Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 08.04.2016, Side 78

Fréttatíminn - 08.04.2016, Side 78
14 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016 Kynningar | Viðhald húsa Unnið í samstarfi við Verksýn Verksýn ehf. er tækniþjónusta með sérhæfingu á sviði viðhalds og endurbóta á mannvirkjum, innandyra sem utan. Við höfum einnig sinnt fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eftirliti og annarri ráðgjöf með nýframkvæmdum. Þá starfar fyrir- tækið við almenna framkvæmdaráð- gjöf, við álitsgerðir, byggingastjórnun og hönnun mannvirkja. Frá stofnun fyrir- tækisins árið 2006 hefur starfsmönnum fjölgað jafnt og þétt og í dag starfa 8 starfsmenn hjá Verksýn. Viðskiptavinir okkar eru t.d. einstak- lingar, fyrirtæki, stofnanir, fasteigna- félög og húsfélög. Markmið okkar er að mæta þörfum viðskiptavina okkar á besta mögulega hátt með nýtingu þeirrar þekkingar og þess mannauðs sem við búum yfir. Hjá Verksýn starfa sérfræðingar með áratuga reynslu af störfum við mann- virkjagerð og við viðhald og endurbæt- ur mannvirkja. Verksýn starfar eftir gæðakerfi sem vottað er af Mannvirkjastofnun. Fagþekking Starfsmenn Verksýnar hafa víðtæka reynslu af ráðgjöf um viðhald fast- eigna. Þeir búa yfir mikilli fagþekkingu á iðngreinum, sem er ein af helstu undirstöðum vandaðrar og faglegrar ráðgjafar. Verksýn hefur á að skipa fjölda bygg- ingafræðinga og iðnmeistara. Sérstök hæfni þeirra í greiningu á byggingar- skemmdum og þekking á bygginga- tækni tryggir gæði í skipulagningu, útfærslu, rekstri og viðhaldi fasteigna. Ástandsskoðun Verksýnar Ástandsskýrsla er það tæki sem fasteignaeigendur og forsvarsmenn hús- félaga hafa til að leggja mat á viðhalds- þörf á hverjum tíma. Ástandsskýrslan gefur glögga mynd af viðhaldsþörf næstu árin og er áreiðan- legur grundvöllur ákvarðanatöku. Árleg viðhaldsþörf fasteigna Út frá reynslutölum er áætlað að 1-2% af verðmæti fasteigna þurfi til að mæta eðlilegu viðhaldi þeirra á hverju ári. Með því að grípa tímanlega inn í óhjá- kvæmilegt „hrörnunarferli“ er hægt að minnka framkvæmdakostnað verulega. Lagnir Viðhald lagna krefst vandaðs undir- búnings, enda er oft um mjög kostn- aðarsamar framkvæmdir að ræða. Við veitum ráðgjöf varðandi: grunn- og jarðlagnir hita- og neysluvatnslagnir. Ókeypis námskeið Verksýn býður stjórnum húsfélaga til námskeiðs í undirbúningi viðhalds- framkvæmda. Farið er yfir feril við- haldsframkvæmda á fjölbýlishúsum. Námskeiðin eru haldin að Síðumúla 1, Reykjavík og eru opin öllum stjórnar- mönnum húsfélaga, þeim að kostnaðar- lausu. Skráning með tölvupósti á verk- syn@verksyn.is eða í síma 517 6300. Útboðsgögn Útboðsgögn eru lykilgögn eigenda þegar kemur að framkvæmdum. Verk- sýn býður út tugi framkvæmda á hverju ári. Með útboðsgögnum er tryggt að verktakar bjóði í verkið á sama grund- velli, að eigendur eigi auðvelt með að meta tilboðin og eftirlit með verklegum framkvæmdum. Fagþekking og vönduð ráðgjöf Hjá Verksýn starfa sérfræðingar sem hafa yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af viðhaldi og endurbótum Reyndur umsjónaraðili Þegar ráðist er í viðhaldsframkvæmdir er nauðsynlegt að hafa reyndan umsjónar- og eftirlitsaðila með verkinu. Sem eftirlitsaðili tryggir Verksýn að verktaki sinni þeim skyldum sem á hann eru lagðar samkvæmt ákvæðum útboðsgagna: 1. Að ábyrgir iðnmeistarar séu skráðir á viðeigandi verkliði 2. Fer yfir allar tryggingar verktaka 3. Yfirfer tæknilegar upplýsingar 4. Yfirfer verkáætlanir 5. Eftirlit með framgangi framkvæmda 6. Eftirlit með vinnubrögðum og umgengni 7. Leysir úr óvissuatriðum 8. Stjórnar verkfundum 9. Ritar fundargerðir 10. Fer yfir reikninga frá verktaka 11. Hefur umsjón með úttektum 12. Samskipti við íbúa 13. Varðveitir gögn í 10 ár eftir verklok Kostnaður við umsjón og eftirlit skilar sér til eigenda í hagkvæmni og meiri gæðum framkvæmda. Verksýn býður stjórnum hús- félaga til námskeiðs í undir- búningi viðhaldsframkvæmda. Farið er yfir feril viðhaldsfram- kvæmda á fjölbýlishúsum. Reynir Kristjánsson stofnaði Verksýn árið 2006 og hefur stýrt fyrirtækinu síðan. Átta starfsmenn eru nú hjá Verksýn.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.