Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 40
Mynd | Hari
Unnið í samstarfi við NAM
NAM stendur fyrir nútíma asísk matargerð. Veit-ingastaðirnir eru orðnir þrír, við opnuðum núna
síðast á Laugavegi en vorum nú
þegar Nýbýlavegi og Bíldshöfða,“
segir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir
markaðsstjóri. „Við erum að bjóða
upp á öðruvísi asískan mat sem er
virkilega skemmtilegur. Þetta eru
til dæmis dumplings sem eru mjög
vinsælir og skálarnar okkar líka.
Svo erum við með Bahn Mi sem er
víetnömsk götusamloka, nautasam-
lokan er alveg sturluð!“
Í matnum á NAM er mikill kraftur
en hann helgast aðallega af góðu
og hreinu hráefni sem er ávallt sem
ferskast. Grænmetisætur og þau
sem eru vegan fá aldeilis eitthvað
fyrir sinn snúð á NAM. „Strákarnir í
Nútíma Asísk Matargerð
Hreint hráefni og kraftmikið bragð
Kynningar | Matartíminn
NAM á Bíldshöfða er mjög huggulegur staður sem býður af sér góðan þokka.
Bahn Mi nautasamlokan
hefur slegið í gegn.
Hægt er að
velja um ótal
samsetningar
þegar pöntuð
er skál á NAM.
Bruggarar frá hinu kunna brugghúsi Arizona
Wilderness heimsóttu Ísland í september í fyrra.
Þá hófst bruggun Fjólubláu handarinnar en við
tók þriggja mánaða vinnsluferli.
Dýrasti bjór
Íslandssögunnar
Fjólubláa höndin verður kynnt í næstu viku
„Aðalbláberin ein og sér kostuðu tvær milljónir,“ segir
Óli Rúnar Jónsson hjá Borg brugghúsi um nýjan bjór
brugghússins sem kynntur verður í næstu viku. Um
er að ræða bjór sem kallast Fjólubláa höndin og er
samstarfsverkefni Borgar og bandaríska brugghússins
Arizona Wilderness.
Fjólubláa höndin er dýrasti bjór sem framleiddur
hefur verið hér á landi. Hráefniskostnaður og
vinnan sem lögð var í framleiðsluna eru af áður
óþekktri stærðargráðu hér. Bláberin voru keypt
að norðan og austan og það tók viku að gera
þau klár fyrir brugg. „Bjórinn var þrjá mánuði
á tanki og þetta skilar okkur um það bil 2.800
lítrum. Flaskan mun kosta 1.290 krónur en hefði
sennilega þurft að kosta svona 2.700 krónur,“
segir Óli Rúnar í léttum tón. Íslenskir bjórar hafa
áður verið seldir á hærra verði en 1.290 krónur
en þeir hafa allir verið með háa áfengisprósentu.
Fjólubláa höndin er ekki nema 5,6 prósent og
skýrist verðið af þessum háa framleiðslukostnaði.
Fjólubláa höndin verður kynnt á Skúla Craft
Bar á fimmtudaginn næsta, klukkan 17. Ekki ligg-
ur fyrir hvort sala hefst í Vínbúðunum í næstu
eða þarnæstu viku, að sögn Óla. | hdm
1
5
-1
8
6
2
-H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Ko
lve
tn
as
ke
rt
Skyr með sítrónusælu er sannkölluð veisla
fyrir bragðlaukana. Kolvetnaskert,fitulítið,
próteinríkt og dásamlegt á bragðið.
Sjáloðaliðar óskast
til starfa í fatabúðir
Rauða krossins
Áhugasamir sendi umsókn á Söndru á netfangið
sandra@redcross.is. Nánari upplýsingar í síma
898 7179 og 570 4064.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6–
11
33
Fjölbrey og skemmtilegt starf í góðum félagsskap.
Vertu hluti af heild og nýu tímann til góðra verka.
Rauðakrossbúðirnar eru fimm á höfuðborgar-
svæðinu og eru mikilvæg fjáröflun fyrir innan-
og utanlandsstarf félagsins.
eldhúsinu gera tófúbollurnar okkar
frá grunni og þær eru ótrúlega
bragðgóðar og stökkar.“ Sósurnar á
NAM eru einnig gerðar frá grunni úr
fersku hráefni.
40 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016