Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 28
Í tíu mánuði var Jóhannes
Kr. Kristjánsson með stillt á
niðurteljara að sunnudeg-
inum 3. apríl, þegar hann
vissi að framtíð forsætis-
ráðherra myndi ráðast.
Að burðast einn með
þetta leyndarmál reyndist
mikil þolraun fyrir tilfinn-
ingaveruna. Hann átti bágt
með að trúa sínum eigin
augum.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Við Jóhannes hittumst klukkan ell-
efu um kvöld, tveimur sólarhring-
um eftir að afrakstur þrotlausrar
vinnu var gerður opinber í Kastljósi
RÚV á sunnudag. Aðeins klukku-
tímum eftir að Sigmundur Davíð
hrökklaðist úr starfi. Tímasetn-
ingin er lýsandi fyrir vinnudaga
Jóhannesar um þessar mundir.
Hann býður mér á skrifstofu sína
í austurborginni og tekur á móti
mér með opinn faðminn, þreytu-
legur og skeggjaður með sígarettu í
munnvikum.
Á ómerktri vinnustofunni er
dregið fyrir alla glugga, matarum-
búðir og kókflöskur eru á borðum
og staflar af gögnum um allt. Hann
vill ekki að fólk viti hvar hann
vinnur. „Hér höfum við haldið til
dag og nótt undanfarnar vikur,“
segir Jóhannes og hellir upp á kaffi.
Dagurinn er ekki allur enn. Teymið
sem hefur unnið með honum á
lokametrunum hefur barið saman
handrit úr flóknum skjölum og
reynt að setja upplýsingarnar sem
fundust í eitthvert samhengi. Þeir
Aðalsteinn Kjartansson, Helgi
Seljan, Ingi Ragnar Ingason, Þóra
Arnórsdóttir og Sævar Jóhannes-
son hjá RÚV hafa öll lagst á eitt við
verkið.
Í spennufalli
Á meðan Jóhannes les fréttir af til-
kynningu upplýsingafulltrúa Sig-
mundar Davíðs til erlendra frétta-
miðla, gægist ég til að skoða töfluna
á veggnum, þar sem hann hefur
púslað brotunum saman.
„Þetta er gjörsamlega óskiljan-
leg yfirlýsing,“ segir Jóhannes og
hristir höfuðið. „Er maðurinn
hættur eða ekki?“ Síminn hans
hringir stanslaust.
Óumdeildur maður vikunnar
er úrvinda eftir spennufallið og
áreitið sem hefur verið linnulaust
síðan á sunnudaginn. Eftir Kastljós-
þáttinn hefur Jóhannes verið meira
og minna í símanum og svarað
fyrirspurnum frá erlendum blaða-
mönnum. „Nú vildi ég helst vera
staddur á báti í Önundarfirði, fjarri
öllum símum og fréttum. Þetta
hefur verið svakalegur rússíbani.“
Trúði ekki sínum eigin eyrum
Upphafið að þessu öllu var í fyrra-
sumar þegar Jóhannes hafði unnið
með ICJI samtökunum í á annað
ár.„Ég var beðinn um að koma á
símafund með þeim en vissi ekki
hvert tilefnið var. Ég var eitthvað
seinn fyrir svo ég sat í bíl þegar
fundurinn átti sér stað. Í stuttu
máli var mér sagt að samtökin
væru að vinna að stærsta leka
sögunnar frá stærstu lögfræðistofu
Panama í heimi aflandsviðskipta.
Þar kæmi nafn forsætisráðherra
Íslands við sögu. Ég var spurður
hvort ég vildi taka þátt í að skoða
þetta. Á þessari stundu fraus allt í
kringum mig. Ég bara trúði þessu
ekki. Í þessu samtali heyrði ég fyrst
af félaginu Wintris og nafn eigin-
konu forsætisráðherra. Ég hafði
ekki hugmynd um hver hún var. Í
kjölfarið var ég beðinn um að koma
til Washington til að kanna málið
nánar. Ég játti því strax.“
Þá tók við ferli þar sem Jóhann-
esi var kynnt hvernig unnið yrði úr
skjölunum. Fjölmargir blaðamenn
voru beðnir um að taka þátt í verk-
efninu og í upphafi var Jóhannes al-
gjörlega einn síns liðs. Atvinnulaus
og án nokkurs baklands í fjölmiðli.
„Það komu alveg tímabil á
meðan ég vann að þessu þar sem
ég leiddi hugann að því hvort þetta
Maður vikunnar Jóhannes Kr. Kristjánsson var eini blaðamaðurinn sem vann launalaust við Panama-skjölin
Ég trúði
þessu ekki
sjálfur
myndi hafa einhverjar afleiðingar fyrir
mig persónulega eða fjölskyldu mína.
Hver myndi ekki hugsa það, vinnandi
að umfjöllun af þessu tagi um valda-
mesta fólkið í landinu? Þess vegna gat
ég engum sagt hvað ég var að gera.
Vinir og ættingjar höfðu áhyggjur af
því að ég væri ekki gera neitt og spurðu
konuna mína hvort ég ætlaði ekkert að
fara að vinna.“
Undrandi á viðbrögðunum
Jóhannes segist strax hafa áttað sig á
því að um stóra frétt væri að ræða. „En
ég gat ekki ímyndað mér að viðbrögðin
yrðu svona sterk. Upplýsingarnar eru
allar í miðlægum gagnagrunni og þó ég
hafi leitarheimild þá er hægt að grafa
sig endalaust ofan í gögnin. Skjölin
komu í nokkrum hollum og smátt og
smátt teiknaðist upp mynd af tengslum
íslenskra áhrifamanna við skattaskjól.
Jafnvel þó Ísland sé mjög fyrirferðamik-
ið í skjölunum er snúið að skilja flétt-
urnar milli aflandsfélaga og banka og
hvernig tengslin eru falin.“
Á miðvikudag birtist umfjöllun
í þættinum Uppdrag granskning í
sænska sjónvarpinu, um aðdrag-
andann og eftirmál af viðtali þeirra
Jóhannesar og Sven Bergman við
Sigmund Davíð. Þátturinn var sýndur
á RÚV í gær, fimmtudag. Sven er hluti
af rannsóknarteymi þáttarins og lýsir
sinni upplifun af viðtalinu í þessum
Fréttatíma. Viðtalinu sem þeir vissu að
myndi ráða framtíð forsætisráðherrans
og mögulega ríkisstjórnarinnar allrar.
„Það komu alveg tímabil á meðan ég vann að þessu þar sem ég leiddi hugann að því hvort
þetta myndi hafa einhverjar afleiðingar fyrir mig persónulega eða fjölskyldu mína.“
Myndir | Hari
Ég taldi
ekki ráðlagt
að íslenskur
blaðamaður
„konfrontaði“
ráðherrann með
upplýsingunum
sem við höfðum
undir höndum.
Það væri ekki
nægileg vigt í
því.“
28 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016