Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 49
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Hrottalegt morð er framið á hlaupastíg. Fórnarlambið er ung kona, í
vasa hennar finnst hálsmen með mynd af Astekaguði, morðvopnið er
haglabyssa. Skömmu síðar er framið annað morð: sama umhverfi, sams
konar skartgripur. Hvernig velur morðinginn fórnarlömb sín? Tengjast
morðin leynilegum trúarsöfnuði? Hver verður næsta fórnarlamb?
Bækur Kati Hiekkapelto um lögreglukonuna Önnu Fekete fara nú
sigurför um heiminn enda vel skrifaðar, hörkuspennandi og taka á því
vandamáli sem nú herjar hvað mest á Evrópu, flóttamannavandanum
og stöðu innflytjenda.
Bókin var tilnefnd til Petrona verðlaunanna í Bretlandi 2015 fyrir bestu
norrænu glæpasögu ársins.
Sigurður Karlsson þýddi bókina.
Löður daganna er ástarsaga þar sem dansað er kankvíslega á mörkum
draums og veruleika, hversdags og óskhyggju, en sagan er um leið óður til
lífsins, ástarinnar og tónlistarinnar, einkum djasstónlistarinnar.
Sagan kom fyrst út árið 1947 er nú talin með merkustu skáldsögum
Frakka á 20. öld. Sagan hefur alla tíð notið gríðarlegra vinsælda, tvisvar
verið kvikmynduð, gerð eftir henni ópera, teiknimynd og margoft verið
sett á svið. Hún hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál, þar á meðal
þrisvar á ensku.
Boris Vian (1920–1959) var franskur verkfræðingur, uppfinningamaður,
rithöfundur, lagasmiður og djassmaður.
Friðrik Rafnsson íslenskaði og skrifar eftirmála.
Þór Saari sat á Alþingi 2009–2013 og kynntist vel þinginu og starfsháttum
þess. Í þessari bók gerir hann grein fyrir þessari reynslu sinni og greinir
þann fjölþætta vanda sem lögjafarsamkoma Íslendinga á við að stríða. Í
bókinni er að finna harða gagnrýni á starfshætti þingsins og sýnt er hvernig
þessir starfshættir stuðla m.a. að þeirri skömm sem stór hluti þjóðarinnar
hefur á stjórnmálum og stjórnmálamönnum.
„Fjögurra ára þingmennska Þórs Saari breytist hér í vettvangsrannsókn
– með henni tekst honum að sýna margar helstu ástæður þess að Alþingi
virðist ýmist máttlaust eða marklaust.“
Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði við HÍ
„Með þessari bók um hegðunarvandamál Alþingis og persónulega reynslu
sína af þingstörfum hefur Þór Saari unnið þarft verk ... Þessa stuttu en
snörpu bók þurfa sem flestir að lesa.“
Þráinn Bertelsson, kvikmyndagerðarmaður
Glæpir, ástir og Alþingisvandamálið
5
Eymundsson
6. apríl 2016
7
Eymundsson
6. apríl 2016