Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 62
62 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
Pörin og sambýlingarnir Aron, Hildur, Styrmir
og Vera eru nemar á ólíkum sviðum, allt frá
jarðeðlisfræði til leiklistar. Þau vakna því öll
snemma á morgnana í skólann. Þennan morguninn
gáfu þau sér þó tíma til að fara í bakarí og fá sér
morgunverð saman, en segja það algjört einsdæmi.
Venjulega séu unaðsstundir sambýlinganna alls ekki á
morgnana, heldur á kvöldin þegar fjórmenningarnir
kíkja út í ísbúð og horfa á vídeó saman heima.
„Það er svo mikil snilld að búa með skemmtilegu
fólki því maður er aldrei einn,“ segir Aron og hin taka
undir það: „Þetta er eins og lítil nútímafjölskylda.“
Morgunstundin
„Þetta er eins og lítil
fjölskylda“
Mynd | Rut
Hvað þýða þessi orð?
Benni, Þorri, Þóra og Hanna
Guðrún settust niður og
veltu fyrir sér ýmsum orðum
Afruglari: Hmm, að vera alveg rugl-
aður?
Vídeóleiga: Leigja mynd í sjón-
varpinu.
Loftnet: Til að horfa á sjónvarpið,
stundum upp á þaki, eða svona
yfirleitt.
Selfie: Ég veit ekki hvað það þýðir.
Fössari: Föstudagur!
Hipster: Að vera heimsmeistari.
Bankahrun: Ég held það þýði að
steinar séu að hrynja.
Þorri Ingólfsson
6 ára
Afruglari: Það er dós.
Vídeóleiga: Það er í sjónvarpinu, til
að horfa á mynd.
Loftnet: Það er svona dót í
loftinu.
Fössari: Það er byssa.
Selfie: Að taka mynd af sér.
Hipster: Það er svona tónlist.
Bankahrun: Ég held það séu
peningar.
Þóra
Marín
Sigmundsdóttir
4 ára
Afruglari: Að vera rugludallur.
Vídeóleiga: Svona vídeó eins og
bróðir minn leigir í tölvunni.
Loftnet: Ég veit ekki.
Selfie: Ég veit ekki alveg en það er
svolítið eins og selur.
Fössari: Það er held ég föstudagur.
Hipster: Ég veit ekki alveg.
Bankahrun: Banki?
Hanna Guðrún
Ingólfsdóttir
4 ára
Afruglari: Ég hef aldrei heyrt þetta
áður. Kannski að maður sé alltaf
ruglaður en gleymir því aldrei að
maður sé ruglaður?
Vídeóleiga: Þá fer maður svona inn
á sjónvarpið og þar getur maður leigt
allskonar myndir. Ég hef oft gert það.
Loftnet: Það er gervihnöttur út
í geim sem sendir á stöð lengst í
burtu og það er stór hnöttur sem
dreifir þessu yfir öll „system“ og í
sjónvarpið.
Selfie: Þegar maður tekur mynd af
sjálfum sér.
Fössari: Ég hef aldrei heyrt þetta,
hef ekki hugmynd.
Hipster: Hypjaðu þig burt?
Bankahrun: Það er þegar peningar
hrynja inn í bankann.
Benjamín
Gunnar
Valdimarsson
7 ára
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
Ég er frekar rólegur gaur en núna er ég brjálaður,“ segir Hemúllinn þegar hann stígur af sviði á mótmælafundi mánu-dagsins 4. apríl.
Arnar Snæberg Jónsson er verk-
efnastjóri hjá Reykjavíkurborg og
þriggja barna fjölskyldufaðir en á sér
hliðarsjálf, tónlistarmanninn Hem-
úlinn sem þekktur er fyrir slagara
á borð við „Þvílík firra, þvílík fórn!
Þett'er vanhæf ríkisstjórn!“ og „Sig-
mundur Davíð hvar er peningurinn
minn?“, sem flutt að sjálfsögðu var
flutt á mótmælunum, þó í útgáfu
sem hét: „Sigmundur Davíð hvar er
peningurinn ÞINN?“.
Orkan og reiðin streymdi frá
Hemúlnum, en Arnar segist sjálfur
ólíkur Hemúlnum að flestu leyti.
„Mér dettur til dæmis aldrei í hug
að láta fólk heyra það eða neitt, en
Hemúllinn sér um það.“ Hemúll-
inn sé þó óhræddur við það, enda
hatar hann fávita, að sögn Arnars:
„Hvort sem það eru fávitar í pólitík,
þeir sem leggja í fatlaðrastæði eða
rasistar.“
Arnar heldur á trépriki og á enda
þess er tálguð hönd sem vel að
merkja heldur miðjufingrinum uppi.
Höndina fundu börnin hans uppi
undir súð á heimili þeirra í Hafnar-
firði. Prikið á vel við hér á Austur-
velli og skekur Hemúllinn tréputt-
ann í átt að Alþingi milli þess sem
hann hrópar „Vanhæf ríkisstjórn!“
með fjöldanum.
Hemúllinn á langan feril að baki,
en hann leit fyrst dagsins ljós árið
2001. „Hemúllinn varð til þegar ég
barðist við þunglyndiseinkenni,“
segir hinn 38 ára gamli Arnar.
Hemúllinn gerir alla sína tónlist í
Guitar Pro, forrit sem hann stal á
netinu og er að hans sögn alls ekki
ætlað til tónlistarsköpunar. „Ég
kann bara ekki á nein tónlistarforrit,
þess vegna er svolítið fyndið að ég
búi til raftónlist.“
Tónlistin hefur þó breyst mikið á
15 ára ferli. „Til að byrja með voru
lögin poppaðri tónlist og textar, en
með aldrinum varð ég reiðari og
textarnir breyttust í samræmi við
það.“
Arnar segir áætlan Hemúlsins
einfaldlega að vera alltaf á móti
og segir Hemúlnum slétt sama um
hvort fólk fíli sig eða ekki. „Ef Sjálf-
stæðisflokkurinn vill ekki ráða þig
ertu ekki að gera neitt rangt. Það er
mikilvægara að vera trúr sjálfum sér
en að fá gigg.“
Nú er Hemúllinn í fyrsta sinn á
leið í stúdíó, þvert á upprunalega
stefnu sína um að gefa aldrei út eitt
einasta lag. „Ég klúðraði eigin stefnu
og lofaði á Facebook að ef ég fengi
1000 læk gæfi ég út efni. Sem er
vandamál því Hemúllinn svínvirkar
á sviði en drepst alveg í stúdíói.“
Næst mun Hemúllinn koma fram
á Norðanpaunks-hátíðinni í sumar
auk annarra gigga, sjái hann sig ekki
knúinn til að ausa úr skálum reiði
sinnar á frekari mótmælafundum í
millitíðinni.
„Hemúllinn er ómengaður og tær
pirringur og ég held að það sé það
sem fólki fíli við þetta. Stundum er
betra að öskra um hlutina í stað þess
að röfla um þá, og það er það sem
fólk langar í raun til að gera.“
„Sigmundur Davíð, hvar
er peningurinn þinn?“
Pönktónlistarmaðurinn Hemúllinn er hliðarsjálf
fjölskylduföður í Breiðholtinu
Hemúllinn fann þetta eftirtektarverða prik uppi á lofti hjá sér,
og nýtti það vel á mótmælafundi mánudagsins.
Arnar er verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg í Mjóddinni þegar hann sinnir
ekki hliðarsjálfi sínu, hinum reiða Hemúl.
Mynd | Rut