Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 81
|17FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
Kynningar | Viðhald húsa AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
Unnið í samstarfi við Áltak
Þessari vöru fylgir nær ekkert umhverfisrask og hægt er að fjarlægja jarðvegsskrúfurnar án nokkurrar fyrirhafnar.
Þetta sparar tíma og kostnað í
tengslum við uppgröft og steypu-
vinnu,“ segir Hildur Sigurðardóttir
verkfræðingur um þessa nýjung sem
einfaldar verulega ferlið sem fylgir
því að hefja framkvæmdir. Skrúfurn-
ar koma í öllum stærðum og gerðum
en það fer eftir hvers konar jarðveg
er verið að vinna með og hvers lags
framkvæmdir. Dýrleif Arna Guð-
mundsdóttir, sem einnig starfar sem
verkfræðingur hjá Áltaki, segir jarð-
vegsskrúfurnar afar hentugar fyrir
sólpalla, til að mynda. „Við getum
tekið sem dæmi sólpalla þar sem
algengasta aðferðin er að grafa holur
og steypa hólka. Þetta tekur tíma og
steypan þarf að harðna. Með þessum
skrúfum er ferlið mun einfaldara,
öruggara og kostnaðarminna.“
Skrúfurnar í skottið og í sveitina
Sumarbústaðaeigendur margir
hverjir þekkja vel brasið með að aka
með steypu og hólka þegar byggja
á pall. Jarðvegsskúfurnar útiloka
þessa snúninga sem fyrir sumum
hafa letjandi áhrif á framkvæmda-
gleðina. „Með þessu þarf ekki alltaf
að vera að keyra á milli. Þú tekur
bara skrúfurnar og vélina með, getur
jafnvel bara skellt því í skottið. Svo
er bara brunað í sveitina, skrúfurnar
boraðar niður og byrjað að smíða
pall,“ segir Hildur.
Festa niður trampólín
Jarðvegsskrúfurnar eru til ýmissa
hluta nytsamlegar, ekki bara sem
undirstöður fyrir stærri framkvæmd-
ir. „Við erum með minni skrúfur til
þess að festa trampólín niður þannig
að í óveðri eru þau ekki fjúkandi um
allan bæinn og valda tjóni. Það þarf
ekki nema tvær til þrjár skrúfur og
kostar skrúfan 2.500 krónur,“ segir
Dýrleif og bætir Hildur við að þetta
sé frábær lausn fyrir þau sem ekki
hafa kost á því að geyma trampólínin
inni þegar veður geisa.
Tólf á innan við klukkustund
Það er afar einfalt að koma skrúf-
unum fyrir og fólk getur komið í
Áltak og sótt bæði skrúfurnar og
skrúfvélina og fengið grunnkennslu
í notkun vélarinnar. Síðan er mælt
fyrir skrúfunum og það eina sem
þarf að gera er að bora skrúfurnar
niður og undirstöðurnar eru tilbúnar.
„Við settum upp sýningarpall hér
hjá okkur sem í þurfti 12 skrúfur. Á
innan við klukkustund voru allar 12
skrúfurnar komnar niður og hægt var
að byrja á pallinum,“ segir Dýrleif.
Áltak og Rekverk
Ef um stærri framkvæmdir er að
ræða, eða ef fólk vill nýta sér þæg-
indin, bendir Áltak á Rekverk sem
veitir afar fagmannlega þjónustu
við að koma skrúfunum fyrir. „Þeir
eru okkur innan handar og eru að
þjónusta bæði stór og smá verk. Þar
er mikil fagmennska til staðar og við
mælum með þeim þegar um stærri
framkvæmdir er að ræða.“
Hægt að byrja á pallinum strax
Jarðvegsskrúfur frá Áltaki henta vel fyrir t.d. skilti, sólpalla, fánastangir, smáhýsi, skýli, göngustíga og jafnvel trampólín
Dýrleif, t.v. og Hildur eru verkfræðingar hjá Áltaki sem
sérhæfir sig meðal annars í jarðvegsskrúfunum.
Áltak bendir á Rekverk
sem veitir afar fagmann-
lega þjónustu við að koma
skrúfunum fyrir.
Jarðvegsskrúfurnar
auðvelda hvers kyns
framkvæmdir til muna.