Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 38
Mynd | Hari
„Ég var að brenna út í
Þýskalandi þegar ég ákvað
að það væri kominn tími
á breytingar,“ segir Anne
Steinbrenner, lands-
lagsarkitekt frá Þýskalandi,
sem flutti til Íslands fyrir
átta árum. „Upphaflega
hugmyndin var ekki að
flytja hingað heldur langaði
mig í góða hvíld langt frá
Þýskalandi og helst í sveit,“
segir Anne sem fékk vinnu á
bóndabæ í nágrenni Víkur í
Mýrdal.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Það var rosalega gott að vera
í sveitinni þar sem ég vann við
einfalda hluti og gat látið hugann
reika. Eftir hvíldina leið mér svo
vel hérna að ég fór að svipast um
eftir vinnu við mitt hæfi.“
Anne fékk vinnu sem lands-
lagsarkitekt vorið 2008 en arki-
tektastofan fór á hausinn þegar
kreppan skall á um haustið. „Ég
kynntist manninum mínum í
kreppunni og daginn eftir að
við byrjuðum að búa missti ég
vinnuna. Ég hugsaði sem svo að
nú væri ferillinn ónýtur svo það
væri góður tími til að stofna fjöl-
skyldu,“ segir Anne sem í dag á
tvær dætur. „Og sem betur fer
byrjaði uppsveiflan í ferðabrans-
anum stuttu síðar svo ég fékk nýja
vinnu fljótlega.“
„Það sem mér líkar hérna er
hversu frjálslegt og afslappað
samfélagið er. Ef þú vilt taka þátt
í atvinnulífinu í Þýskalandi og
ganga vel þá getur þú ekki valið
að gera neitt annað. Það er ekki
hægt að ná langt í atvinnulífi og
eiga fjölskyldu því kröfurnar eru
miklu meiri. Ég var að vinna við
umhverfisskipulag í Kiel og þar var
rosalega mikið álag því stanslaust
var krafist yfirvinnu án þess að ég
fengi borgað fyrir það.“
„Minn draumur hefur alltaf ver-
ið að prófa marga hluti. Mér finnst
leiðinlegt að vinna bara og líka
leiðinlegt að vera bara heima en
hér hef ég getað gert hvort tveggja.
Mér finnst ég hafa fundið jafn-
vægið hérna. Í Þýskalandi þurfti
ég að flytja mikið vegna vinnunnar
en hér finnst mér svo frábært hvað
allt er lítið í sniðum. Þar var svo
lítill stöðugleiki í lífinu sem mér
finnst ég hafa náð hér.“
„Ég sakna vorsins í Þýskalandi
og að synda í vötnum. Ég sakna
auðvitað líka vinanna og þeirra
sem ég deili minningum með. Að
hlæja yfir einhverju sem gerðist
fyrir löngu síðan getur þú bara
gert með gömlum vinum og ég
sakna þess. Sumar minningar
gleymast hraðar því maður talar
ekki lengur um þær og það getur
verið erfitt.“
Þegar fuglarnir tala grísku
Eitt sinn var kona sem taldi sig vissa um að fuglarnir
í garðinum hennar töluðu grísku við hana og að látin
móðir hennar talaði til hennar. Þetta var árið 1941.
Það var að nálgast vor á Bretlandseyjum. Konan gekk
um í garðinum við hús sitt og eiginmannsins, Monk’s í
austurhluta Sussex.
Það virtist sem „opnast“ hefði um of á „milliheima-
gáttir“ í höfði hennar og það aukna flæði milli lítt
tengdra „heima“ hafði sterk áhrif á vitund hennar og
breytni þennan dag í lok marsmánaðar. Konan gekk
í kápu sinni með vasana fulla af grjóti í átt að ánni
Ouse sem rann skammt frá húsi „munksins“.
Hún hafði skilið eftir skilaboð til eiginmanns-
ins á eldhúsborðinu sem ráðskonan kom auga
á er hún hófst handa við að undirbúa máltíð
handa þeim hjónum.
