Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 6
Nolan L. Williams,
framkvæmdastjóri ráð-
gjafafyrirtækisins The
Risk Consultancy.
Fullyrt er að lögmannsstofan Mossac
Fonseca á Panama hafi séð um nær
öll félög sem stofnuð voru fyrir til-
stilli Landsbankans í skattaskjólum.
Margt er á huldu um hvenær íslenskir
bankar stofnuðu til viðskipta við lög-
mannsstofuna. Þó er ljóst að afskipti
íslenskra banka af aflandsstarfsemi
var hafin vel fyrir einkavæðingu
gömlu bankanna, þótt síðar yrði
sprenging í skráningu slíkra félaga.
Ingimar Karl Helgason
ritstjorn@frettatiminn.is
Panamalekinn leiðir í ljós að um 800 huldu-
félög í eigu um 600 aðila hafi verið stofnuð í
skattaskjólum fyrir tilstilli Landsbankans, í
gegnum lögmannsstofuna Mossac Fonseca.
Þegar gagnalekinn er tekinn saman þá vekur
það eðlilega athygli hversu umfangsmikill
Landsbankinn hefur verið í þessum efnum,
samanborið við stóra erlenda banka. Kemst
raunar á topp tíu yfir þá banka á heimsvísu
sem fólu þessari lögmannsstofu að stofna
huldufélög.
Í samtölum blaðamanns við ýmsa aðila
sem tengjast föllnu bönkunum, einkum
gamla Landsbankanum, hefur verið bent
á að Panamalekinn sem slíkur gæti gefið
bjagaða mynd af umfangi aflands starfsemi
íslensku bankanna.
Í fyrsta lagi ber mönnum saman um að
Landsbankinn hafi nær einvörðungu skipt
við Mossac Fonseca. „Þeir voru ódýrastir,“
sagði einn heimildarmanna. „Þetta var
ódýrt en gerði sama gagn,“ sagði annar.
Jafnframt er bent á að Kaupþing banki hafi
einnig verið umsvifamikill í þessum efnum
einnig, en skipt við aðra aðila og sennilega
fleiri. Mönnum ber saman um að Glitnir
hafi verið minnstur stóru bankanna
þriggja á þessu sviði.
Í öðru lagi benda menn á að þrátt fyrir mikinn fjölda
félaga, þá hafi í lekanum frá Panama ekki birst upplýs-
ingar um fjárhag, eignir eða veltu. Sum félög gætu hafa
við notuð í einum viðskiptum, sum aldrei.
Því sé erfitt að draga ályktanir um raunverulegt um-
fang aflandsstarfsemi bankanna. Það þýði um leið ekki
að hún hafi verið smá í sniðum og hefur verið vísað til
lánabókar Kaupþings sem Wikileaks birti sem dæmi
um upphæðir og umfang hjá einstökum viðskiptavin-
um. Stórar fjárhæðir sem gætu hafa runnið í gegnum
slík félög,
Talið er að yfir 30 milljarða króna sé nú að finna
á Bresku Jómfrúreyjum, 20 milljarða á Kýpur auk
þess sem hátt í 100 milljarðar króna tengist ýmsum
svæðum í heiminum, sem í skrám Seðlabanka Íslands
heita „óflokkað“.
Sjá má af myndinni hér til hliðar, af heimasíðu Al-
þjóðasamtaka rannsóknarblaðamanna, að þessari
starfsemi byrjar að vaxa fiskur um hrygg hjá lög-
mannsstofunni í Panama á tíunda áratug síðustu
aldar. Síðan vex ört fjöldi huldufélaga í umsjón Mossac
Fonseca áratuginn á eftir. Sú þróun er ekki bundin við
Landsbankann.
Íslenskir bankar hófu einmitt að bjóða efnafólki
þessa þjónustu á fyrra tímabilinu. Bæði Kaupþing,
sem upphaflega var stofnað árið 1982, og síðar Bún-
aðarbanki Íslands, stofnuðu banka í Lúxemborg. Eftir
einkavæðingu Búnaðarbankans, og samruna hins
einkavædda ríkisbanka við Kaupþing, átti hinn sam-
einaði banki tvo banka í Lúx. Búnaðarbankinn í Lúx
var svo seldur til Landsbankans árið 2003. Ekki hafa
fengist upplýsingar um hvenær viðskiptasambandið
við lögmannsstofuna í Panama komst á, en hún mun
hafa verið með útibú í Lúxemborg. Hitt er vitað að
Landsbankinn sá um sjóði á aflandseyjunni Gurnsay
í Ermarsundi svo snemma sem 1999. „Þar vaxa pen-
ingar í góðu skjóli“ sagði í auglýsingu sem birt var í
blöðum seint það ár. Þetta segja viðmælendur blaða-
manns að beri tíðarandanum vitni. Þetta hafi þótt í
góðu lagi, og ekki aðeins hafi bönkum þótt sjálfsagt að
bjóða auðmönnum aflandsþjónustu, heldur hafi fólki
sem eitthvað átti undir sér fjárhagslega, beinlínis þótt
það vera stöðutákn að vera í slíkri þjónustu bankanna.
