Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2016, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 01.03.2016, Blaðsíða 7
LÆKNAblaðið 2016/102 115 R I T S T J Ó R N A R G R E I Nhttp://dx.doi.org/ 10.17992/lbl.2016.03.67 Smitsjúkdómar hafa löngum þótt hin mesta heilbrigðisvá og hafa í aldanna rás valdið miklum usla bæði hér á landi og erlendis. Sem dæmi má nefna að talið er að um 40% íbúa Evrópu hafi látist af völdum svarta dauða á árunum 541-542 og um helmingur á árunum 1346-1350. Á Íslandi er talið að allt að 75% landsmanna hafi dáið úr svarta dauða á fyrri hluta 15. aldar og rúmlega fjórðungur þjóðarinnar úr bólusótt á árun- um 1707-1708. Með auknu hreinlæti, betra næringarástandi og tilkomu sýklalyfja og bóluefna var hægt að kveða þessa sjúkdóma niður að mestu og var svo komið á seinni hluta síðustu aldar að talið var að smitsjúk- dómar væru ekki lengur meiriháttar ógn við heilsu manna. Á 7. áratug síðustu aldar lýsti landlæknir Bandaríkjanna, William H. Stewart, því yfir að búið væri að sigrast á þeirri hættu sem samfélaginu stafaði af smitsjúkdómum og taldi tímabært að snúa sér að mikilvægari ógnum sem stöfuðu af langvinnum sjúkdómum. Þessi spá hefur hins vegar ekki ræst eins dæmi af faröldr- um ýmissa sýkinga sýna, eins og til dæmis HIV sem leitt hefur rúmlega 30 milljónir einstaklinga til dauða á síðustu 55 árum. Á seinni árum hafa hins vegar nýir og áður óþekktir sýklar skotið upp kollinum og valdið alvarlegum faröldrum í heim- inum, eins og SARS (severe acute respiratory syndrome), MERS-CoV (Middle East respira- tory syndrome coronavirus) og Ebola. Allar þessar veirur eiga það sameiginlegt að hafa smitast upphaflega frá dýrum í menn en síðan á milli manna. Síðasti nýi veirufaraldurinn sem skotið hefur upp kollinum á síðustu einu til tveim- ur árum, einkum í Mið- og Suður-Ameríku, er af völdum Zíkaveiru. Zíkaveira telst til svokallaðra flaviveira og berst á milli manna með ákveðinni tegund moskító- flugu, Aedes aegypti. Veiran fannst fyrst í öpum í Úganda á árinu 1947 og var fyrst greind í mönnum 1952 í nokkrum löndum Afríku. Í fyrstu olli Zíkaveiran litlum far- öldrum í Suðaustur-Asíu (einkum Tælandi) og Afríku en á síðustu árum hafa fréttir af faröldrum af hennar völdum einkum borist frá Mið- og Suður-Ameríku, eyjum Karabíska hafsins og Frönsku Pólýnesíu. Frá því snemma árs 2015 hefur Zíkaveiran hins vegar einkum greinst í Brasilíu og nálægum löndum en ekki eru neinar vís- bendingar um smit í Evrópu. Um 80% einstaklinga sem sýkjast af Zíkaveiru eru einkennalausir. Algengustu einkennin eru hins vegar hiti, útbrot, lið- og vöðvaverkir og tárubólga. Sjaldgæfar en alvarlegar afleiðingar sýkingarinnar virð- ast hins vegar geta verið heilkenni bráðrar fjöltaugabólgu (Guillain-Barré syndrome) og vansköpun á heila hjá fóstrum, sem leitt getur til höfuðsmæðar (microcephaly). Tengsl höfuðsmæðar við sýkingu af völdum Zíkaveiru var fyrst lýst í Brasilíu á seinni hluta árs 2015 og er talið að um fimmtánföld aukning sé á þessum van- skapnaði á ýmsum svæðum landsins. Þó ekki hafi verið sýnt óyggjandi fram á or- sakasamband á milli Zíkaveiru og höfuð- smæðar, eru faraldsfræðileg tengsl svo sterk að líklegt er að um orsakasamband sé að ræða. Helsta smitleið Zíkaveiru, er eins og áður hefur komið fram, með móskító- flugum en í þremur tilfellum er talið að veiran hafi smitast með kynmökum enda finnst veiran í sæði í allt að 3-4 vikur eftir sýkingu. Einnig hefur Zíkaveira fundist í blóði einkennalausra einstaklinga og því talið að hún geti hugsanlega smitast með blóðgjöf þó ekki hafi verið sýnt fram á slíkt. Engin lyfjameðferð er í boði gegn veirunni og