Læknablaðið - 01.05.2016, Síða 43
LÆKNAblaðið 2016/102 251
L Ö G F R Æ Ð I 1 8 . P I S T I L L
Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við
ritstjórn eða pistlahöfund ábendingum um efni.
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
Dogg@lis.isMeira um sjúkraskrár
Á þessum vettvangi hefur áður verið
fjallað um sjúkraskrár og aðgang að þeim
(Læknablaðið 12. tbl. 2013 og 2. tbl. 2014).
Um þetta efni þarf þó reglulega að ræða
því miklu skiptir að læknar og aðrir heil-
brigðisstarfsmenn kunni góð skil á þeim
ákvæðum sem gilda um sjúkraskrár.
Um aðgang að sjúkraskrám er fjallað í
lögum um sjúkraskrár nr. 55/2009. Þar eru
tilgreindar reglur um aðgang sjúklinga
eða umboðsmanna þeirra að eigin sjúkra-
skrám. Þar er gert ráð fyrir heimild náinna
aðstandenda látins einstaklings til aðgangs
að sjúkraskrá hins látna. Heilbrigðisyfir-
völd eiga undir sérstökum kringumstæð-
um aðgang að sjúkraskrám og tengist það
fyrst og fremst meðferð kærumála sjúk-
linga. Þá er heimill aðgangur að sjúkra-
skrám vegna gæðaþróunar og gæðaeftirlits
og vegna vinnu að þjónustu við tölvu- og
upplýsingakerfi.
Síðast en ekki síst eiga heilbrigðisstarfs-
menn aðgang að sjúkraskrám. Það skiptir
miklu að gera sér grein fyrir því að að-
gangur heilbrigðisstarfsmanna að sjúkra-
skrá sjúklinga er ekki almennur. Hann er
takmarkaður við það að viðkomandi heil-
brigðisstarfsmaður komi að meðferð sjúk-
lingsins og þurfi vegna meðferðarinnar að
komast í sjúkraskrána. Heilbrigðisstarfs-
maður sem ekki kemur að meðferð sjúk-
lings hefur því engan aðgang að sjúkraskrá
hans, jafnvel þó sjúklingurinn liggi á deild
þar sem heilbrigðisstarfsmaðurinn starfar.
Í 24. gr. laga um sjúkraskrár segir að
ráðherra skuli með reglugerð kveða nánar
á um færslu rafrænna sjúkraskráa, varð-
veislu þeirra, aðgang að þeim, aðgangs-
stýringu og aðgangstakmarkanir í sam-
ræmi við ákvæði laganna. Ákvæðið rekur
síðan nánar hvað fleira skuli fjallað um í
þessari reglugerð.
Þótt skýrt sé í lögunum að þessa reglu-
gerð skuli setja var það ekki fyrr en síðast-
liðið sumar sem af setningu hennar varð.
Reglugerð um sjúkraskrár nr. 550/2015
öðlaðist gildi 24. júní í fyrra. Við gildistöku
reglugerðarinnar féll úr gildi eldri reglu-
gerð nr. 227/1991 um sama efni, sem sett
var með stoð í læknalögum frá 1988.
Í frétt velferðarráðuneytisins frá 16.
júlí 2015 um hina nýju reglugerð kemur
fram að hún marki tímamót, því með
henni verði unnt að opna að fullu fyrir
samtengingu sjúkraskráa milli heilbrigð-
isstofnana í samræmi við markmið um
öryggi sjúklinga og meðferð þeirra.1
Reglugerðin skilgreinir tvö ný hugtök,
sem ekki er fjallað um í lögum um sjúkra-
skrá, annars vegar rafræna sjúkraskrá og
hins vegar þróunaraðila sjúkraskrárkerfis.
Rafræn sjúkraskrá er skilgreind sem
safn sjúkraskrárupplýsinga, þar með talið
lýsing eða túlkun í rituðu máli, myndir,
línurit og hljóðupptökur, um sjúkling,
sem unnar eru í tengslum við meðferð
hans á heilbrigðisstofnun eða starfsstofu
heilbrigðisstarfsmanns og skráðar í rafræn
sjúkraskrárkerfi. Í skilgreiningunni er jafn-
framt tekið fram að sjúkraskrárupplýsingar
séu aðgengilegar öllum þeim meðferðar-
aðilum sem hafa til þess skilgreindan að-
gang þegar þeirra er þörf í þágu meðferðar
sjúklinga á heilbrigðisstofnunum eða
starfsstofum heilbrigðisstarfsmanna, sbr.
a-lið 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar.
