Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.05.2016, Qupperneq 37

Læknablaðið - 01.05.2016, Qupperneq 37
LÆKNAblaðið 2016/102 245 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R kvenfélag Hringsins, en félagskonur veittu verulegu fjármagni til deildarinnar og stuðluðu að hraðari uppbyggingu hennar. Sérstök bygging var loks reist til að sinna sjúkrahúsþjónustu fyrir veik börn. Nýr Barnaspítali Hringsins var tekinn í notkun vorið 2003. Sú bygging var einnig styrkt mjög myndarlega af Hringskonum. Bygging spítalans fór af stað áður en tekin var ákvörðun um að sameina Landspítal- ann og Sjúkrahús Reykjavíkur (1996-2000). Töluverð endurskipulagning starfsem- innar var því nauðsynleg á byggingar- tíma. Staðsetningin var ákveðin meðal annars með það í huga að tengsl vöku- deildar og fæðingardeildar væru góð. Ásgeir fór yfir aðkomu barnalækna að kennslu í læknadeild HÍ, vísindastarfsemi og doktorsnám þeirra. Kristbjörn varð fyrsti prófessorinn í faginu. Víkingur Heiðar Arnórsson (1924-2007), sem hlaut sérfræðiviðurkenningu 1961, var skipaður næsti prófessor í barnalæknisfræði 1974 og gegndi því hlutverki þangað til Ásgeir tók við árið 1995. Fram kom í umræðum með Ásgeiri að fyrsti íslenski barnalæknirinn til að verja doktorsritgerð í barnalækn- isfræði við Karolinska (1988) var Birgir Jakobsson (f. 1948) núverandi landlæknir. Stuttu síðar, árið 1989, varði Atli Dag- bjartsson (f. 1940) doktorsritgerð sína við HÍ. Alls hafa vel á annan tug barnalækna lokið doktorsnámi og eru nokkrir í slíku námi. Einnig kom fram að barnalæknar hafa verið virkir í vísindavinnu. Vísinda- greinar, nemaverkefni og ritgerðir skipta hundruðum. Þá nefndi Ásgeir einnig mikinn og almennan áhuga barnalækna á kennslu. Þröstur Laxdal (f. 1935) fór yfir fyrstu árin sín sem barnalæknir og á bæjarvökt- um í Reykjavík eftir að hann kom heim frá Bandaríkjunum síðla árs 1968. Hann fékk ásamt Sævari Halldórssyni (1934-2008) sérfræðingsstöðu á barnadeild Landakots- spítala í ársbyrjun 1969. Fyrir ráðningunni stóð yfirlæknir spítalans, Dr. Bjarni Jóns- son (1909-1999). Yfirlæknir og eini læknir barnadeildarinnar frá formlegri stofnun hennar 1961, Björn Guðbrandsson (1917- 2006), var henni mótfallinn, taldi fram hjá sér gengið um samráð og sýndi andúð sína með ýmsu móti, eins og fram kem- ur í sjálfsævisögu hans frá 1987. Þröstur lýsti ýmsum tilfellum sem hann þurfti að fást við og mjög áhugavert var að heyra Barnalæknar komu saman í húsnæði læknafélaganna í Hlíðasmára 8 og fóru yfir hálfrar aldar sögu síns félags. Þórður Þórkelsson er yfirlæknir á vökudeildinni þar sem yngstu hjörtun á landinu hamast við að slá. Magnús Stefánsson var yfirlæknir barnadeildar Sjúkrahúss Akureyrar.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.