Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 13.05.2016, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 13.05.2016, Blaðsíða 12
10-70% afsláttur af völdum vörum Barskápar Glerskápar Skenkar Speglar Sófaborð Bókahillur Púðar Sófasett Tungusófar Hornsófar Stakir sófar Borðstofuborð Sjónvarpsskápar Fjarstýringavasar Sjónvarpsskápur Salsa Stól á hjólum Meubar Verð áður 44.900 kr. 15.900 kr. *Verð á dýnu Verð með botni 99.000 kr. 69.900 kr. Dýnustærð 193x200 Barnarúm stærð 106x213 Verð 221.900 kr. 155.330 kr. Skenkur 216,5x55x84 cm Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-16 ÚTSALA Þú sparar 34.900 kr. 5.000 kr. *Verð án dýnu Verð áður 83.900 kr. 7.500 kr.frá Verð áður 40.900 kr. 19.900 kr. frá Borð Verð áður 244.443 kr. 139.900 kr. hlutum. Ragnhildur lést í hárri elli í fyrra. Eigur hennar voru metnar á hátt í þrjá milljarða króna. Þá eru Geir, Þórdís, Jakobína Birna, Geir Magnús og Ragnhildur Zoega áber- andi hluthafar í Hval hf. Áttu þegar síðast fréttist rétt innan við 4 pró- sent í Hval. Ætla má miðað við ríki- dæmi Ragnhildar Skeoch að hlutur þeirra í Hval reiknist til um eittþús- und milljóna króna. Eiríkur Vignisson og Ingimund- ur Ingimundarson eiga einnig áber- andi stóra hluti í HB Granda, um 5 prósent sá fyrrnefndi og 2,6 pró- sent hinn síðarnefndi, samkvæmt hluthafaskrá sem birt er á vef HB Granda. Tíundi hluti auðlindarentunn- ar nemur að jafnaði 4,6 milljörð- um króna frá hruni. Ætla má að þessir örfáu einstaklingar sem hér eru nefndir hafi fengið stóran hlut af 32 þúsund milljóna króna auð- lindarentu í eigin vasa frá hruni. Tíu milljarðar á mann Eignarhald á Samherja er í rauninni einfalt. Þrír einstakingar eiga megn- ið af fyrirtækinu: Þorsteinn Már Baldvinsson, Helga S. Guðmunds- dóttir og Kristján V. Vilhelmsson. Sá síðastnefndi er meðal eigenda fé- lagsins Hornblow Continental corp. sem kemur fyrir í Panamaskjölun- um. Flóknara er að finna út hversu mikið af auðlindarentunni í sjávar- útvegi lendir í vösum þeirra þriggja, því Samherji er eigandi útgerðarfé- lags Akureyringa, auk þess að eiga stóran hlut í Síldarvinnslunni. Það fyrirtæki á aftur útgerðina Berg- -Hugin. Samherji fær úthlutað um 6 prósentum af heildarkvótanum og ÚA um 2 prósentum. Þegar þau 8 prósent og helmingurinn af kvóta Síldarvinnslunnar – í takti við eignarhald Samherja – eru lögð saman, má ætla að þess- ir þrír einstaklingar fái í kringum 9,5 prósent af kvótanum úthlut- að og þannig sama hlutfall af auð- lindarentunni. Það gera hátt í tíu þúsund milljónir króna á mann frá hruni. Það er vissulega gróflega áætlað, en sjálfsagt nærri lagi. Gróði í Grindavík Fyrirtækið Þorbjörn í Grindavík fær fimm og hálft prósent af heildar- kvótanum í sinn hlut. Eigendur eru þrír. Gunnar, Eiríkur og Gerður Tómasbörn, sem eiga um þriðjung hvert. Þau þrjú skipta með sér um það bil tveimur og hálfum milljarði króna árlega af auðlindarentunni, miðað við útreikninga Indriða H. Þorlákssonar. Auðlindarentan frá hruni sem hafnað hefur hjá þeim nemur í kringum 17 þúsund millj- ónum króna. Brim Guðmundur Kristjánsson, kennd- ur við Brim, er vafalaust í þeim hópi sem mest fær. Brim fær fjór- um og hálfu prósenti af heildar- kvótanum úthlutað. Upplýsingar um eignarhald Brims liggja ekki að fullu fyrir, en Guðmundur Krist- jánsson ásamt bróður sínum Hjálm- ari Þór með mesta eign og ítök. Þeir eiga jafnframt fjórðungshlut í Vinnslustöðinni í Vestannaeyjum. Að auki má nefna KG fiskverkun. Gróflega má áætla að auðlindaarð- ur sem þeir taka til sín, miðað við útreikninga Indriða H. Þorláksson- ar, nemi um fimm prósentum af heildinni. Það gera 17 þúsund millj- ónir króna frá hruni, ríflega tveir og hálfur milljarður króna á þá bræð- ur á ári. Samhengi Til að setja þessar upphæðir í sam- hengi mætti nefna að rúmlega áttræður einstaklingur sem hef- ur fengið milljón á mánuði, frá fæðingu, nær ekki að vinna sér inn milljarð meðan hann dregur andann. Venjulegur launamaður með hálfa milljón á mánuði þarf að vinna í 160 ár áður en hann nær milljarði. Auðlindaarður Samherj- afólksins frá hruni er ígildi eitt þúsund og sex hundruð ára vinnu manneskju með meðallaun. Enda þótt eigendur annarra fyr- irtækja í hópi hinna allra stærstu fái í sinn hlut gríðarlegar upphæð- ir í formi auðlindaarðs þjóðarinn- ar, þá má í grófum dráttum ætla að þessir sem hér hafa verið nefndir fái hvað mest. Eigendur annarra sjávarútvegs- fyrirtækja fá drjúgan hlut af auð- lindaarðinum. Svo tekið sé eitt dæmi til viðbótar, þá má gróflega áætla að upp undir tveir milljarð- ar króna af auðlindaarðinum fari til Ingólfs Ásgrímssonar, bróður Halldórs heitins, fyrrverandi for- sætisráðherra og formanns Fram- sóknarflokksins, í gegnum hlut hans í Skinney-Þinganesi, sem ætla má að sé um 16 prósent. Þá er einungis miðað við auðlindaarðinn frá hruni. Þá má gera ráð fyrir að ekki minna en fimm þúsund milljón- ir króna í formi auðlindaarðs hafi runnið til Guðbjargar Matthí- asdóttur, aðaleiganda Ísfélagsins í Vestmannaeyjum frá Hruni. Arður Samherjafólksins frá hruni er ígildi 1600 ára vinnu manneskju með meðallaun. Guðmundur Krist- jánsson, kenndur við Brim, er vafalaust í þeim hópi sem mest fær. Brim fær fjórum og hálfu prósenti af heildarkvótanum úthlutað. 12 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.