Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 78
14 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
Kynningar | Viðhald húsa
Unnið í samstarfi við Verksýn
Verksýn ehf. er tækniþjónusta með sérhæfingu á sviði viðhalds og endurbóta á mannvirkjum, innandyra sem utan. Við höfum
einnig sinnt fjölbreyttum verkefnum
sem snúa að eftirliti og annarri ráðgjöf
með nýframkvæmdum. Þá starfar fyrir-
tækið við almenna framkvæmdaráð-
gjöf, við álitsgerðir, byggingastjórnun og
hönnun mannvirkja. Frá stofnun fyrir-
tækisins árið 2006 hefur starfsmönnum
fjölgað jafnt og þétt og í dag starfa 8
starfsmenn hjá Verksýn.
Viðskiptavinir okkar eru t.d. einstak-
lingar, fyrirtæki, stofnanir, fasteigna-
félög og húsfélög. Markmið okkar er
að mæta þörfum viðskiptavina okkar
á besta mögulega hátt með nýtingu
þeirrar þekkingar og þess mannauðs
sem við búum yfir.
Hjá Verksýn starfa sérfræðingar með
áratuga reynslu af störfum við mann-
virkjagerð og við viðhald og endurbæt-
ur mannvirkja.
Verksýn starfar eftir gæðakerfi sem
vottað er af Mannvirkjastofnun.
Fagþekking
Starfsmenn Verksýnar hafa víðtæka
reynslu af ráðgjöf um viðhald fast-
eigna. Þeir búa yfir mikilli fagþekkingu
á iðngreinum, sem er ein af helstu
undirstöðum vandaðrar og faglegrar
ráðgjafar.
Verksýn hefur á að skipa fjölda bygg-
ingafræðinga og iðnmeistara. Sérstök
hæfni þeirra í greiningu á byggingar-
skemmdum og þekking á bygginga-
tækni tryggir gæði í skipulagningu,
útfærslu, rekstri og viðhaldi fasteigna.
Ástandsskoðun Verksýnar
Ástandsskýrsla er það tæki sem
fasteignaeigendur og forsvarsmenn hús-
félaga hafa til að leggja mat á viðhalds-
þörf á hverjum tíma.
Ástandsskýrslan gefur glögga mynd af
viðhaldsþörf næstu árin og er áreiðan-
legur grundvöllur ákvarðanatöku.
Árleg viðhaldsþörf fasteigna
Út frá reynslutölum er áætlað að 1-2%
af verðmæti fasteigna þurfi til að mæta
eðlilegu viðhaldi þeirra á hverju ári.
Með því að grípa tímanlega inn í óhjá-
kvæmilegt „hrörnunarferli“ er hægt að
minnka framkvæmdakostnað verulega.
Lagnir
Viðhald lagna krefst vandaðs undir-
búnings, enda er oft um mjög kostn-
aðarsamar framkvæmdir að ræða. Við
veitum ráðgjöf varðandi: grunn- og
jarðlagnir hita- og neysluvatnslagnir.
Ókeypis námskeið
Verksýn býður stjórnum húsfélaga til
námskeiðs í undirbúningi viðhalds-
framkvæmda. Farið er yfir feril við-
haldsframkvæmda á fjölbýlishúsum.
Námskeiðin eru haldin að Síðumúla 1,
Reykjavík og eru opin öllum stjórnar-
mönnum húsfélaga, þeim að kostnaðar-
lausu. Skráning með tölvupósti á verk-
syn@verksyn.is eða í síma 517 6300.
Útboðsgögn
Útboðsgögn eru lykilgögn eigenda
þegar kemur að framkvæmdum. Verk-
sýn býður út tugi framkvæmda á hverju
ári. Með útboðsgögnum er tryggt að
verktakar bjóði í verkið á sama grund-
velli, að eigendur eigi auðvelt með að
meta tilboðin og eftirlit með verklegum
framkvæmdum.
Fagþekking og vönduð ráðgjöf
Hjá Verksýn starfa sérfræðingar sem hafa yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af viðhaldi og endurbótum
Reyndur umsjónaraðili
Þegar ráðist er í viðhaldsframkvæmdir er nauðsynlegt
að hafa reyndan umsjónar- og eftirlitsaðila með verkinu.
Sem eftirlitsaðili tryggir Verksýn að verktaki sinni þeim
skyldum sem á hann eru lagðar samkvæmt ákvæðum
útboðsgagna:
1. Að ábyrgir iðnmeistarar séu skráðir á viðeigandi verkliði
2. Fer yfir allar tryggingar verktaka
3. Yfirfer tæknilegar upplýsingar
4. Yfirfer verkáætlanir
5. Eftirlit með framgangi framkvæmda
6. Eftirlit með vinnubrögðum og umgengni
7. Leysir úr óvissuatriðum
8. Stjórnar verkfundum
9. Ritar fundargerðir
10. Fer yfir reikninga frá verktaka
11. Hefur umsjón með úttektum
12. Samskipti við íbúa
13. Varðveitir gögn í 10 ár eftir verklok
Kostnaður við umsjón og eftirlit skilar sér til eigenda í
hagkvæmni og meiri gæðum framkvæmda.
Verksýn býður stjórnum hús-
félaga til námskeiðs í undir-
búningi viðhaldsframkvæmda.
Farið er yfir feril viðhaldsfram-
kvæmda á fjölbýlishúsum. Reynir Kristjánsson stofnaði Verksýn árið 2006 og hefur stýrt fyrirtækinu síðan.
Átta starfsmenn eru nú hjá Verksýn.