Þróunaraðili sjúkraskrárkerfis er
skilgreindur sem aðili sem þróar sjúkra-
skrárkerfi innanlands eða hefur umboð
fyrir erlend sjúkraskrárkerfi sem notað er
á heilbrigðisstofnunum eða starfsstofum
heilbrigðisstarfsmanna hérlendis, sbr. b-lið
1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar.
Það er Embætti landlæknis sem hefur
yfirumsjón með rafrænni sjúkraskrá á
landsvísu. Í því felst að embættið er sam-
hæfingaraðili rafrænnar sjúkraskrár og
annast uppbyggingu, þróun og umsýslu
hennar svo og samræmingu, innleiðingu
og eftirlit með öryggi hennar.
Fjallað er um skyldur ábyrgðaraðila og
umsjónaraðila sjúkraskráa í II. kafla reglu-
gerðarinnar. Ábyrgðaraðili sjúkraskráa er
skv. 3. gr. laganna heilbrigðisstofnun eða
starfsstofa heilbrigðisstarfsmanns þar sem
sjúkraskrár eru færðar. Umsjónaraðilar
sjúkraskráa eru samkvæmt sama ákvæði
laganna læknir, eða annar heilbrigðis-
starfsmaður, sé lækni ekki til að dreifa,
sem ábyrgðaraðili hefur falið að hafa
eftirlit með og sjá um að skráning og með-
ferð sjúkraskrárupplýsinga sé í samræmi
við ákvæði laganna um sjúkraskrár.
Í 15. gr. reglugerðarinnar er sérstök
áhersla lögð á það að rekjanleiki skrán-
ingar sé tryggður og að upplýsingar um
uppflettingar í sjúkraskrá séu aðgengi-
legar. Með því skal tryggt að unnt sé að
viðhafa virkt eftirlit með notendum sjúkra-
skrárkerfisins í samræmi við fyrirmæli
landlæknis um öryggi og gæði sjúkraskráa.
Í IV. kafla reglugerðarinnar er fjallað
um færslu sjúkraskráa og þar lýst sam-
antekt við lok meðferðar sem gera skal
eins fljótt og auðið er og eigi síðar en
endanlegar rannsóknaniðurstöður liggja
fyrir. Þar kemur fram að samantektin
skuli vera aðgengileg í samtengdu rafrænu
sjúkraskrárkerfi. Ef sjúkraskrárkerfi eru
ekki samtengd skal senda samantektina
með öruggum hætti og það skilgreint sem
boðsending eða ábyrgðarpóstur merktur
trúnaðarmál til heilsugæslu eða heimilis-
læknis sjúklings og þess sérfræðings sem
hafði milligöngu um meðferðina, sé hann
annar (16. gr. reglugerðarinnar). Sérákvæði
eru um færslu sjúkraskrár við nauð-
ungarvistun, sbr. 17. gr. reglugerðarinnar.
Í V. kafla reglugerðarinnar er fjallað
um réttindi sjúklinga. Þar er nýmæli í 18.
gr. sem mælir fyrir um aðstoð heilbrigð-
isstarfsmanns við lestur sjúkraskrár til að
skýra það sem kann að reynast torskilið.
Sjúklingur eða náinn aðstandandi sem fær
aðgang að sjúkraskrá látins einstaklings
eiga rétt á að fá þessa aðstoð.
Í áðurnefndri frétt velferðarráðuneytis-
ins er fullyrt að með þessari reglugerð sé
tekið á margvíslegum þáttum sem tryggja
eigi örugga varðveislu, meðferð og miðlun
sjúkraskrárupplýsinga. Sú verður vonandi
raunin enda skiptir miklu að aðgangur að
sjúkraskrárupplýsingum sé í samræmi við
þær reglur sem settar eru með sjúkraskrár-
lögunum.
1. Sjá velferdarraduneyti.is/frettir-vel/nr/35218.