„Þetta var bara eins og fótanuddtækin. Það urðu allir
að vera með þetta.“ En þetta var meira en stöðutákn,
ef marka má annan viðmælanda: „Maður þarf ekki að
vera neinn vitringur til að vita að menn eru bara að
fela peninga.“
Sérfræðingar í skattaskjólum koma til landsins
Panama-skjölin
Nolan L. Williams, sér-
fræðingur í viðskiptasiðferði,
tekur þátt í ráðstefnu um
peningaþvætti, skattaskjól og
hvítflibbaglæpi á Grand Hotel í
næstu viku.
„Stjórnvöld hafa markvisst látið það
í ljós að þau eru ekki hlynnt notkun
aflandsfélaga eða félaga sem starfa
í skattaskjólum. Slík skilaboð eru
skýr og því ættu allir aðilar sem
hafa hagsmuni af slíkum félögum að
gefa upp fyrirfram öll þau tengsl og
forðast þannig ásakanir um hags-
munaárekstra. Slíkt ber vott um gott
siðferði,“ segir Nolan L. Williams,
framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtæk-
isins The Risk Consultancy en hann
mun taka þátt í ráðstefnu um við-
skiptasiðferði, skattaskjól og aðgerðir
gegn þeim á Grand Hotel þann 14.
apríl næstkomandi.
Nolan starfaði sem sérfræðingur hjá
Goldman Sachs í 16 ár en er nýfluttur
til Íslands. Hann segir hafa verið
áhugavert að fylgjast með fréttum
síðustu daga, sérstaklega í ljósi þess að
mikill munur virðist vera á skilningi
almennings og stjórnmálamanna á því
hvað sé ólöglegt eða óleyfilegt. „Um-
ræðan bendir eindregið til þess að það
þurfi að útskýra mun betur fyrir öllum
hvað séu löglegar gjörðir og hvað ekki.
Þetta þarf að vera algjörlega á hreinu
fyrir þjóðina og atvinnulífið í heild
sinni, þar með talið hið opinbera. Út
frá staðreyndum málsins er ekki sýnt
að lög hafi verið brotin, það sem raun-
verulega er verið að bera saman er
hvort hér sé um að ræða siðferðisbrest
eða slæma ákvörðunartöku.“
Nolan segir það mjög raunsæja
kröfu af hálfu almennings að stjórn-
málamenn gefi upp alla sína viðskipta-
legu hagsmuni, ekki bara til skattayfir-
valda heldur líka til þeirra er málið
gæti varðað, hvort sem það er á opin-
berum vettvangi eða í einkageira.
„Ef ekkert er að gert og þjóðfélagið,
fyrirtæki og hið opinbera bregðast
ekki við á markvissan hátt þá halda
svona hneykslismál áfram að koma
upp á yfirborðið. Allir í samfélaginu
bera ábyrgð á breytingum og við
verðum að læra að skilja á milli þess
sem telst slæm ákvörðun eða dóm-
greindarleysi og þess sem er ólöglegt
eða hreint og klárt siðferðisbrot.
Breytingar á hugarfari gerast almennt
hægt en ég held að það sé mikill með-
byr með slíku á Íslandi um þessar
mundir. Umræðan verður samt að
vera laus við ásakanir og einstaka
ærumeiðingar. Hún þarf að vera
fagleg og hnitmiðuð og umfram allt
byggð á staðreyndum.“ | hh
Panamaskjölin Landsbankinn var stórtækastur
Þar vaxa peningar
í góðu skjóli
Auglýsing í Morgunblaðinu í nóvember 1999.
1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2015
80.000
60.000
40.000
20.000
0
Fjöldi fyrirtækja sem nýtti sér aflandsþjónustu Mossack Fonseca náði
hámarki árið 2009 en þá voru þau 82.000.
6 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
Þú finnur nýja Taxfree sófabæklinginn
á www.husgagnahollin.is
www.husgagnahollin.is
558 1100
Allir sófar á taxfree tilboði*
* Taxfree tilboðið gildir bara á sófum og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
PASO DOBLE
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga.Grátt eða brúnt slitsterkt áklæði.Stærð: 300 × 100/150 × 95 cm
298.379 kr. 369.990 kr.
SÓFAR
TAXFREE
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
Ísafirði
Skeiði 1 www.husgagnahollin.is
* Taxfree tilboðið gildir bara á sóf
um og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður viðis
aukaskatt af söluverði. Afslátturinn
er alfarið á kostnað Húsgagnahall
arinnar og gildir til 29. apríl 2016
Allir sófar á taxfree tilboði*
SÓFAR
TAXFREE
PASO DOBLE
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga.
Grátt eða brúnt slitsterkt áklæði.
Stærð: 300 × 100/150 × 95 cm
298.379 kr.
369.990 kr.
CLEVELAND
Hornsófi með tungu. Hægri eða vinstri
tunga. Dökk eða ljósgrátt slitsterkt
áklæði. Stærð: 308 × 140/203 × 81 cm
153.218 kr.
189.990 kr.
DEVON
Nettur og litríkur
svefnsófi. Margir
litir. Stærð:
151 x 86 x 82 cm
112.895 kr.
139.990 kr.