Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 58
Leikstýran Lilly Wachowski tjáði
sig í fyrsta sinn opinberlega eftir
að hún kom út úr skápnum sem
transkona þegar hún tók við GLA-
AD-verðlaunum fyrir þætti sína
Sense8 á laugardag.
Wachowski-systurnar Lilly og
Lana, sem þekktar eru fyrir bíó-
myndir á borð við Matrix-trílóg-
íuna og Cloud Atlas, hafa nú báðar
komið út sem transkonur.
Lana tilkynnti að hún væri trans
árið 2012, en Lilly kom ekki opin-
berlega fram af eigin vilja, heldur
hafði slúðurblaðið Daily Mail kom-
ist á snoðir um að hún lifði sem
kona og hótaði að birta fregnirnar
í blaðinu fyrr á þessu ári.
Lilly sá sér því þann kost
vænstan að opinbera það sjálf, þó
þær systur séu þekktar fyrir að
vera þvert um geð að koma fram í
fjölmiðlum. Lilly notaði tækifærið
í þakkarræðu sinni til að skjóta á
Daily Mail og þakkaði þeim kald-
hæðnislega fyrir „einstakt um-
burðarlyndi og kurteisi“ í sinn
garð.
„Nú skoðar fólk verk okkar
systur minnar með það í huga að
við séum trans, sem mér finnst
frábært,“ sagði Lilly meðal annars
í ræðu sinni við verðlaunaafhend-
inguna, „því það minnir okkur á
að list er síbreytileg. Þó sjálfsmynd
og breytingar séu ómissandi þætt-
ir í verkum okkar systra, er horn-
steinn þeirra miklu frekar ást.“
58 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
Það minnir okkur á
að list er síbreytileg.
Þó sjálfsmynd og
breytingar séu
ómissandi þættir í
verkum okkar systra.
Við kíktum við
þar upp á djókið
en þar var ekkert
um að vera nema
einn paparazzi-
ljósmyndari að
taka mynd
af húsinu.
„Djamm er ekki bara djamm, djamm snýst líka um
fólk og tilfinningar og að drekka og gleyma.“
Hér liggur samhengið í augum uppi. Notast skal fyrir, á meðan eða eftir djamm. Þá allra
helst á sunnudegi þegar maður er lítill í sér.
„Það eru ekki allir dagar laugardagar.“
Sannari orð hafa aldrei verið sögð og furða að þessi frasi hafi ekki fæðst fyrr. Hann má
kveða alla daga nema á laugardögum, en sérstaklega á mánudögum.
„Ég er Helgi fokking Björnsson.“
Smá skrítið að segja þetta ef þú ert ekki Helgi Björns, en leyfist einu sinni á lífsleiðinni.
„Það er bara pláss fyrir eina fræga konu
á Íslandi.“
Þennan frasa má segja oft og mörgum sinnum, í öllum aðstæðum,
þar til hann hættir að vera sannur.
„Ert þú bara að cock-
slappa börn hérna?“
Farið varlega með þennan.
„Það voru nokkur
börn á leikskólanum
sem rottuðu sig saman,
þetta var bara mann-
orðsmorð.“
Gott að notast við þennan þegar aðili er
ósáttur með hlutskipti sitt í lífinu, þá er
best að kenna börnum um það.
Frasar fæðast
í Ligeglad
Gamanþættirnir
Ligeglad hafa
slegið í gegn. Það
má segja að ný
Næturvakt sé að
líta dagsins ljós.
Hin ólíku lönd Panama og Ísland hafa þessa vik-
una verið oftar nefnd í sömu andrá en nokkurn-
tíma áður. Leki Panama-skjalanna svokölluðu er
stærsti gagnaleki sögunnar og átti stóran þátt í
því að stjórnsýsla Íslands lék á reiðiskjálfi.
Hann var þó ekki ástæða þess að þeir félagar
Kolbeinn Hamíðsson, Hannes Rannversson og
Sturla Njarðarson ákváðu að leggja leið sína til
Panama fyrir viku síðan sem hluta af ferðalagi
sínu um Mið- og Suður-Ameríku.
Félagarnir segjast þó ekkert hafa orðið varir
við að skattaskjól íslenskra ráðamanna veki
hneykslan innfæddra í Panama, enda kannist
fæstir Panamabúar yfirleitt við eyjuna Ísland í
Atlantshafi.
„Flestir sem við hittum hér eru líka brim-
brettagaurar sem eru lítið að spá í heims-
málin, svo það er kannski ekki alveg að marka
þá,“ segir Kolbeinn.
Félagarnir gista í fjármálahverfi í Panama og
eru höfuðstöðvar Mossack Fenseca stutt frá
gististað þeirra.
„Við kíktum við þar upp á djókið en þar var
ekkert um að vera nema einn paparazzi-ljós-
myndari að taka mynd af húsinu.“
Hannes lét þó gott tækifæri ekki fram hjá
sér fara og tók sjálfu við lógó lögfræðiskrifstof-
unnar sem svo mikil áhrif hefur haft á Ísland
og heiminn allan síðustu viku. | sgþ
Enn meiri tengsl Íslendinga við Panama
Tóku sjálfu við höfuðstöðvar Mossack Fenseca
Hannes Rannversson tók sjálfu fyrir
framan höfuðstöðvar Mossack Fenseca.
„Horfið á Matrix
með það í huga að
við séum trans“
Leikstjórasysturnar Lilly og Lana Wachowski
hafa nú báðar komið opinberlega fram
sem transkonur
Önnur leikstýra Matrix-þríleiksins kom fram í fyrsta
sinn opinberlega sem kona á GLAAD-verðlaununum.