Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 56
56 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
ÆVINTÝRI
KUGGS
NÝ
Furðuleg frönsk ævintýri og
rómverskir riddarar!
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
Íslenska heimildamyndin Keep Frozen hefur verið valin til sýninga á Vision
de Reel kvikmyndahátíðinni í Nyon í Sviss. Hátíðin er í A-flokki heimildar-
mynda og verður myndin heimsfrumsýnd þar þann 17. apríl næstkomandi.
Keep Frozen fjallar um löndunarstarfið í allri sinni vídd og fagurfræði en
leikstjórinn og myndlistarkonan Hulda Rós Guðnadóttir fylgdist með hópi
löndunarmanna við störf síðastliðinn vetur. Helga Rakel Rafnsdóttir fram-
leiðir myndina en saman gerðu þær Hulda heimildarmyndina Kjötborg
sem vann til fjölda verðlauna og var sýnd á hátíðum víða um heim. Keep
Frozen var styrkt af Kvikmyndasjóði og hefur RÚV keypt sýningarréttinn.
Tónlistarmaðurinn Guðmundur
Pétursson er staddur í lyftunni hans
Spessa, ljósmyndara í gömlu Kassa-
gerðinni á Laugarnesi. Á ferðalaginu upp fjórar hæð-
ir hússins segir Guðmundur frá sorg bernskuáranna
og hæðum þess að verða faðir.
„Minn botn, eða lægð, átti sér stað þegar ég var
14 ára. Ég var bara unglingur og missti móður mína
fyrirvaralaust, það var mikið áfall og sorg,“ segir
Guðmundur. Hann segir jafnframt móðurmiss-
inn hafa breytt lífi sínu til frambúðar. „Missirinn
og sorgarferlið breytti mér og gerði mig að þeirri
manneskju sem ég er í dag. Sorgarferli getur verið
mannbætandi um leið, sérstaklega ef þú átt góða
fjölskyldu.“ Guðmundur segir hápunkt ævinnar þegar
drengurinn hans fæddist fyrir fjórum árum. „Það er há-
punktur sem fer langt um hærra en mig hefði órað fyrir.
Ég hef verið á upphækkandi hápunkti síðan.“
Þegar Guðmundur lýsir tilfinningunni að verða faðir
er hann sannfærður um heilinn taki að framleiða ný
efni. „Það er eitthvað sem fer í gang, losnar um einhver
efni sem heilinn hefur ekki gert áður. Samtalið í hausn-
um á manni þurrkast út og myndin af heiminum verður
skýrari. Mannlífið og manns eigin barnæska fer öll í rétt
ljós. Það verður einhverskonar úrvinnsla í huganum sem
kemur manni á hápunkt.“ | sgk
Föðurhlutverkið er
upphækkandi hápunktur
Guðmundur Pétursson segir heimsmyndina skýrari eftir að sonur hans fæddist.
Lyftan #13
Spessi
Sigrún Magnúsdóttir,
umhverfisráðherra
og þingkona
Framsóknarflokksins.
Keep Frozen til Sviss
Snemma á mánudagsmorgni í
ágúst síðastliðnum stauluðust
svefndrukknir túristar út úr
tjöldum sínum á tjaldsvæðinu í
Laugardal og mættu óvenjulegri
sjón; kópi sem sloppið hafði úr
selalaug Húsdýragarðsinum og
mjakað sér alla leið á tjaldsvæðið.
Þó lögreglan kæmi skömmu
síðar á vettvang og
handsamaði kópinn
varð hann samstundis
að fjölmiðlahetju og tákn-
mynd lífsviljans í gúrkutíð ágúst-
mánaðar.
Skömmu síðar var tilkynnt að
kópnum yrði slátrað, en 1500
manns kröfðust
þess á Facebook að lífi sprettharða
kópsins yrði þyrmt. Líklega fannst
ráðamönnum Húsdýragarðsins
fjöldinn ekki vera alþýða landsins,
og tveimur dögum eftir að kópur-
inn flúði var honum slátrað. Þetta
er talið ein versta ákvörðun í sögu
Íslands og jók ekki vinsældir Hús-
dýragarðsins.
Þó selurinn sé nú kominn á vit
feðra sinna var hann einstakur
afreksselur og vert að minnast
hans fyrir það. Hvíl í friði.
Líf mitt sem strokuselur
Munið þið eftir sprettharða kópnum?
Leynigestur
Fréttatímans