Læknablaðið - 01.03.2016, Side 11
LÆKNAblaðið 2016/102 119
Inngangur
Mjaðmarbrot eru algengir áverkar meðal aldraðra og
hafa oft alvarlegar afleiðingar fyrir einstaklinginn og
valda umtalsverðum kostnaði fyrir samfélagið.1 Al-
gengi slíkra brota eykst með aldri sem skýrist af ald-
urstengdri minnkun á beinþéttni og aukinni dettni.1,2
Meðalaldur þeirra sem mjaðmarbrotna er á bilinu 80-
84 ár, meðalaldur kvenna um 83 ár, karla 81 ár3-6 og
algengasta orsökin er lágorkufall.2 Konur eru í meiri-
hluta þeirra sem mjaðmarbrotna, eða um 70%.5-7 Bein-
þynning er töluvert algengari hjá konum en körlum8
sem gæti skýrt að miklum hluta hvers vegna konur
mjaðmarbrotna frekar en karlar.
Nýgengi mjaðmarbrota er þó misjafnt eftir heims-
hlutum og er það almennt hærra því lengra sem farið er
frá miðbaug. Nýgengi mjaðmarbrota er hæst í Norður-
Evrópu, nánar tiltekið á Norðurlöndunum. Þessi munur
milli þjóða er álitinn tengjast hárri tíðni beinþynningar
og hugsanlega algengi D-vítamínskorts á norðlægum
slóðum.9
Allir sjúklingar sem mjaðmarbrotna fara í aðgerð
nema þeir séu það langt leiddir að andlát sé yfirvof-
andi við komu á sjúkrahús.10 Hjá eldra fólki eru lær-
leggshálsbrot oftast meðhöndluð með innri festingu ef
þau eru ótilfærð en í tilfærðum brotum er annaðhvort
notuð innri festing eða settur gerviliður.11 Stöðug lær-
hnútubrot eru oftast meðhöndluð með renninagla og
plötu en óstöðug með mergnagla.12
Inngangur: Mjaðmarbrot eru algeng meðal aldraðra, oft með alvarlegum
afleiðingum og hárri dánartíðni. Markmið þessarar rannsóknar var að
kanna meðferð og afdrif sjúklinga sem hlutu mjaðmarbrot og voru með-
höndlaðir á Landspítala.
Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á öllum sjúklingum ≥60 ára
sem gengust undir skurðaðgerð á Landspítala árið 2011 vegna mjaðmar-
brots.
Niðurstöður: Rannsóknarhópurinn samanstóð af 255 sjúklingum (meðal-
aldur 82 ± 8 ár, konur 65%). Bið eftir aðgerð frá komu á spítalann var að
meðaltali 22 ± 14 klukkustundir. Meðallegutími sjúklinga á spítalanum
sem voru á hjúkrunarheimili fyrir brot var 4 ± 2 dagar en meðallegutími
þeirra sem bjuggu á eigin heimili 14 ± 10 dagar (p<0,001). Fyrir mjaðmar-
brotið bjuggu 68% sjúklinganna á eigin heimili en 54% við lok eftirfylgdar
(p<0,001). Dánarhlutfall ári eftir brot var 27% sem er áttfalt hærra en
meðaltal einstaklinga yfir 60 ára á Íslandi. Aðhvarfsgreining sýndi að
aldur, tími frá áverka að komu á bráðamóttöku, ASA-flokkun og mjaðmar-
brot hjá vistmanni á hjúkrunarheimili tengdust marktækt áhættu á andláti
einu ári eftir aðgerð.
Ályktun: Samsetning hópsins sem mjaðmarbrotnar hér á landi er áþekk
því sem gerist erlendis. Meðalbiðtími eftir aðgerð var tæpur sólarhringur,
sem er innan marka erlendra gæðastaðla, en þriðjungur sjúklinga beið
lengur. Umönnunarúrræði utan sjúkrahúss virtust helst ráða hversu löng
sjúkrahúsdvölin varð. Marktækt færri gátu búið á eigin heimili eftir brot en
fyrir. Dánarhlutfall mjaðmarbrotinna var margfalt hærra en í sama aldurs-
þýði á Íslandi og í efri mörkum miðað við erlendar rannsóknir. Mjaðmar-
brot hafa því alvarlegar afleiðingar fyrir einstaklinginn og eru krefjandi fyrir
samfélagið.
ÁGRIP
Umdeilt er hvort bið eftir aðgerð auki dánartíðni
en í nýlegri safngreiningu (metaanlysis) var sýnt fram
á tengsl snemmbúinnar aðgerðar og lægri dánartíðni.
Einnig var minni hætta á lungnabólgu og legusárum.
Það er þó misjafnt eftir rannsóknum hvort snemmbúin
aðgerð sé flokkuð innan 24, 48 eða 72 klukkustunda frá
innlögn.13 Kanadísk rannsókn sýndi að styttri bið eftir
aðgerð lækkaði dánartíð ni bæði við 30 daga og eitt ár
eftir aðgerð. Útkoman varð verri eftir því sem biðin var
lengri.14 Í rannsóknum þar sem biðtími hefur ekki haft
marktæk áhrif á dánartíðni hefur styttri bið að jafnaði
tengst styttri legutíma.15-17 Í nýlegum leiðbeiningum frá
Bretlandi er mælt með að sjúklingar fari í aðgerð innan
eins til tveggja sólarhringa frá innlögn.10
Sjúklingar sem gangast undir aðgerð vegna mjaðm-
arbrots fá annaðhvort mænudeyfingu eða eru svæfðir.
Í nýlegum rannsóknum hefur ekki fundist munur á
dánartíðni milli mænudeyfingar og svæfingar18,19 en
aðgerðar- og legutími er styttri ef mænudeyfing er
notuð.18 Einnig hefur verið sýnt fram á minni líkur á
blóðsegamyndun í djúpum bláæðum og færri blóðgjafir
við mænudeyfingu.19
Meðallegutími eftir mjaðmarbrot er misjafn eftir
löndum en hann er á bilinu 9-12 dagar í Bretlandi og
Danmörku5,20 en einungis 5-6 dagar í Bandaríkjunum.21
Skipulag heilbrigðiskerfis hefur að sjálfsögðu mikil
Greinin barst
8. júlí 2015,
samþykkt til birtingar
15. febrúar 2016.
Höfundar hafa
útfyllt eyðublað um
hagsmunatengsl.
Meðferð og afdrif sjúklinga
með mjaðmarbrot
Kristófer A. Magnússon1 læknir, Bjarni Gunnarsson2,3 tölfræðingur, Gísli H. Sigurðsson1,4 læknir, Brynjólfur Mogensen4,5 læknir,
Yngvi Ólafsson6, læknir Sigurbergur Kárason1,4 læknir
1Svæfinga- og
gjörgæsludeild
Landspítala, 2verkfræði-
og raunvísindadeild
Háskóla Íslands,
3Íslenskri erfðagreiningu,
4læknadeild Háskóla
Íslands, 5rannsóknastofu
Landspítala og HÍ
í bráðafræðum,
6bæklunarskurðdeild
Landspítala.
Fyrirspurnir:
Sigurbergur Kárason
skarason@landspitali.is
http://dx.doi.org/10.17992/lbl.2016.03.69 R A N N S Ó K N