Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 66
1Fá hlutlausan sér-fræðing til að meta
ástand eignarinnar og
viðgerðaþörf.
2Við minni verk er hægt að óska eftir
tilboðum frá verktök-
um byggðum á magn-
tölum og verklýsingu.
Við stærri verk fer yfir-
leitt fram útboð.
3Meta þarf tilboðin í samhengi við út-
boðsgögnin, heildar-
verð, einingaverð, upp-
setningu tilboðsins og
verktíma.
4Þegar ákveðið hefur verið hvaða
tilboði skal taka, er
gengið til samninga við
viðkomandi verktaka.
Seint verður nægjan-
lega brýnt fyrir fólki
mikilvægi þess að gera
skriflegan samning við
verktaka hvort sem er
um lítil eða stór verk
að ræða.
5Eftirlit með framkvæmd þarf
að vera í vel skil-
greint og föstum
farvegi og oft er ráð-
inn til þess óháður
aðili.
6 Lokauppgjör fer fram eftir
að verki telst lokið.
Mikilvægt er að taka
út framkvæmdina
og frágang á verkinu
áður en lokagreiðsla
fer fram.
Húseigendafélagið hefur
gætt hagsmuna húseigenda í
rúma níu áratugi
Húseigendafélagið var stofnað árið
1923 og er almennt hagsmunafélag
fasteignaeigenda á Íslandi, hvort
sem fasteignin er íbúð, einbýlishús,
atvinnuhúsnæði, land eða jörð,
leiguhúsnæði eða til eigin nota.
Félagar eru bæði einstaklingar,
fyrirtæki og félög, þ.m.t. húsfélög
í fjöleignarhúsum. Upphaflega var
félagið fyrst og fremst hagsmuna-
vörður leigusala og stöndugra fast-
eignaeigenda í Reykjavík en í tím-
ans rás hefur það orðið almennt
landsfélag, meira í ætt við neyt-
endasamtök og obbi félagsmanna er
íbúðareigendur í fjöleignarhúsum.
Félagsmenn eru um 10.000 og þar
af eru nálægt 800 húsfélög. Félags-
mönnum hefur fjölgað jafnt og þétt
síðustu árin, einkum og sér í lagi
húsfélögunum.
Starfsemi Húseigendafélagsins er
þríþætt, almenn hagsmunagæsla
fyrir fasteignaeigendur, almenn
fræðslustarfsemi og upplýsinga-
miðlun, sem og ráðgjöf og þjónusta
við félagsmenn.
Húsfundaþjónusta félagsins fel-
ur í sér aðstoð og ráðgjöf við undir-
búning funda, þ.e. dagskrá, tillögur,
fundarboð og fundarstjórn og ritun
fundargerða. Þá býður félagið einn-
ig upp á húsaleiguþjónustu.
Húseigendafélagið rekur sér-
hæfða lögfræðiþjónustu fyrir félags-
menn sína á þeim réttarsviðum,
sem varða fasteignir og eigendur
þeirra. Lögfræðiþjónustan hef-
ur verið þungamiðjan í starfsemi
félagsins síðustu áratugi.
6 heilræði til húsfélaga í framkvæmdaham
Hagsmunagæsla
fyrir húseigendur
Bryndís Guðjónsdóttir þjónustufulltrúi og Harpa Helgadóttir, skrifstofustjóri hjá Húseigendafélaginu.
Húseigendafélagið
Húseigendafélagið er til húsa að Síðumúla 29 í Reykjavík.
Sími: 588-9567.
Netfang: postur@huseigendafelagid.is.
Á skrifstofunni eru veittar nánari upplýsingar um félagið, starfsemi þess
og þjónustu. Þar fást margvísleg gögn og upplýsingar, s.s. lög og reglu-
gerðir, eyðublöð fyrir húsaleigusamninga og fræðsluefni af ýmsu tagi.
www.huseigendafelagid.is Heimasíða félagsins er ný og endurbætt
og hefur að geyma margvíslegar upplýsingar um Húseigendafélagið,
starfsemi þess og viðfangsefni. Þar er m.a. yfirlit yfir fjölda greina sem
lögfræðingar félagsins hafa ritað og félagsmenn geta fengi endurgjalds-
laust.
Þjónusta við félagsmenn Þjónusta félagsins er einskorðuð við félags-
menn enda standa þeir undir starfsemi þess með félagsgjöldum sínum.
Félagið stendur á eigin fótum fjárhagslega og þiggur enga styrki.
Félagsgjöldum er mjög í hóf stillt. Árgjald einstaklings er 5.500 krónur
en 3.500 krónur fyrir hvern eignarhluta þegar um húsfélög er að ræða.
Skráningargjald, 4.900 krónur, er greitt er við inngöngu og felst í því
viðtalstími við lögfræðing.
Mynd | Hari
Kannaðu
ástand
glugganna
Þegar sumarið nálgast er tilvalið
að huga að þeim verkum sem bíða
fyrir sumarið. Á vorin er gott að gera
ástandsskoðun á timbri og málningu
á gluggum. Til að meta hvort tími sé
kominn til að mála er best að bregða
málningarsköfu (eða svipuðu áhaldi)
á málninguna næst glerinu. Ef máln-
ingin lætur ekki undan þá er ástand
gluggans í góðu lagi. Ef hún bólgnar
upp er hins vegar þörf á viðhaldi.
2 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
Viðhald húsa AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
BLIKKÁS –
Smiðjuvegi 74 – 200 Kópavogi – Sími 515 8700
www.funi.is – www.blikkas.is
FR
U
M
-
w
w
w
.f
ru
m
.is
Þú nærð árangri
með Plannja þakrennum
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Úrval lita á lager
www.ishusid.is ∑ S:566 6000 ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur
Stundum þarf maður
bara smá frið
hljóðlátu vifturnar
í húsið