Fréttatíminn - 08.04.2016, Síða 4
Forstjóri Trygginga-
stofnunar segir ekki alla
örorkuþega þurfa að gangast
undir endurmat
Þorgeir Ingólfsson missti vinstri
fótinn í slysi árið 2011 og hefur ver-
ið á örorkubótum síðan, en vinnur
hálfan daginn. Í síðustu viku fékk
hann bréf þess efnis að örorkumat
hans félli sjálfkrafa úr gildi í sum-
ar, hann þyrfti því að sækja aftur
um örorku og senda staðfestingu
frá lækni á áverka sínum.
„Ég hafði heyrt um slík bréf en
hélt að þau væru þjóðsaga. Ég er
með óafturkræfan áverka og datt
ekki í hug að ég yrði beðinn að
sanna það á þriggja ára fresti, að
enn vantaði á mig fót.“
Þorgeir segist skilja vel að ör-
orkuþegar á endurhæfingarlífeyri
þurfi að láta vita hvernig batinn
gengur. Hjá honum, og fleirum
með óafturkræfa áverka, séu þó
engar líkur á bata og niðurlægj-
andi fyrir þá að þurfa að sanna
það.
„Það hljómar eins og þeir vilji
staðfestingu á því að ekki hafi
vaxið á mig fótur fyrir kraftaverk.
Mér finnst þessi meðferð ómann-
eskjuleg.“
Þorgeir segist vita um dæmi
þess að jafnvel einstaklingar
með Downs-heilkenni þurfi að
staðfesta örorku sína á þennan
hátt, en engin dæmi eru þess að
Downs-litningur hverfi óvænt.
„Það hlýtur að vera hægt að
breyta kerfinu fyrir fólk með
óafturkræfa áverka.“ sgþ
Tryggingastofnun
Huld Magnúsdóttir,
forstjóri Trygginga-
stofnunar ríkisins,
segist ekki geta tjáð
sig um einstök mál, en
segir ljóst að þeir sem
eru með óafturkræfa
örorku ættu ekki að
þurfa að gangast undir
endurmat á henni.
Hún segir jafnframt
ekki alla örorkuþega
þurfa að gangast undir
endurmat, heldur sé
hvert tilfelli skoðað
og afar fáir séu með
varanlega örorku.
„Vilja sönnun þess að
ekki hafi vaxið á mig
fótur fyrir kraftaverk“Á aðeins tveimur dögum höfðu 19 af 34 íbúðanna selst. Verðið er frá 40 milljónum króna í tæpar 200 milljónir. Slegist um nýjar íbúðir
Sigmundur Davíð boðaði
komu sína í Hvíta húsið
Sigurður Ingi fer í hans
stað
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
þáði þann 18. mars síðastliðinn
boð Barack Obama Bandaríkja-
forseta á leiðtogafund Norður-
landanna sem haldinn verður í
Hvíta húsinu 13. maí næstkom-
andi. Um er að ræða opinbera
heimsókn leiðtoga Norður-
landanna og verður sérstakur
viðhafnarkvöldverður þeim til
heiðurs.
Líkt og frægt er orðið mætti
Sigmundur Davíð á síðasta leið-
togafund með Obama í ósam-
stæðum skóm. Vegna meiðsla
mætti Sigmundur í íþróttaskó á
vinstri fæti en spariskó á hægri.
Fær ekki að mæta í báðum spariskónum
Það má áætla að Sigmundur
hafi misst tækifærið til að hitta
Obama í báðum spariskónum.
Búist er við því að nýskipaður
forsætisráðherra Sigurður Ingi
Jóhannsson, fari í hans stað. | sgk
Það hlýtur
að vera hægt
að breyta
kerfinu fyrir
fólk með
óafturkræfa
áverka.
Niðurlæging Varanlegir öryrkjar þurfa að sanna örorkuna á 1−5 ára fresti
Huld Magnús-
dóttir, forstjóri
Trygginga-
stofnunar
ríkisins.
„Þessi blokk hefur slegið í gegn.
Það stefnir allt í að húsið verði upp-
selt áður en helginni lýkur,“ segir
Ólafur Finnbogason fasteignasali
en síðastliðinn miðvikudag fór
ný fasteign á Seltjarnarnesi í sölu
sem hefur verið í byggingu í rúmt
ár. Um er að ræða fjölbýlishúsið
Hrólfsskálamel 1-5 sem stendur við
horn Suðurstrandar og Kirkju-
brautar. Það er fasteignafélagið
Upphaf sem er í eigu fjárfestinga-
sjóðsins GAMMA sem á húsið. Í
húsinu eru 34 íbúðir en á aðeins
tveimur dögum hafa 19 þeirra selst.
