og
reif upp tölvuna með látum. Til
þess að sýna honum sko allar hug-
myndirnar sem ég er búin að vista
á Pinterest. Síðustu fimm árin eða,
þú veist... sjö. Það var þó nokkrum
klukkutímum eytt í bólinu þann
daginn. Þar sem ég sýndi honum
mínar hugmyndir. Og skaut niður
hans inn á milli.
Kannski ég grilli bara pylsur...
Það er margt sem þarf að huga
að, talsvert meira en mig óraði
fyrir – mögulega gæti ég verið að
flækja ferlið með því að væflast um
með fulla tösku af minnisbókum
og handskrifa hvert einasta atriði
í stað þess að setja hlutina upp í
stílhreint og einfalt Excel-skjal.
Ég hata Excel. Minnisbækur eru
raunar ákveðinn útgjaldaliður á
fjárhagsáætlun þessa ágæta brúð-
kaups. Svo er ég meðlimur í hópi
á Facebook sem heitir Brúðkaups-
hugmyndir og þegar ég voga mér
þangað inn fæ ég reglulega snert
af taugaáfalli. Ég er að fara að gifta
mig í ágúst en fólk sem ætlar að
gifta sig í september 2019 virðist
vera komið lengra en ég í ferlinu.
Ég íhuga ítrekað að fleygja öllum
mínum bókum í ruslið, hóa í
sýslumann og grilla svo pylsur í
kjölfarið.
Svo er það fjárhagsáætlunin
...fjárhagsáætlun sem er auð vitað
fyrir löngu farin úr skorðum,
svona af því við verðandi hjónin
höfum mjög ólíkar hugmyndir um
hvað telst spreð og hvað telst nauð-
syn. Það urðu nánast sambúðarslit
um daginn þegar brúðguminn reif
fram ævaforna spariskó, sem mig
grunar að hann hafi fermst í, og
þóttist ætla að leiða mig inn í lífið
með þá á löppunum. Að hans mati
(sem er augljóslega mjög brenglað)
þá er auðvitað bölvað bruðl að fjár-
festa í sérstökum skóbúnaði fyrir
eitthvert brúðkaup.
Ég fór mjög blíðlega yfir þessi
mál með honum og kom honum í
skilning um að hann gengi ekki í
hjónaband á skóm sem hann hefur
dansað í á Austur. Á meðan bað ég
auðvitað auðmjúklega og í hljóði
til Guðs að hann kæmist aldrei að
því hvað brúðarskórnir sem ég hef
augastað á kosta.
Verður rífandi gott tjútt
Ég hef grenjað yfir ófáum brúð-
kaupskvikmyndum í gegnum
tíðina og haft hinar ýmsu hug-
myndir um hvernig mitt brúðkaup
á að vera síðan ég var krakki. En
með aldrinum hafa áhyggjurnar
af ásýnd tertunnar farið minnk-
andi og áhyggjur af áfengismagni
vaxandi. Mér er mikið í mun að
þetta verði húrrandi skemmtilegt
Hvenær ætli brúð-
kaupsundirbúningurinn
hafi byrjað ... svona um
það bil sex mínútum eftir
að kærastinn féll í stafi
yfir rómantísku bónorði
mínu. Sem átti sér stað
þegar hann var að skipta
um rúmföt. Og ég áttaði
mig skyndilega á að kona
lætur ekki mann sem
skiptir um rúmföt ganga
sér úr greipum.
Guðrún Veiga segir að sig hafi ekki órað fyrir því hversu
mörgu þarf að huga að við skipulagningu eigins brúðkaups.
Myndir | Hari
Ein af ótalmörgum skipulagsbókum Guðrúnar Veigu.
14 | fréttatíminn | páskaHelgin 24. mars–28. mars 2016
Brúðkaup