Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.05.2016, Qupperneq 14

Læknablaðið - 01.05.2016, Qupperneq 14
222 LÆKNAblaðið 2016/102 (p<0,001). Í innúðahópnum fengu 20 af 30 börnum (67%) grein- inguna LLS, sem er ekki marktækt lægra hlutfall en hjá börnum sem fengu sterameðferð í æð (p=0,17). Hugsanlegar aukaverkanir Börnin í meðferðarhópnum þyngdust marktækt minna meðan á steragjöf stóð en börnin í viðmiðunarhópnum á tilsvarandi aldurs- bili (8,8 g/dag og 18,7 g/dag; p<0,01). Hins vegar var ekki mark- tækur þyngdarmunur milli hópanna við 35 vikna meðgönguald- ur (tafla II). Ekki reyndist hægt að gera samanburð á blóðsykri milli hópanna þar sem of margar mælingar vantaði, einkum í viðmiðunarhópnum. Ekki var marktækur munur á fjölda grun- aðra eða staðfestra sýkinga milli hópanna tveggja. Ekki var heldur marktækur munur á fjölda heilablæðinga né heilalömunar milli hópanna (tafla II). Sterameðferð á úðaformi Marktækt færri mæðrum barna sem fengu stera á úðaformi voru gefnir sterar fyrir fæðingu í þeim tilgangi að flýta fyrir lungna- þroska fóstursins en í viðmiðunarhóp (p=0,012). Ekki var mark- tækur munur á öðrum helstu klínísku þáttum milli hópanna tveggja (tafla I). Öll börnin sem fengu stera á úðaformi fengu budesonide (Pulmicort®). Meðgildi upphafsskammts lyfsins var 1000 µg á dag (spönn 500-1200 µg á dag) Meðalaldur barnanna sem fengu inn- úðastera við upphaf meðferðar var 30,1 ± 14,4 dagar (miðgildi 27,5 dagar; spönn 10-71 dagar). Meðallengd meðferðar var 43,0 ± 21,6 dagar (miðgildi 38,5 dagar; spönn 8-86 dagar). Súrefnisþörf og öndunaraðstoð Meðalsúrefnisþörf barnanna sem fengu stera á úðaformi var 30,8% (miðgildi 27,5%; spönn 21-54%) 5 dögum fyrir upphaf meðferðar, en hafði hækkað í 31,4% á upphafsdegi meðferðar (miðgildi 29,5%; spönn 21-47,3%), p=0,77. Meðalsúrefnisþörfin lækkaði jafnt og þétt frá upphafsdegi meðferðar og var lækkunin orðin marktæk á þriðja degi, 28,3% (miðgildi 26,5%; spönn 21-49%), p<0,01. Fjórt- án dögum eftir upphaf meðferðar var hún orðin 24,7% (miðgildi 23,9%; spönn 21-42%), p<0,001. Á sama tímabili breyttist súrefnis- þörf barnanna í tilfellahópnum ekki marktækt. Súrefnisþörf barnanna í meðferðarhópnum var marktækt hærri en súrefnisþörf barnanna í viðmiðahópnum alla dagana frá því 5 dögum fyrir og til og með 10 dögum eftir upphaf meðferðar. Fjórtán dögum eftir upphaf meðferðar var munurinn á súrefnis- þörf hópanna tveggja hins vegar ekki lengur marktækur (p=0,3) (mynd 4). Fimm dögum fyrir upphaf úðameðferðar voru marktækt fleiri börn í meðferðar- en viðmiðahópnum á öndunarvél (8 á móti 0; p=0,002) og einnig á upphafsdegi meðferðar (6 á móti 1; p=0,035). Eftir það var munurinn milli hópanna ekki lengur marktækur. Hugsanlegar aukaverkanir Ekki reyndist vera marktækur munur á hugsanlegum aukaverk- unum af völdum sterameðferðar á úðaformi milli hópanna. Umræður Áhrif sterameðferðar á lungnastarfsemi Í rannsókninni voru áhrif barksterameðferðar á lungnasjúkdóm fyrirburanna metin með því að kanna súrefnisþörf þeirra og þörf fyrir öndunarvélameðferð. Meðal barnanna sem fengu stera í æð fór súrefnisþörfin vaxandi síðustu dagana áður en meðferð hófst, en minnkaði síðan marktækt næstu dagana þar á eftir. Einnig fækkaði þeim börnum sem þurftu öndunarvélameðferð eftir að meðferð hófst, þannig að fjórum dögum síðar voru þau orðin marktækt færri en við upphaf meðferðar. Samsvarandi breytingu á súrefnisþörf og þörf fyrir öndunarvélameðferð var ekki að sjá hjá viðmiðunarhópi. Þessar niðurstöður eru í samræmi við niður- stöður erlendra rannsókna sem sýnt hafa að barksterameðferð í æð R A N N S Ó K N Tafla II. Samanburður á hugsanlegum aukaverkunum sterameðferðar í æð milli meðferðarhóps og viðmiðahóps (%). Fengu stera í æð N=28 Viðmið N=28 p-gildi Þyngd við upphaf meðferðar [g] 972 ± 333 980 ± 333 0,93 Þyngdaraukning á meðferðartíma [g/dag] 8,8 ± 13,9 18,7 ± 10,9 0,005 Við 35 vikna meðgöngualdur [g] Þyngd 1901 ± 245 1890 ± 410 0,90 Lengd 41,7 ± 0,5 42,0 ± 0,5 0,59 Höfuðummál 30,8 ± 0,4 30,5 ± 0,4 0,63 Sýkingar - grunur um sýkingu 12 (42,9) 11 (39,3) 0,79 - sýking staðfest með ræktun 4 (14,3) 6 (21,4) 0,51 Heilablæðing 5 (17,9) 4 (14,3) 0,72 Heilalömun 1 (3,6) 3 (10,7) 0,31 Súrefnisþörf barnanna frá því 5 dögum fyrir og þar til 14 dögum eftir upphaf meðferðar. Dagur 0 er upphafsdagur meðferðar. - Samanburður á súrefnisþörf milli daga hjá meðferðarhópi: Dagur 0 og 3, p=0,009. - Samanburður á súrefnisþörf meðferðarhóps og viðmiðunarhóps: Dagur -5, p<0,001; dagur 0, p<0,001; dagur 1, p<0,001; dagur 2, p<0,001; dagur 3, p=0,002; dagur 4, p=0,03; dagur 5, p=0,01; dagur 6, p=0,01; dagur 7, p=0,02; dagur 10, p=0,02; dagur 14, p=0,3. Mynd 4. Samanburður á súrefnisþörf barna sem fengu sterameðferð á úðaformi og barna í viðmiðunarhópi.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.