ekkert bóluefni tiltækt. Er hætta á útbreiðslu Zíkaveiru á Ís- landi? Litlar sem engar líkur eru á að Zíka- veira nái útbreiðslu hér á landi þar sem hún smitast nánast eingöngu milli manna með moskítóflugum og þær finnast ekki hér á landi. Hins vegar geta einstaklingar sem verið hafa á ferðalagi á svæðum þar sem Zíkaveira er útbreidd smitast þar og síðan greinst hér landi. Sóttvarnalæknir hefur hvatt alla sem ferðast á svæðum Mið- og Suður-Ameríku þar sem Zíkaveira er útbreidd að nota við- eigandi varnir gegn moskítóflugum en auk þess eru barnshafandi konur hvattar til ferðast ekki til þessara svæða að nauðsynja- lausu (sjá leiðbeiningar sóttvarnalæknis á landlaeknir.is). Þar sem veiran hefur fundist í sæði í allt að fjórar vikur eftir sýkingu eru karlmenn hvattir til nota smokka í allt að fjórar vikur eftir heimkomu, burtséð frá því hvort þeir hafi veikst eða ekki. Í leiðbeiningum sóttvarnalæknis má einnig finna ráðleggingar um eftirlit og rannsókn- ir á þunguðum konum sem ferðast hafa í Mið- og Suður-Ameríku en ekki er ástæða til að rannsaka aðra einstaklinga. En erum við að horfa á nýja tíma smit- sjúkdóma? Fyllsta ástæða er til að ætla að svo geti verið. Með nánari samskiptum manna við dýr á afskekktum svæðum, breytingu á loftslagi og meiri ferðalögum fólks megum við búast við að sjá nýjar og óþekktar sýkingar hjá mönnum. Sýkingar sem áður voru einungis taldar valda sýk- ingum hjá dýrum. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir Embætti landlæknis thorolfur@landlaeknir.is Zika virus – a relatively new human pathogen Þórólfur Guðnason MD, PhD / Chief Epidemiologist Centre for Health Security and Communicable Disease Control / Directorate of Health Barónsstíg 47 101 Reykjavík Zíkaveira – nýlegur vágestur í mönnum Ein tafla á dag Varnar heilablóðfalli og segareki að lágmarki til jafns við warfarín Sambærileg blæðingarhætta og í meðferð með warfaríni en marktækt færri innankúpublæðingar og dauðsföll vegna blæðinga Að taka lyf einu sinni á dag við hjarta- og æðasjúkdómum eykur líkur á því að lyfið sé leyst út af sjúklingi eykur líkur á því að sjúklingur taki lyfið eykur líkur á því að lyfið sé tekið á réttum tíma samanborið við lyf sem taka þarf oftar ♦♦ ♦♦ ♦♦ Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto. 2. Patel MR et al. N Engl J Med 2011; 365:883-891. 3. Bae JP et al. Am J Manag Care 2012; 18:139-146. 4. Coleman CI et al. Curr Med Res Opin 2012; 28:669-680. Fyrsti beini hemillinn á storkuþátt Xa til inntöku 3 2 2 *1 4 4 L.IS.11.2014.0086 Öryggisupplýsingar: Eins og almennt gildir um segavarnarlyf og blóðflöguhemla verður að nota rivaroxaban með varúð hjá sjúklingum með aukna blæðingarhættu.1 Algengar aukaverkanir ( ≥1/100 til <1/10): Blæðingar: Í tannholdi, margúll, flekkblæðing, blóðnasir, blóðhósti, blæðing í auga, blæðingar í húð og undirhúð, blæðing eftir aðgerðir, blæðing í meltingarvegi, blæðing í þvag- og kynfærum. Aðrar: Blóðleysi, verkir í meltingarfærum og kvið, meltingartruflanir, ógleði, harðlífi, niðurgangur, uppköst, lágur blóðþrýstingur, kláði, útbrot, verkir í útlim, sundl, höfuðverkur, skert nýrnastarfsemi, hækkun á transamínasa, sótthiti, bjúgur í útlimum, skertur almennur styrkur og orka, marmyndun, rennsli úr sárum.1 Ekki er mælt með notkun Xarelto hjá sjúklingum með gervihjartalokur.1 *sem fyrirbyggjandi meðferð gegn heilablóðfalli og segareki hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif án lokusjúkdóms og einn eða fleiri áhættuþætti, svo sem hjartabilun, háþrýsting, aldur ≥ 75 ára, sykursýki, sögu um heilablóðfall eða skammvinnt blóðþurrðarkast1

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.