Fréttatíminn - 08.04.2016, Side 55
|55FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
Ég | er mjög ánægður með
það að það séu komnir nýir
þættir af Ru Paul’s Drag Race.
Sem performer og tónlistar-
maður dáist ég að keppend-
unum í þáttunum og hvernig
þeir syngja, dansa og eru
óaðfinnanlega í karakter.
Svo er ég að horfa á How
to get away with murder,
því ég er sjálfur að plana
morð svo ég fæ góð ráð úr
þeim þáttum,“ segir Seth í
gríni. „Nei, ég horfi á þá því
þættirnir eru vel skrifaðir og
dramað stoppar aldrei. Ég
horfi svo á The People vs
OJ Simpson og finnst þeim
takast vel að segja sögu
þessa hræðilega máls. Þeim
tekst í ofanálag að sýna vel
ástandið í Bandaríkjunum.
Svo lékum við Keesha Sharp,
sem leikur konu Johnnie Coc-
hran í þáttunum, einu sinni
par sjálf svo það er gaman
að sjá hana þar. Er reyndar
brjálaður að hún sé að halda
framhjá mér!“ segir Seth
hlæjandi.
Sófakartaflan
Seth Sharp, tónlistar-
maður og leikari
Brjálaður að sjá framhjáhaldið á skjánum
Mynd | Rut
Morð í bresku þorpi
RÚV Föstudaginn 8. apríl, klukkan 22. Breski sakamálaþátturinn
Midsomer Murder, eða Barnaby ræður gátuna, verður sýndur á
föstudagskvöldið. Lögreglufulltrúinn Barnaby glímir við morðgátur í
ensku þorpi en þættirnir eru byggðir á bókaseríu Caroline Graham.
„Yass Queen!“
Comedy Central. Þær stöllur Ilana
og Abby eru mættar aftur á skjáinn
með þriðju seríu Broad City. Fyrir
þá sem enn hafa ekki séð þættina
eru þeir einir ferskustu grínþætt-
irnir í dag. Ímyndaðu þér blöndu af
Girls og bíómyndinni Dude Where’s
My Car. Broad City eru sú blanda og
gott betur.
Lokaþáttur trúðsins
misheppnaða
SkjárEinn Laugardaginn 9. apríl
klukkan 19.05. Chip Baskets snýr
aftur í heimabæ sinn eftir að hafa
klúðrað trúðanámi í Frakklandi. Nú
þarf hann að sætta sig við að vinna
sem ródeó-trúður samfara því að
díla við fjölskylduvandamál. Zach
Galifinakis leikur aðalhlutverkið
í þáttunum, en oft er óljóst hvort
þeir séu grín- eða dramaþættir.
Ein dragdrottning
sem ríkir yfir þeim
öllum
Netflix. Ru Paul’s Drag Race
eru raunveruleikaþættir í anda
America’s Next Top Model, en nú
keppa dragdrottningar til sigurs
í stað fyrirsæta. Þættirnir hafa
notið gríðarlegra vinsælda og um
allan heim eru haldin dragpartí á
skemmtistöðum þegar nýr þáttur
af Ru Paul fer í loftið. Hér á landi
hefur Gaukurinn haldið slíka
viðburði fyrir íslenska aðdáendur
þáttarins. Þættirnir eru nýorðnir
aðgengilegir íslenskum notendum
Netflix.
Náttúrulegur
sætugjafi
Sá græni
Bragðgóður og ferskur skyrdrykkur án
hvíts sykurs með agave og steviu.
Fylltur af grænum orkugjöfum.
KEA skyrdrykkur
fyrir heilbrigðan lífsstíl