Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2016, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 01.03.2016, Blaðsíða 42
150 LÆKNAblaðið 2016/102 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Björn Einarsson öldrunarlæknir og heimspekingur beinarss@landspitali.is Nýlega birti Siðmennt, félag siðrænna húmanista, niðurstöður skoðanakönnunar sem fyrirtækið Maskína framkvæmdi. Þar var spurt um afstöðu almennings til líknardráps með spurningunni: „Ert þú hlynntur eða andvígur því að einstak- lingur geti fengið aðstoð við að binda endi á líf sitt ef hann er haldinn banvænum sjúkdómi (líknandi dauði)?“ Hlynntir voru 75%, andvígir voru 7%, en óákveðnir voru 18%. Enginn munur var á kynjum, trúar- skoðunum eða stjórnmálaskoðunum, en fleiri voru fylgjandi líknardrápi meðal hinna yngri.1 Sú meirihlutaskoðun sem fram kemur í skoðanakönnuninni er þess valdandi að læknar verða að taka til íhugunar afstöðu sína til líknardráps – að- stoðar við sjálfsvíg og hugsanlegt hlutverk þeirra í því. Skilgreiningar Með orðinu „euthanasia“ er átt við líknar- dráp, en orðið hefur einnig verið notað um líknarmeðferð og líknarmorð. Þörf er á skilgreiningum þessara ólíku hugtaka svo umræður verði hnitmiðaðri. Líknarmeð- ferð er markviss læknisfræðileg meðferð með það markmið að líkna, lina þjáningar og auka lífsgæði sjúklingsins á meðan hann er að deyja úr sjúkdómi sínum. Líknarreglan segir að sé sjúkdómur sjúk- lingsins ólæknandi, lífslengjandi læknis- fræðileg meðferð gagnslaus, sjúklingurinn eigi sér ekki batavon og dauðinn sé honum sjálfum fyrir bestu, eigi að líkna honum. Líknarmeðferð felur aldrei í sér ásetning um að stytta líf sjúklings.2 Hún er í dag veitt á öllum sjúkrahúsum og hjúkrunar- heimilum landsins, sérhæfðri líknardeild í Kópavogi og hefur líknarmeðferð verið viðurkennd sem sérgrein innan læknis- fræðinnar. Ákvörðun um líknarmeðferð hef ég áður lýst.3 Líknardráp er hins vegar sá verknaður að binda enda á líf sjúklings af ásetningi, að beiðni sjúklingsins, þar sem hann er deyjandi úr banvænum sjúkdómi, í líknandi skyni vegna óbæri- legra þjáninga. Ásetningurinn er það sem greinir líknardráp frá líknarmeðferð.4 Líknardráp er framkvæmt með tvenns- konar hætti. Þegar það er gert með beinum hætti er sjúklingurinn deyddur með banvænni lyfjagjöf í æð. Það er nefnt beint líknardráp (active euthanasia) eða eingöngu líknardráp (euthanasia). Þegar það er gert með óbeinum hætti, að sjúklingnum er réttur eiturbikar sem hann verður sjálfur að tæma, er það nefnt aðstoð við sjálfsvíg (assisted suicide).5 Skilgreiningarnar eru notaðar á þennan hátt þó svo að báðar aðferðirnar séu í eðli sínu alltaf sjálfsvíg, þar sem þolandinn hefur lagt fram beiðni um að fá aðstoð við að deyja. Líknarmorð er einnig sá verknaður að binda enda á líf af ásetningi í líknandi skyni, en gegn vilja sjúklingsins eða án þess að kanna hann. Líknarmorð er refsivert líkt og önnur morð, þó svo að gerandinn beri fyrir sig líknarástæður. Dæmi um líknarmorð hafa komið upp öðru hvoru á heilbrigðisstofn- unum erlendis.2 Þrjár mismunandi aðferðir við líknardráp Í Hollandi er beint líknardráp leyfilegt, þar sem læknir gefur banvæna lyfjagjöf í æð, en aðstoð við sjálfsvíg er þar einnig leyfileg.5 Í þeim ríkjum Bandaríkjanna sem leyfa líknardráp er hins vegar ein- göngu leyfileg aðstoð læknis við sjálfsvíg (physician assisted suicide).6 Skilyrðin fyrir líknardrápi eru hins vegar nokkuð lík í báðum löndunum. Beiðandinn verður að vera haldinn banvænum sjúkdómi, eiga skammt eftir ólifað, þjást óbærilega og ómögulegt að líkna honum á annan hátt. Einnig verður að vera staðfest að sjúklingur óski eftir líknardrápinu sjálfur, ákvörðunin sé upplýst og ígrunduð, ekki sé til staðar geðsjúkdómur sem trufli dóm- greind hans, né sé ákvörðunin tekin undir áhrifum lyfja. Tveir óháðir læknar verða að staðfesta skilyrðin. Í báðum löndunum stendur líknardrápið eingöngu íbúum við- komandi ríkis til boða. Læknar, lyfjafræð- ingar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn geta neitað að taka þátt í líknardrápi samvisku sinnar vegna. Í Sviss er aðstoð við sjálfsvíg eingöngu leyfileg og verður þolandinn sjálfur að geta tæmt þann eiturbikar sem dregur hann til dauða, annars er fram- kvæmdin óleyfileg. Framkvæmdin fer fram í þremur einkafyrirtækjum. Engin krafa er um að beiðandinn sé haldinn ban- vænum sjúkdómi, né heldur koma læknar að líknardrápinu. Lögreglan er síðan kölluð til og staðfestir að um sjálfsvíg hafi verið að ræða. Mikil áhersla er lögð á skráningu gagna og atviksins, þar á meðal myndbandsupptökur. Hingað til hefur þess ekki verið krafist að þolandinn sé svissneskur ríkisborgari, enda hefur orðið til líknardráps-ferðamannaiðnaður (suicide tourism) í Sviss. Nýlega hefur þó hafist umræða um að takmarka líknardráps- heimildina við svissneska ríkisborgara.7 Sjálfræði, ábyrgð, aðstandendur Maðurinn er sjálfráða vegna þess að hann er skynsemisvera sem er fær um að ráða framtíð sinni, velja sér markmið í lífinu og gefa lífi sínu tilgang. Enginn getur sagt öðrum hvað gerir líf hans þess virði að lifa því. Því ber hann einn ábyrgð á lífi sínu og heilsu. Ég hef áður reifað rétt- indi sjúklinga til að hafna lífslengjandi læknismeðferð sem þeim stendur til boða.3 Þeir geta hafnað meðferð sem þeir telja að valdi sér það miklum þjáningum að meðferðin sé ekki þess virði. Það gera margir læknar sem veikjast af banvænum sjúkdómum.8,9 Þannig má leiða rök að því að sjúklingurinn beri einn ábyrgð á dauða sínum og hafi því rétt til að ákvarða dauð- daga sinn sjálfur og stytta sér aldur. Hins vegar er ekki sjálfgefið að viðkomandi eigi rétt á að fá aðstoð við sjálfsvíg. Sá sem tekur eigið líf á engan rétt á að vera aðstoðaður við það, því slíka skyldu er ekki hægt að leggja á nokkurn mann.2 Það er ekki hægt að krefja lækni eða annan heilbrigðisstarfsmann um að framkvæma líknardráp ef það stríðir gegn samvisku Líknardráp (Euthanasia) – aðstoð við sjálfsvíg

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.