Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 82
18 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
Kynningar | Viðhald húsa AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
Unnið í samstarfi við Skúf
Skúfur mottuhreinsun tekur að sér að hreinsa teppi, stein-teppi, rúmdýnur, húsgögn og mottur og leggur meðal
annars áherslu á heildarlausnir fyrir
hótel og fyrirtæki varðandi þrif á
teppum og húsgögnum.
„Við erum sérhæfðir í mottu-
hreinsun og erum með mottu-
hreinsunarstöð okkar í Vesturvör
22, þar sem er opið alla virka daga
milli klukkan 16 og 18,“ segir Bjarni
Árnason, eigandi Skúfs. Faðir hans
stofnaði fyrirtækið fyrir 30 árum en
Bjarni rekur það í dag og er með tvo
starfsmenn.
Skúfur hreinsar einnig teppi,
steinteppi og húsgögn fyrir fyrir-
tæki. „Við getum unnið á öllum
tímum sé eftir því óskað,
líka um helgar og á kvöldin. Við
gerum tilboð í stærri verkin og
notum blauthreinsiaðferðir. Einn-
ig höfum við nýlega byrjað með
þurrhreinsiaðferð sem virkar vel
fyrir hótel og fyrirtæki sem má ekki
trufla mikið vegna hávaða,“ segir
Bjarni.
Þó að fyrirtækjaþjónusta sé stór
hluti viðskiptavina Skúfs eru ein-
staklingar farnir að nýta sér þjónust-
una í sífellt meira mæli. „Starfsfólk
okkar mætir á heimili og hreinsar
húsgögn eða rúmdýnur með sem
minnstri truflun og fyrirhöfn. Einnig
hreinsum við leðurhúsgögn og þá er
leðrið bæði hreinsað og olíuborið.
Alhliða hreinsun á teppum,
mottum og húsgögnum
Bjarni Árnason tók við rekstri Skúfs af föður sínum og sérhæfir sig í mottuhreinsun
Nota eingöngu viðurkennd hreinsiefni
Carpet and Rug Institute, CRI, gefur út viðurkenningu á hreinsiefnum
sem stofnunin mælir með og standast kröfur í Bandaríkjunum. Skúfur
notar eingöngu efni sem hafa fengið þessa viðurkenningu eða aðrar
sambærilegar viðurkenningar.
Bjarni Árnason, eig-
andi Skúfs, tekur að
sér að hreinsa teppi
og ýmislegt fleira.
Unnið í samstarfi við
Lásaþjónustuna ehf.
Lásaþjónustan ehf. veitir ráð-gjöf á heimilum fólks og er með neyðarþjónustu þegar fólk læsir sig úti eða lendir í
vandræðum
Lásaþjónustan ehf. sérhæfir
sig í lásaviðgerðum og lyklasmíði.
Fyrirtækið var stofnað árið 2007 og
starfrækir það verslun og verkstæði
á Grensásvegi 16. Auk þess er fyrir-
tækið með neyðarþjónustu.
„Við hjálpum fólki að opna hús,
bíla og hirslur. Þá hjálpum við líka
fólki í vandræðum, þegar lyklar
eru fastir í eða brotnir og lögum
læsingar og fleira á staðnum,“ segir
Arnar Freyr Jónsson, starfsmaður
Lásaþjónustunnar. „Við erum mjög
lausnamiðað fyrirtæki og með ríka
þjónustulund.“
Arnar og félagar hafa tekið að
sér að yfirfara og stilla hurðarp-
umpur og þjónusta mörg húsfélög.
Þeir bjóða einnig upp á ráðgjöf á
heimilum fólks. „Við getum komið
og ráðlagt fólki hvað er best að
gera í sambandi við glugga og
hurðir. Nú, í þessari innbrotaöldu,
skiptir máli að lásabúnaðurinn sé í
lagi. Hann er veikasti hlekkurinn og
oft það sem er verst gengið frá. Ef
þú ert með lélega hurð eða glugga
er ekkert mál að komast inn hjá
þér. Við getum ráðlagt fólki hvað
þarf að gera til að heimilið verði
öruggara.“
Lásaþjónustan býður alhliða
lyklasmíði og lásaviðgerðir. „Við
sjáum bæði um húslykla og bíl-
lykla og höfum til að mynda verið
að útbúa þessa forrituðu bíllykla
og þjónusta fjarstýringar,“ segir
Arnar Freyr. Auk þess eru allskonar
handverkfæri til sölu í verslun Lása-
þjónustunnar.
Hjá Lásaþjónustunni vinna í dag
fjórir starfsmenn og hafa nóg að
gera, að sögn Arnars Freys. „Þetta
er sveiflukenndur bransi, eins og
annað á Íslandi, en okkur hefur
gengið vel. Við erum hægt og hægt
að byggja okkur meira og meira
upp.“
Nánari upplýsingar um fyrirtækið
má finna á Lyklasmidur.is.
Alhliða lásaviðgerðir
og lyklasmíði
Arnar Freyr Jónsson og félagar hans hjá Lásaþjónustunni
bjóða upp á alhliða lyklasmíði og lásaviðgerðir. Auk þess
veita þeir ráðgjöf á heimilum fólks.
Mynd | Rut
Mynd | Rut
Lásaþjónustan ehf. sérhæfir
sig í lásaviðgerðum og lykla-
smíði. Lásaþjónustan býður
alhliða lyklasmíði og lásavið-
gerðir. „Við sjáum bæði um
húslykla og bíllykla
Okkar mottó er að viðskiptavinum
okkar finnist þægilegt að fá okkur
inn á heimili sín og vingjarnlegt
viðmót skili sér.“
Símanúmer Skúfs er 663 0553 og
vefsíðan www.skufur.is. Einnig leita
að Skúfur Mottuhreinsun á Facebook
Húsverndarstofa stendur fyrir fræðslufundi um viðhald og við-
gerðir eldri húsa 18. maí næstkomandi í Kornhúsinu í Árbæjasafni.
Á fundinum verður fjallað um yfirborðsmeðhöndlun utan húss,
málun útveggja, hurða, glugga og þaka. Fjallað verður um málun á
timbri, steinsteypu, múr og málmum.
Á fundinum munu sérfræðingar á sviði málunar og utanhúss-
viðhalds fjalla um verndun yfirborðs byggingarefna fyrir tæringu,
fúa og öðru niðurbroti. Fjallað verður um mismunandi efni og að-
ferðir við að hreinsa, verja, grunna og mála hús. Þá munu fram-
leiðendur og söluaðilar málningar kynna þau efni sem þeir hafa á
boðstólum og mun gestum gefast kostur á að prófa efni.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Hann stend-
ur frá klukkan 16-18.
Ókeypis fræðsla
um húsamálun
Fjallað verður um mismunandi efni og aðferðir við
að hreinsa, verja, grunna og mála hús.