Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2016, Síða 25

Læknablaðið - 01.03.2016, Síða 25
LÆKNAblaðið 2016/102 133 R A N N S Ó K N %) og var CK-miðgildi þeirra 41.330 IU/L. Hinir 24 voru með CK- miðgildi 6.005 og fengu fyrirmæli um að drekka vel af vatni. Þeir sem fengu vökva í æð höfðu marktækt meiri CK-hækkun en aðrir (p<0,001). Staðsetningu rákvöðvarofs og vökvameðferð má sjá í töflu I. CK-hækkun eftir staðsetningu rákvöðvarofs og vökvameð- ferð má sjá í töflu II. Alvarlegir fylgikvillar rákvöðvarofs voru sjaldgæfir en aðeins einn fékk bráðan nýrnaskaða sem gekk til baka eftir ríkulega vökvagjöf í æð. Hæsta mælda kreatínín-gildi hjá þessum einstak- lingi var 442 micromól/L. Innlagnarhlutfall í þýðinu var 50% (27 af 54) en lega var stutt með miðgildi einn dag (spönn 1-13 dagar). Einn einstaklingur kom tvisvar á bráðamóttöku eftir áreynslurák- vöðvarof en tvö ár liðu milli atvikanna. Ástæða áreynslurákvöðvarofsins voru lyftingar eða önnur vaxtarrækt hjá 18, langhlaup hjá 9, herþjálfun (bootcamp) hjá 6, spunaþrek (spinning) hjá fjórum og blandaðar þrekæfingar (crossfit) hjá tveimur. Þrír ofreyndu sig við aðra líkamlega iðju og hjá 12 var líkamleg iðja ótilgreind. Ekki reyndist unnt að afla áreiðanlegra upplýsinga um hversu margir stunda hinar ýmsu tegundir íþrótta eða líkamsrækt. Oft hafði sjúklingur reynt mun meira á sig en hann var vanur eða langt var síðan hann stundaði líkamsrækt síðast. Tími frá áreynslu til komu á spítalann var oftast 1-5 dagar. Nákvæmar tölur yfir þessa breytu voru ekki skráðar en upplýsingar lágu fyrir hjá aðeins 22 einstaklingum. Umræða Nýgengi áreynslurákvöðvarofs hjá almenningi virðist ekki þekkt en til eru rannsóknir sem sýna hversu stórt hlutfall rákvöðva - r ofstilfella er orsakað af líkamlegri áreynslu. Í okkar rannsókn var þetta hlutfall 8,3% en til samanburðar var það 0,6% og 35,6% í tveimur bandarískum rannsóknum14,21 og 4,3% í spænskri rann- sókn.22 Eina þýðið þar sem nýgengi hefur verið rannsakað til hlítar eru hermenn. Tvær stórar rannsóknir á bandarískum hermönnum sýndi árlega tíðni upp á 22,2/100.00014 og 7-8/10.00023 en í þeirri síðari á tíðnin við rákvöðvarof af öllum orsökum. Í þessum hópum er líkamleg áreynsla algengari en hjá almenningi. Að því leyti eru þessar rannsóknir frábrugðnar okkar. Í okkar rannsókn mætti flokka nýgengi áreynslurákvöðvarofs sem nýgengi hjá þeim sem leituðu sér læknishjálpar á Landspítala vegna einkenna. Það kemur því ekki á óvart að nýgengið í okkar rannsókn sé lægra en hjá bandarísku hermönnunum. Nýgengi rákvöðvarofs af öllum Tafla II. CK-hækkun eftir kyni, aldri, komuári, staðsetningu og vökvameðferð. CK - Lægsta gildi (IU/L) CK - Neðri fjórðungsmörk (IU/L) CK- Miðgildi (IU/L) CK - Efri fjórðungsmörk (IU/L) CK - Hæsta gildi (IU/L) p-gildi Heild (n=54) 1,056 5,107 24.130 49.180 224.700 - Kyn 0,2619 Karlar (n=36) 1,056 4,570 15.120 40.470 224.700 Konur (n=18) 1,163 9,312 28.450 56.550 119.100 Aldursbil (ár) 0,0553 15 - 19 (n=10) 1,471 5,367 12.090 30.120 52.100 20 - 24 (n=8) 3,605 7,677 16.540 49.590 119.100 25 - 29 (n=16) 1,056 6,579 25.240 32.040 58.180 30 - 34 (n=6) 1,490 12,580 78.010 111.200 224.700 35 - 39 (n=6) 1,093 19,720 29.560 53.590 94.310 > 39 (n=8) 1,163 2,566 28.070 65.120 112.300 Komuár 0,1827 2008 (n=7) 2,641 5,552 6,820 32.680 110.400 2009 (n=8) 1,056 6,602 22.890 50.630 51.650 2010 (n=11) 1,552 15,090 32.240 81.260 119.100 2011 (n=10) 1,163 2,277 8,542 16.520 33.010 2012 (n=18) 1,093 8,908 28.450 50.480 224.700 Staðsetning á líkama 0,5125 Efri útlimir (n=27) 1,552 8,117 26.300 48.000 112.300 Neðri útlimir (n=21) 1,056 2,641 13.090 60.870 224.700 Önnur (n=6) 1,093 3,362 13.960 27.960 110.400 Vökvameðferð < 0,001 Í æð (n=30) 1,093 23,830 41.330 85.950 224.700 Um munn (n=24) 1,056 2,108 6,005 18.480 51.450 Best er að líta til miðgildis þegar hópar eru bornir saman en spönn og fjórðungsmörk gefa hugmynd um hvernig dreifing CK-hækkana er innan hópa. p-gildi er fyrir samanburð á miðgildum allra hópa.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.