Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 83
|19FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
Kynningar | Viðhald húsa AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
Unnið í samstarfi við Íspan
Gler er notað í sívaxandi mæli í ýmsum tilgangi. Hjá Íspan er úrvalið af gleri nán-ast óþrjótandi og þar má
til dæmis nefna spegla, lakkað gler,
sólvarnargler, tvöfalt gler, sandblásið
gler, hljóðvarnargler, öryggisgler,
litað gler og svona mætti lengi telja.
„Það er hægt að nota gler í nánast
hvað sem er í dag. Við bjóðum upp á
gler í glugga en það er aðeins brot af
því sem hægt er að nota glerið í. Það
er til dæmis gler í handrið og skjól-
veggi sem margir eru að huga að
þessa dagana,“ segir Ólafur Ragnar
Hilmarsson, gæðastjóri hjá Íspan.
Gler í sturtuna og eldhúsið
Það færist sífellt í aukana að fólk
noti gler inni á heimilum sínum. „Já
þetta er mjög vaxandi, að fólk hafi
gler milli innréttinga til dæmis í eld-
húsinu hjá sér í staðinn fyrir flísar og
fúgu og það kemur mjög huggulega
út. Það er hægt að vera með gamalt
eldhús og fríska upp á það með því
að setja gler á milli skápa, meira
að segja er hægt að setja gler yfir
gamlar flísar og spara sér vinnu við
að fjarlægja þær það getur flokkast
sem gott viðhaldsverkefni,“ segir
Ólafur Ragnar. Það eru líka dæmi
um að fólk setji gler inni í sturtu-
klefa, á vegginn, í staðinn fyrir flísar,
svo möguleikarnir eru endalausir.
Gler í hvað sem er
Íspan hefur starfað sleitulaust frá árinu 1969 og státar af glæsilegu
úrvali af gleri af öllum gerðum
Hágæða gler frá 1969
Þann 14. ágúst 1969 hóf Íspan starfsemi sína í 250 fermetra húsnæði
í Skeifunni. Markmið fyrirtækisins var frá fyrsta degi að framleiða há-
gæða einangrunargler og leitaðist í hvívetna við að búa verksmiðjuna
fullkomnustu tækjum sem völ var á. Fyrirtækið dafnaði vel í Skeifunni
og svo vel tóku iðnaðarmenn og húsbyggjendur framleiðslu Íspan að á
vormánuðum árið 1971 var hafist handa við byggingu nýs verksmiðju-
húss að Smiðjuvegi 7, þar sem við vorum frumbyggjar þess tíma, og þar
erum við til húsa enn í dag. Á 110 dögum reis þar 2000 fermetra hús-
næði sem hefur allt frá þeim tíma hýst framleiðslu og söludeild Íspan,
en gegnum árin hefur verið byggt við og ýmsar aðrar breytingar gerðar
á húsnæðinu til að aðlaga það breyttum tímum og aukinni starfsemi.
Fagmenn til ísetninga og uppsetninga
Íspan leggur mikinn metnað í þjónustu við viðskiptavini sína. Meðal
þjónustuþátta eru t.d. mælingar, tilboðsgerð, heimsendingar, leiga á
sogskálum og öðrum búnaði til glerjunar. Seljum glerísetningarefni,
þéttilista, skrúfur, kítti o.fl. Auk þess bjóðum við ýmsar festingar og
aukahluti til uppsetninga á gleri og speglum. Íspan útvegar fagmenn
til ísetninga og uppsetninga á öllu gleri og speglum og sérfræðiráðgjöf
varðandi allt sem snýr að gleri og glerjun. Úrval glers og spegla er yfir-
gripsmikið, einnig hert gler og öryggisgler.
Íspan hefur verið starfandi sleitulaust frá árinu 1969 og
byggt upp góðan orðstír á þeim tíma.
Ólafur Ragnar segir að gler sé hægt að nota
fyrir nánast hvað sem er í dag.
Myndir | Rut
Stúdentagarðarnir við
Sæmundargötu hafa til að
mynda vakið mjög mikla at-
hygli fyrir svalirnar sem skarta
einmitt gleri frá Íspan, en það
er í öllum regnbogans litum.