Fréttatíminn - 08.04.2016, Qupperneq 19
11. mars
Sigmundur Davíð fer í viðtal við Sven
Bergman hjá Uppdrag granskning
hjá sænska sjónvarpinu í ráðherrabú-
staðnum. Jóhannes Kr. Kristjánsson
blandar sér í viðtalið þegar aflandsfé-
lag eiginkonu Sigmundar kemur til
umræðu. Sigmundur gengur út.
15. mars
Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eigin-
kona Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar forsætisráðherra, greinir frá
því, í ítarlegri færslu um fjármál
sín á Facebook, að hún eigi erlent
félag, Wintris, sem heldur utan um
fjölskylduarf hennar.
27. mars
Sigmundur Davíð og Anna Sigurlaug
senda frá sér sameiginlega yfir-
lýsingu um Wintrismálið á páskadag.
3. apríl
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra birtir veffærslu
undir yfirskriftinni Stóra myndin.
4. apríl
RÚV sýnir Kastljósþátt þar sem fram
kom tengsl íslenskra stjórnmála-
manna við aflandsfélög í skatta-
skjólum og lögfræðistofuna Mossack
Fonsecka sem staðsett er í Panama.
Þátturinn var unninn í samstarfi við
Reykjavik Media, Alþjóðasamtök
rannsóknarblaðamanna og þýska
blaðið Süddeutsche Zeitung. Þá var
sýnt viðtalið við Sigmund Davíð, þar
sem hann gengur út, og greint frá því
að forsætisráðherrann var eigandi
Wintris þegar félagið lýsti kröfum í
slitabú föllnu bankanna þriggja.
Þá var fjallað um tengsl Bjarna
Benediktssonar við aflandsfélagið
Falson sem afskráð var 2012 og
Ólöfu Nordal sem var prókúruhafi
skúffufyrirtækis á Tortóla á sama
tíma og hún tók þátt í prófkjöri
flokksins árið 2008.
5. apríl
08.00 Sigmundur Davíð mætir í
viðtal við Bítið á Bylgjunni og
sagði ríkisstjórnarsamstarfið
ekki hanga á bláþræði.
11.00 Sigmundur fer á fund með
Bjarna Benediktssyni og birtir
að honum loknum færslu á
Facebook-síðu sinni, þar sem
hann sagðist mundu rjúfa
þing og boða til kosninga ef
sjálfstæðismenn treysti sér
ekki til að styðja ríkisstjórnina.
11.30 Sigmundur fer á fund forseta
Íslands og biður um heimild
til að rjúfa þing og boða
til kosninga. Hann yfirgaf
fundinn án þess að ræða við
fréttamenn. Ólafur Ragnar
Grímsson rauf hinsvegar hefð
um trúnað yfir slíkum fundum
og ræddi við fréttamenn um
efni fundarins, hann hefði
hafnað beiðni forsætisráð-
herra þar sem hann hefði ekki
rætt við Sjálfstæðisflokkinn
fyrst. Hann sagðist ekki vilja
verða leiksoppur í aflraunum
stjórnmálamanna.
15.00 Sigmundur Davíð ákveður á
þingflokksfundi Framsóknar-
manna að hætta sem for-
sætisráðherra og leggur til að
Sigurður Ingi Jóhannsson taki
við sem forsætisráðherra. Þá
voru liðnar 44 klukkustundir
frá því að þáttur Kastljóss var
á dagskrá.
15.30 Afsögn forsætisráðherra
verður frétt um allan heim.
16.30 Forseti Íslands sakaður um
að hafa farið með fleipur um
fund sinn með forsætisráð-
herra í fréttatilkynningu frá
forsætisráðuneytinu. Þar
sagði að formleg tillaga um
þingrof hafi hvorki verið borin
upp á fundinum né kynnt for-
seta að fundi loknum.
20.30 Sig mund ur Davíð Gunn laugs-
son hef ur ekki sagt af sér og
bað Sig urð Inga Jó hanns son
um að taka að sér embætti
for sæt is ráðherra í „ótiltek inn
tíma“, sam kvæmt til kynn ingu
sem upp lýs inga full trúi rík is-
stjórn ar inn ar sendi er lend um
blaðamönn um.
6. apríl
21.00 Samþykkt í þingflokkum
stjórnarflokkanna að mynda
nýja ríkisstjórn undir forsæti
Sigurðar Inga Jóhanns-
sonar. Lilja Alfreðsdóttir
kölluð inn sem nýr ráðherra.
Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson ætlar að sitja áfram
sem óbreyttur þingmaður
og halda formennskunni í
Framsóknarflokknum.
7. apríl
14.00 Ríkisráðsfundur á Bessastöð-
um. Ráðuneyti Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar
lætur af störfum.
15.00 Ríkisráðsfundur á Bessa-
stöðum. Ráðuneyti Sigurðar
Inga Jóhannssonar tekur við.