Íbúðirnar eru frá 74 fermetrum og
upp í 220 fermetra og kosta, sam-
kvæmt heimildum Fréttatímans,
frá 40 milljónum króna upp í tæpar
200 milljónir.
„Það skemmtilega við þetta er að
kaupendur eru upp til hópa eldri
Seltirningar sem eru að minnka
við sig eða ungt fólk að kaupa sína
fyrstu íbúð. Þessi mikla eftirspurn
sýnir klárlega að það er mikil eftir-
spurn eftir húsnæði á Seltjarnar-
nesi.“ | hh
Enginn forsætisráðherra
á Fílnum í herberginu
Ársfundur Samtaka Atvinnulífsins
fór fram í gær, fimmtudag, og var
yfirskrift fundarins Fíllinn í her-
berginu. Hefð hefur verið fyrir því
að forsætisráðherra ávarpi fund-
inn en í ljósi atburða vikunnar var
ekki svo í ár. Þorsteinn Víglunds-
son, framkvæmdastjóri SA, segir
atburði liðinnar viku undirstrika
hversu mikilvægt það er að búa við
pólitískan stöðugleika, ekki síður
en efnahagslegan. Hann segir pen-
ingastefnuna vera fílinn í herberg-
inu. „Ríkisfjármálin hafa oftar en
ekki magnað sveiflur fremur en að
jafna þær út, og þar af leiðandi auk-
ið á verðbólgu á tímum efnahags-
uppsveiflu. Vinnumarkaðurinn
hefur verið með launahækkanir
langt umfram það sem samræmist
verðlagsstöðugleika og niðurstaðan
hefur verið eftir því,“ segir Þor-
steinn sem er ánægður með for-
gangsröðun nýrrar ríkisstjórnar.
„Ný stjórn hyggst ljúka þessum
málum áður en boðað verður til
kosninga í haust og það er mikið
fagnaðarefni af okkar hálfu.“| hh
Seltjarnarnes hefur ekki
brugðist við máli Alexander
Jóhannessonar, föður einhvers
manns sem neyðist til að flytja
son sinn af Nesinu. Sambýlið
sem hann bjó á verður lokað
eftir ítrekaðar ábendingar um
vanefndir í viðhaldsmálum og
engin önnur úrræði standa til
boða.
„Staða mála stendur óbreytt þrátt fyrir
yfirlýsingar hjá bæjarstjórn Seltjarnar-
ness,“ segir Alexander Jóhannesson,
faðir einhverfs manns sem býr á sam-
býli á Seltjarnarnesi en Reykjavíkurborg
hyggst loka um mánaðamótin. Flytja
á sambýlið í Breiðholt vegna ítrekaðra
vanefnda bæjaryfirvalda á Seltjarnar-
nesi. Alexander segir það ekki koma til
greina að sonur sinn flytji frá heima-
slóðum, umhverfi sem hann þekkir í
nálægð við fjölskyldu og vini. Sambýlið
í Breiðholti henti einfaldlega ekki hans
þörfum.
Ásgerðar Halldórsdóttir, bæjarstjóri
á Seltjarnarnesi, brást við grein Frétta-
tímans fyrir nokkrum vikum og kallaði
eftir fundi með stjórnendum velferðar-
sviðs og sagði það yrði að standa vörð
um réttindi heimilisfólksins: „Það á ekki
að flytja fólk nauðugt milli sveitarfélaga.
Ég mun aldrei samþykkja það.“
Alexander segir að ekkert hafi spurst
til bæjarstjórnar og að sonur hans sé
nú á biðlista í sambýli í Reykjavík. „Þau
vísuðu mér einungis áfram á velferðar-
ráð Reykjavíkur. Við bíðum þess að
hann fái pláss á viðeigandi sambýli sem
hentar hans þörfum, en það er langur
biðlisti. Þá vita þeir sem eignast fatlað
barn á Seltjarnarnesi að þeir þurfa að
flytja annað. Þetta er Ísland í dag, það
eru ekki settir peningar í málefni á borð
við þessi.“ sgk
Seltjarnarnes Sambýli lokað um mánaðamótin
„Ekki settir peningar í þessi málefni“
Feðgarnir Alexander Jóhannesson og Valur Alexanders-
son fyrir framan sambýlið á Sæbraut á Seltjarnarnesi sem
verður lokað um mánaðamótin. Alexander hefur barist
fyrir því að sonur sinn fái að búa áfram á Seltjarnarnesi,
nálægt fjölskyldu og vinum.
4 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
UP! MEÐ
ÖRYGGIÐ
VW Up! frá aðeins:
1.790.000 kr.