Læknablaðið - 01.12.2016, Síða 4
532 LÆKNAblaðið 2016/102
F R Æ Ð I G R E I N A R
12. tölublað, 102. árgangur, 2016
535
Engilbert Sigurðsson
Kaflaskil
Formenn LÍ og LR hafa valið
nýjan ritstjóra og ábyrgðar-
mann og var tillaga þeirra um
Magnús Gottfreðsson sam-
þykkt á fundi stjórnar LÍ hinn
7. nóvember síðastliðinn.
538
Hörður Már Kolbeinsson, Hildur Harðardóttir, Guðjón Birgisson, Páll Helgi Möller
Gallsteinasjúkdómar hjá þunguðum konum
á Landspítala 1990-2010
Áhrif hormóna á meðgöngu valda því að gallsteinar eru algengari meðal þung-
aðra kvenna en annarra kvenna. Prógesterón dregur úr hreyfingum gallblöðru og
estrógen eykur kólesterólmagn í galli. Saman auka þau líkurnar á myndun gallsteina.
Talið er að allt að 12% þungaðra kvenna hafi gallsteina hverju sinni og að um 0,8%
þeirra geti þurft að leggjast inn á spítala vegna gallsteinasjúkdóms.
545
Helga Björk Brynjarsdóttir , Inga Hlíf Melvinsdóttir, Tómas Guðbjartsson,
Arnar Geirsson
Árangur aðgerða við ósæðargúlp í rishluta ósæðar
á Íslandi 2000-2014
Ósæðargúlpur í brjóstholshluta ósæðar (thoracic aortic aneurysm) er tiltölulega sjald-
gæfur sjúkdómur þar sem þvermál ósæðar er aukið um að minnsta kosti 50% miðað
við eðlilega vídd ósæðar. Nýgengi samkvæmt erlendum rannsóknum er talið vera
á bilinu 6-10 tilfelli/100.000/ári. Sú staðreynd að flestir sjúklingar eru einkennalausir
gerir nákvæmt mat á nýgengi erfiðara.
551
Árni Örnólfsson, Einar Hjaltested, Ólöf Birna Margrétardóttir, Hannes Petersen
Svimi á bráðamóttöku – vantar á okkur klíníska nefið?
Alls var 171 tilfelli skráð með svima sem aðalkvörtun á fjögurra mánaða tímabili.
Þetta er um það bil 4% af öllum komum á slysa- og bráðadeild á tímabilinu. Í tveimur
tilfellum var ástæða komu ranglega skráð og í 6 tilfellum fundust engar læknanótur í
Sögukerfi vegna komunnar og eru þessi 8 tilfelli ekki tekin með í útreikningum. Niður-
stöður byggjast því á 163 komum á slysa- og bráðadeild.
Konur voru í meirihluta, 102 tilfelli (63%). Meðalaldur kvenna var 54 (± 20) ár og með-
alaldur karla var 50 (± 21) ár.
537
Magnús Karl Magnússon
Læknaskóli í 140 ár
16. desember næstkomandi
verður þessara tímamóta
minnst með málþingi og
móttöku í Háskóla Íslands
og eru læknar, starfsmenn
deildarinnar og aðrir vel-
unnarar hvattir til að mæta.
L E I Ð A R A R
Læknadagar í Hörpu
16. janúar til 20. janúar