Lífeyrissjóðurinn fyrir þig
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda
Góður kostur fyrir þá sem þurfa að velja sér lífeyrissjóð
Ársfundur
2016
Ársfundur sjóðsins verður haldinn
þriðjudaginn 19. apríl kl. 17:00.
Borgartún 29 · 105 Reykjavík · Sími 510 7400 · www.sl.is
Nánar um uppgjör ársins 2015 á www.sl.is
Eignir í árslok 2015 námu 140 milljörðum króna.
Langtímaávöxtun sjóðsins er ein sú besta.
Sjóðurinn greiddi 12.806 sjóðfélögum lífeyri sl. ár.
Sjóðurinn hefur aldrei skert áunnin réttindi.
Sjóðurinn veitir mjög hagstæð lán til sjóðfélaga með veðhlutfalli allt að 75%.
Ekkert uppgreiðslugjald, hægt er að greiða upp lán hvenær sem er.
135 þúsund manns eiga réttindi hjá sjóðnum.
vendir átt að sópa stjórnarráðið,
þá var engra breytinga að vænta.
Flokksformennirnir voru helminga-
skiptareglan holdi klædd.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
ríkasti þingmaður og ráðherra þjóð-
arinnar þar til núna í vikunni, er
sonur Gunnlaugs Sigmundssonar,
þingmanns Framsóknarflokksins á
árunum 1995 til 1999, sem efnaðist
á fjarskiptafyrirtækinu Kögun sem
áður var í ríkiseigu. Gunnlaugur
kemur einnig við sögu í Panama-
skjölunum vegna aflandsfélaga.
Sigmundur er eiginmaður Önnu
Sigurlaugar Pálsdóttur sem geymir
milljarð á Tortola í félaginu Wintris
sem hún fékk í fyrirframgreiddan
arf frá föður sínum, Páli Samúels-
syni, fyrrverandi eiganda Toyota.
Jón Sigurðsson segist ekki telja
að voldugir auðmenn hafi staðið
að baki Sigmundar í upphafi, nema
pabbi hans. Það hafi þó átt eftir að
breytast. „Sigmundur Davíð tekur
þá afstöðu að láta ekki opna og
markaðsvæða fiskveiðistjórnunar-
kerfið, hann lækkar veiðigjöldin,
framlengir ekki auðlegðarskattinn
og slítur aðildarviðræðum við ESB.
Þetta færði honum volduga stuðn-
ingsmenn, svo sem Þórólf Gíslason
í Skagafirði og Davíð Oddsson, rit-
stjóra Morgunblaðsins, og fleiri.
Skuldamálin urðu helsta kosn-
ingamálið fyrir kosningarnar 2013
og leiðréttingin sem kröfuhafarnir
áttu að fjármagna var tromp Fram-
sóknarflokksins sem keypti sér
þannig stóran kosningasigur, sem
færði Sigmundi Davíð embætti for-
sætisráðherra á silfurfati.
„Þegar menn velta fyrir sér,
hvaða fyrirbæri þessi ríkisstjórn var
og Sigmundi Davíð, verður að hafa
í huga að eftirköst krísunnar voru
stór áhrifavaldur í stjórnmálaum-
ræðunni,“ segir Eiríkur Bergmann
stjórnmálafræðingur. „Sigmundi
Davíð tókst að ná þjóðernisorðræð-
unni, sem er stærsta málið í þannig
ástandi. Sjálfstæðisflokkurinn er
hinsvegar rótgróinn valdaflokkur
og honum fylgir aldrei minna en
rétt um fjórðungur að málum.“
Leiðin hefði að óbreyttu átt að
liggja upp á við. En hún lá í hina
áttina.
Passaði ekki í fötin
Forsætisráðherrann ungi var aldrei
fyllilega öruggur eða sannfærandi
í hlutverki sínu. Hann var feiminn
og breiddi yfir það með hroka, sem
gerði hann drýldinn og heimóttar-
legan. Það er persónugerð sem get-
ur verið hressileg í réttunum fyrir
norðan en er álíka sjarmerandi og
súrir hrútspungar innan um rjóma-
tertur, annars staðar,
Það virtist sem hann réði ekki að
fullu við hlutverkið, hann var ekki í
karakter, fremur eins og stór strák-
ur að leika forsætisráðherra en for-
sætisráðherra. Hann var óheppinn
og stundum kauðskur eins og þegar
hann þurfti að vera í íþróttaskó á
öðrum fæti í hópi þjóðarleiðtoga á
fundi með Bandaríkjaforseta.
Hann tók sér líka hvíldarfrí á
undarlegum tímum og var gagn-
rýndur fyrir af pólitískum andstæð-
ingum fyrstu tvö árin í embætti.
Þetta gerði Kári Stefánsson, for-
Síðustu
dagar
Sigmundar
Davíðs
|19fréttatíminn | HeLGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016