Fréttatíminn - 24.03.2016, Page 67
Unnið í samstarfi við Carat
Carat býður upp á einstaka þjónustu þar sem pör geta hannað sína eigin giftingar-hringa, allt eftir smekk og
efnahag hvers og eins.
Í samstarfi við þýska skartgripa-
framleiðandann Acredo býður
Carat pörum sem eru að velja sér
giftingar- eða trúlofunarhringi ein-
staka þjónustu þar sem þau geta
komið að allri hönnun á stíl og útliti
hringsins. Haukur gullsmíðameistari
í Carat segir þetta verða til þess að
úrvalið sé meira en hefur nokkru
sinni hefur þekkst í þessum geira.
Bylting í áletrunum
Ekki nóg með að hægt sé að hanna
útlit hringsins heldur hefur einnig
orðið bylting í áletrunum. „Allar
áletranir eru leiserskornar og þannig
getum við boðið upp á mikið úrval
og allt sem hugurinn girnist í þeim
efnum. Fólk getur skrifað eitthvað
sjálft niður og við skönnum það
inn og leiserskerum það í hringinn.
Sumir hafa sett fingraför og það er
hægt að setja hvað sem er,“ segir
Haukur og rifjar upp eina skemmti-
lega áletrun sem var þannig að kona
kyssti blað og kossinn var skann-
aður, minnkaður og skorinn innan
í hring. „Það er hugmyndaflugið
sem ræður hér, þetta er virkilega
skemmtilegt.“
Stórgott úrval
Haukur segir fólk vera opið fyrir
alls konar nýjungum og það sé ekki
endilega vegna þess að smekkur
fólks sé að breytast heldur ein-
faldlega vegna þess að úrvalið í
dag sé miklum mun meira en það
var fyrir örfáum árum. „Það er
bara svo mikið í boði. Við erum að
bjóða hringana í öllum tegundum
eðalmálma, einlita, tvílita og þrí-
lita. Rósagullið er til dæmis að
koma sterkt inn núna. Það er ekki
ósvipað rauðagullinu en þó með
mun mýkri rauðum blæ, ekki eins
sterkum koparlit og rauðagullið.
Svo koma ýmis munstur einnig inn
líka og mjög margir velja demanta,
einn eða fleiri, í dömuhringinn.
Það virðist vera meiri stemning
fyrir þessum hringum núna,“ segir
Haukur en bætir við að þessir hefð-
bundnu einföldu hringar standi þó
alltaf fyrir sínu og það sé alltaf gott
úrval af þeim líka.
Í Carat er lögð áhersla á pers-
ónulega þjónustu í afslöppuðu
andrúmslofti, undirstrikar Haukur.
„Við hvetjum fólk til þess að taka
sér tíma og koma til okkar, skoða
úrvalið og fá ráðgjöf. Fá sér kaffi-
sopa eða kampavínsdreitil og taka
ákvörðun í góðu tómi.“
Draumahringurinn er handan
við hornið hjá Carat
Haukur ásamt Rakel Mist, dóttur sinni, sem stendur vaktina í Carat við hlið föður síns.
Úrvalið í Carat er með því mesta sem þekkist hér á landi.
„Við hvetjum fólk til þess að taka sér tíma og koma til
okkar, skoða úrvalið og fá ráðgjöf. Fá sér kaffisopa eða
kampavínsdreitil og taka ákvörðun í góðu tómi.“
Allar áletranir eru leiser-
skornar og þannig getum við
boðið upp á mikið úrval og
allt sem hugurinn girnist í
þeim efnum.
Hvernig berðu þig að?
Farðu inn á carat.is og veldu „trúlofunar- og giftingarhringir“. Þá kemur upp
gluggi þar sem þú getur prófað þig áfram, valið breidd hringanna og lögun,
þykkt og stærð. Liti að sjálfsögðu; hvítagull, gulagull, rauðagull, rósagull eða
platínu. Einnig er hægt að velja steina – eða sleppa þeim og einnig áferð,
hvort hringarnir eigi að vera mattir eða í glans. Þegar verið er að hanna hring-
inn er hægt að fylgjast með verðinu allan tímann, það breytist jafnharðan
og breytingar eru gerðar. Athugið að í verslun Carat við Hátún eru á annað
hundruð hringapör, demantshringir, demantsbönd og demantsskart til sýnis
og mátunar. Við bjóðum ykkur velkomin í Carat og við aðstoðum ykkur að
finna draumahringana.
CARAT
Haukur gullsmiður, Hátún 6A
S: 577 7740 | www.carat.is
|15fRéTTATíminn | páSkAHElgin 24. mARS–28. mARS 2016
Kynningar | Brúðkaup AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is