Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 36
Mynd | Hari Kristinn er 27 ára gamall og er með geðhvörf. Hann hefur þrisvar sinnum
upplifað maníu, eða örlyndi, en 25 sinnum djúp þunglyndistímabil.
Lífsreynslan Kristinn Rúnar Kristinsson
Allsber á
Austurvelli
„Manían fer vanalega af
stað með vorinu, það er
ekki hægt að fá maníu í
myrkri. Þegar þú hefur verið
í vanlíðan í marga mánuði
en finnur svo fyrir vellíðan
þá langar þig ekki til að gera
neitt í málunum. Auðvitað er
skynsamlegast að fara upp á
geðdeild, en þú vilt ekki gera
það sem er skynsamlegast,“
segir Kristinn Rúnar Krist-
insson.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Kristinn er 27 ára gamall og er með
geðhvörf. Hann hefur þrisvar sinn-
um upplifað maníu, eða örlyndi,
en 25 sinnum djúpt þunglyndi.
Kristinn hefur á undanförnum
mánuðum heimsótt gagnfræða-
skóla til að segja frá sinni upplifun
af veikindum sínum. Hann hefur
hitt 170 krakka á sex vikum, flestir
þeirra vita hvað þunglyndi er en
afar fáir vita hvað manía er.
„Síðasta manía kom í byrjun júní
í fyrra og hófst með því að ég fór
að stunda ræktina af miklu kappi.
Ég fór að mæta svona þrisvar á dag
og skóf sjö kíló af fitu í burtu á níu
dögum. Orkan varð svo svakaleg
að ég þurfti ekki að sofa nema þrjá
tíma á nóttu en í þunglyndinu þá
sef ég þrettán tíma. Pabbi, sem er
minn besti vinur, reyndi að ræða
við mig en það er ekki hægt að
rökræða við mann í maníu. Ég
var svona 120 kíló en tók öfga-
fulla spretti í ræktinni, hljóp þar á
brettinu og bara naut þess að fólk
horfði á mig því mér fannst ég svo
flottur,“ segir Kristinn og hlær.
„Það er mikilvægt að geta litið á
þessi veikindi í kómísku ljósi og ég
hef aldrei skammast mín fyrir það
hvernig ég hegða mér þegar ég er
veikur.“
„Þann þrettánda júní fór ég
svo beint úr ræktinni og niður á
English Pub í miðbænum. Þar leið
mér eins og algjörum kóngi, stóð
í dyrunum og fann að allir sem
komu inn á barinn voru þar vegna
mín. Það var mikið líf í bænum
og ég heyrði útundan mér að það
væri „Free the nipple“ samkoma í
gangi. En þegar Ameríkani sem ég
hafði verið að ræða við spurði mig
hvað væri í gangi sagði ég honum
að það væri að safnast saman fólk
í bænum vegna mín, það ætti að
krýna mig sem forseta og að það
ætti að færa þjóðhátíðardaginn frá
17. júní yfir á 13. júní, því það væri
happatalan hans pabba og hefði
líka alltaf verið happatalan mín. Ég
man þetta allt í smáatriðum en ég
held að mjög aftarlega í hausnum
hafi ég vitað að ég væri að bulla.“
„Svo geng ég út af barnum
og yfir á Kaffi París, með því að
smeygja mér á milli allra borðanna
sem voru þétt setin fyrir utan og
tek nokkrar íþróttaæfingar á leið-
inni. Það hafa örugglega verið um
2000 manns á Austurvelli og mér
fannst ég þurfa að komast að svið-
inu. Það var allt fullt þarna af ber-
brjósta stelpum og mér fannst ég
geta gert þeim mikinn greiða með
því að strípalingast þarna með
þeim. Svo ég fór úr öllum fötunum
og stillti mér vandlega upp framan
við styttuna af Jóni Sigurðssyni
með lokuð augu í algjöru „zoni“.
Mér fannst þetta svo rétt.“
„Næst var ferðinni heitið á
Ingólfstorg þar sem ég sá nokkra
hjólabrettastráka, vini Guðna
heitins bróður míns. En á leiðinni
þangað vatt kona sér upp að mér
fyrir að hafa berað mig en ég sagði
henni að vera ekkert að skipta
sér af, svo hún hringdi á lögregl-
una. Á torginu byrjaði ég að þjálfa
hjólabrettstrákana því við vorum
að fara að halda þarna risahjóla-
brettasýningu. Þó ég hafi aldrei
kunnað neitt á hjólabretti vissi ég
að þetta væri köllun mín. Mamma
eins stráksins byrjaði að taka
myndband af stráknum sínum en
ég sagði henni að fara norður og
niður þar sem hún væri að skipta
sér af “showinu”. Sem varð til þess
að hún hringdi í lögregluna. Á
endanum kom löggan og keyrði
mig heim þar sem ég fékk mér
köku og mjólk og fór svo í heita
pottinn.“
„Eftir að hafa safnað smá
orku fékk ég þá flugu í hausinn
að fara að stjórna umferðinni á
Digranesvegi þar sem við búum.
Þar stóð ég og öskraði á fólk eða
klappaði fyrir því eftir því hver
frammistaðan í akstrinum var.
Þegar ég sá lögguna nálgast fór
ég aftur í heita pottinn og reyndi
að sýnast alveg rólegur þegar
hún svo mætti á svæðið. Það
þýddi ekkert fyrir þá að ná mér
upp úr fyrr en Biggi lögga mætti,
þá fannst mér vera kominn
gamall vinur sem ég gæti treyst,
fór upp úr og lagðist á magann í
grasið svo þeir gætu handjárnað
mig. Því þá vissi ég að ég væri
kominn á endastöð.“
36 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
ÁBYRGÐAR- OG ÞJÓNUSTUAÐILAR:
Optical Studio Smáralind
Optical Studio Keflavík
OPTICAL STUDIO
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ
E RT U Á L E I Ð T I L Ú T L A N D A ?
KAUPAUKI
Með öllum marg skiptum glerjum**
fylgir annað par FRÍTT með í sama
styrkleika. Tilvalið sem sól -
gleraugu eða varagleraugu.
** Lindberg umgjörð m/ Hoya Progressive glerjum, 1.6 Index.
** Margskipt gler á við Varilux, Multifocal, Progressive og tvískipt gler.
Módel: Hrönn Johannsen
Gleraugu: Lindberg
Verslaðu á hagstæðara verði.
Allt að 50% ódýrari en
sam bærileg vara á meginlandi
Evrópu.*