Konan var í félagskap/hóp sem nefndi sig
Bloomsbury-hópinn. Í þeim hópi voru, auk
konunnar, manneskjur á borð við John
Maynard Keynes, E.M. Foster, Lytton
Strachey, Roger Fry, Clive Bell og fleira
andans fólk. Hópurinn hafði mikil
áhrif á þróun hugsunar í heimspeki,
listum, stjórnmálum og lífsviðhorf-
um á upphafsárum síðustu aldar.
Nánustu ættingjar og vinir
konunnar, sem nú gekk að ánni í
þungu kápunni albúin að hverfa, hafa
lýst henni sem skynsamri manneskju.
„Milliheimaflæðið“ virðist hafa sveiflað
henni títt frá hinni þröngu en nauðsynlegu skynsem-
isnálgun yfir í stjórnleysi.
Þar á milli bjó hins vegar jarðvegur gríðarlegrar
sköpunar sem konan hafði fram að þessum degi, 28.
mars 1941, geta umfaðmað og beint í farveg sköpunar
til áhrifa á heiminn.
Er eiginmaður konunnar, Leonard, gengur hægt
niður stigann í húsi þeirra heyrir hann rödd ráðs-
konunnar berast til sín. Hún er í uppnámi. Bréf merkt
honum liggur ásamt öðru bréfi á borðinu.
Virginia Woolf, eiginkona hans, er þá þegar komin
undir yfirborð ánnar Ouse. „Milliheimaflökt“ hugar
hennar hljóðnað. Ljósið upprisið úr líflausum líkama
hennar.
Það er umhugsunarefni hvernig við upplifum
veruleikann. Það að geta haldið „gáttinni“
opinni og geta stýrt flæðinu er vandmeðfarið.
Það er þó skoðun þeirra sem ég hef rætt við og
upplifað hafa „flökt“ að hægt sé að gera tilraun
til að stýra slíku með ákveðnum hætti. Huga að
svefni, hreyfingu, mataræði og heilsusamleg-
um lífsháttum. Forðast öll hugvíkkandi efni.
Vinna að sjálfsþekkingu og hugleiða.
Þetta eru engin geimvísindi. Þeir sem
hafa næma huga og telja skynsvið sín rúm
hafa það oft á orði að mikilvægast sé þó
að lágmarka utanaðkomandi áreiti, velja
sér við-bragð og hvíla vel í kjarna sínum,
punktinum.
Við erum öll „opin“. Við, þau „venjulegu“,
gætum skynjað snefil af „milliheimum“ rétt
fyrir svefn og í svefnrofum að morgni. Þá
gætu fuglarnir talað grísku.
Utan hringsins
Héðinn Unnsteinsson
Innflytjandinn Anne Steinbrenner
Anne Steinbrenner, landslagsarkitekt frá Þýskalandi, flutti til Íslands fyrir
átta árum og kann vel að meta frjálslegt og afslappað samfélagið.
Fann jafnvægið á Íslandi
www.austurindia.is
Hverfisgata 56 Opið: sun.-fim. 17:30 - 22:00 og fös.-lau. 17:30 - 23:00
Um þessar mundir halda Indverjar hina
litríku HOLI-hátíð. Austur-Indíafjelagið
færir þér angan af gleðinni og litadýrðinni
frá Indlandi fram í apríl með ríkulegum
fimm rétta HOLI hátíðarmatseðli
á frábæru verði: 5.990 kr. mán.-mið.
og 6.990 kr. fim.-sun.
Komdu og njóttu þess besta
í indverskri matargerð.
Tryggðu þér sæti núna í s. 552 1630.
100% DÚNSÆNG FYRIR
FERMINGARBARNIÐ
FERMINGARLEIKUR
LÍN DESIGN
MIÐAR Á
JUSTIN BIEBER
SKRÁÐU FERMINGARBARNIÐ
Lambagras
Verð nú 9.990 kr
Verð áður 14.990 kr
Blómahaf
Verð nú 7.990 kr
Verð áður 15.490 kr
LAUGAVEGI 176 | GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS
15 GERÐIR AF RÚMFÖTUM Á TILBOÐI
SJÁÐU ÚRVALIÐ Á LINDESIGN.IS
100% DÚNN / 790G DÚNN 140x200 Verð nú 23.994 kr Verð áður 39.990 kr
29.695kr.
49620201
GÖTUHJÓL 26”
6 gíra með körfu
skoðaðu úrvalið á www.byko.is
38 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016