Fréttatíminn - 08.04.2016, Qupperneq 32
Heil og sæl, kæra áhugasama
amma og bestu þakkir fyrir afar
áhugaverðar hugleiðingar. Við
afar og ömmur erum mikilvægt
uppeldisafl rétt eins og allir í fjöl
skyldu barna – og svo leyfi ég mér
ætíð að segja að fjölskyldan fær
það albesta og alversta sem barn
getur gefið. Það besta og mesta
af kærleika og nánd og líka það
versta í hegðun og dálítilli stjórn
semi þessarar elskuðu mannveru
sem kann að ýta á rétta takka til
að stjórna okkur, fólkinu sem það
elskar og treystir best af öllum í
heiminum.
Opinbert líf eða einkalíf
Fyrst vil ég nefna að mörg okkar
eigum til ólíka hegðun heima og
heiman. Að einhverju leyti er það
skiljanlegt en best mun öllum
farnast ef við erum ekki að „leika
leikrit“ í hegðun okkar heldur
náum þeirri sjálfsþekkingu að vita
hver við erum og höfum kjarkinn
til að treysta öðrum fyrir því.
Skoðaðu endilega svonefndan joh
ariwindow á netinu – sú kenning
útskýrir þetta á skemmtilegan hátt
fyrir bæði börn og fullorðna.
Börn „lesa“ okkur
Að einhverju leyti er hegðun
okkar aðstæðubundin og ræðst
af fólkinu í kringum okkur. Börn
frá fyrstu vikum eru byrjuð að
lesa í öll smátáknin sem við gefum
frá okkur til að sýna velþóknun
eða vanþóknun gagnvart þeim
og hegðun þeirra. Svipbrigði,
raddblær, líkamstjáning – þau
skilja hvað klukkan slær og orðin
eru oft aukaatriði. Þarna skiptir
sköpum að við sköpum kærleiks
ríkt og hvetjandi uppeldisum
hverfi fyrir börn alls staðar og
öll erum við ábyrg; öll stórfjöl
skyldan er ábyrg, við sem vinnum
við uppeldi erum á launum við að
standa okkur, hreinlega allir sem
mæta börnum og ungmennum í
samfélaginu. Verum sjálfum okkur
samkvæm í umhyggju og hlýju
svo við öðlumst trúnað barna og
ungmenna.
En hún er bara svo feimin
Svo eru börn afskaplega
ólík – rétt eins og við, full
orðna fólkið. Sum eru fljót að
segja öllum allt um sig, njóta sín
vel í hópi enda mjög félagslynd og
„opin“. Önnur fara sér hægt, njóta
sín hreinlega ekki vel í fjölmenni
opinbera lífsins og líður best með
einum eða tveimur nánum að
ilum. Þau þurfa stundum einveru
og vilja kynnast fólki og aðstæð
um vel áður en þau treysta fólki
fyrir sér. Persónuleikar þeirra eru
einfaldlega mjög sterkir strax á
unga aldri og svo glíma þau við
alls kyns sérkenni eða frávik frá
norminu rétt eins og við hin. Hins
vegar eru hugtök eins og feimni
bara lýsing á því að barnið treystir
ekki umhverfinu fyrir sjálfu sér og
það er óöryggi – miklu skiljanlegra
hugtak sem má vinna með í þeim
aðstæðum sem óöryggið birtist ef
það hefur neikvæð áhrif á barnið.
Hörkum líka af okkur
Enn ein hliðin er síðan að stund
um viljum við, sem erum tilfinn
ingatengdust barni, vernda það
nánast um of því að margt mót
drægt á eftir að mæta því á lífsleið
inni. Því er seigla eða resilience
hið nýja lausnarorð í uppeldisum
ræðu Vesturlanda þegar rætt er
um framtíðina í viðsjárverðum
heimi. Seigla sem eiginleiki snýst
annars vegar um viðhorf okkar
til mótlætis og sársauka og hins
vegar um hæfilega reynslu af hinu
sama. Það er öllum hollt að gráta
góða skvettu við sársauka en
óþarfi að verja deginum í sorg og
eftirsjá. Því er gott að harka af sér,
slá striki yfir það sem var og halda
bara áfram eins og ekkert hafi í
skorist.
Magga Pála
Uppeldisáhöldin
Sendið Möggu Pálu spurningar á
maggapala@frettatiminn.is og
hún mun svara í næstu blöðum.
Það besta og versta
Kæra Margrét Pála ... ég nýt þess að lesa pistlana þína. Hef
svo mikinn áhuga á uppeldismálum þótt ég sé ekki lengur
uppalandi, nema óbeint í gegnum tengsl við barnabörnin.
Hefur þú kynnst því að börn á leikskólaaldri bæli tilfinning-
ar sínar í skólanum – t.d. þegar þau meiða sig eða eru leið?
Þ.e. að þau harki meira af sér í skóla en heima? Mér þætti
mjög áhugavert að heyra vangaveltur þínar um þetta.
Hlýjar kveðjur, áhugasöm amma.
EPSON EXPRESSION HOME XP-332
Einfaldur og góður prentari og skanni fyrir skólafólk.
Þráðlaus ölnotaprentari (skanni, ljósritun og prentun). Hentar vel til að prenta allt
frá texta yr í góða ljósmynd. Beinn stuðningur við iPhone/iPad og Android. Hægt
er að fá APP til að prenta og skanna með iOS og Android tækjum. Allar helstu
skipanir á skjá. Hagkvæmur í rekstri.
13.00
0
EPSO
N Exp
ressio
n
Home
XP-3
32
,-
www.thor.is
TÖLVUVERSLUN
ÁRMÚLA 11 - SÍMI 568-1581 ÞÓR HF - UMBOÐSAÐILI EPSON Á ÍSLANDI Í MEIRA EN 30 ÁR
Einnig fáanlegur í hvítu.
32 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016