Fréttatíminn - 13.05.2016, Blaðsíða 38
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildur@frettatiminn.is
Þau Elinóra Guðmunds-dóttir og Bragi Marin-ósson búa í 50 fermetra stúdentaíbúð á Egg-ertsgötu. Bæði stunda þau nám við Háskóla
Íslands, hann í rafmagns- og
tölvuverkfræði og hún í ferða-
málafræði. Sonur þeirra Sebastian
fagnar í dag tveggja og hálfs árs af-
mæli sínu, sáttur með lífið japlandi
á snúð með mjólkurglasi.
„Við erum hæstánægð hérna,
þetta er eins og lítil kommúna þar
sem allir hjálpast að. Krakkarnir
leika sér á ganginum og heima hjá
hvort öðru,“ segir Elinóra og Bragi
tekur undir. „Það er auðveldara
að vera með tvö börn en eitt, þau
dunda sér tímunum saman sem gef-
ur okkur svigrúm til þess að læra.“
Þrátt fyrir stofnanalegan brag á
stúdentagörðunum, þar sem ekki
má hengja myndir á veggina og
litaður dúkur liggur á gólfunum,
hefur parinu tekist einkar vel að
gera rýmið heimilislegt og fallegt.
„Þessar íbúðir eru svolítið fyrirfram
ákveðnar. Allt er áætlað á ákveðinn
stað og lítið hægt að endurraða
þeirri uppsetningu. Það er greini-
lega búið að stúdera hvernig má
nýta þessa 50 fermetra sem best,”
útskýrir Bragi.
Elinóra og Bragi eru sammála um
það að stuðningur við námsmenn
með börn sé frábær. LÍN framfær-
slan eru rúmar 200.000 krónur
á mánuði fyrir foreldra í sambúð
með eitt barn. Húsaleigan eru tæp-
ar 90.000 krónur svo eftir stendur
sæmileg fjárhæð til uppihalds. El-
inóra segir þó stuðninginn einkenn-
ast af fleiru en framfærslu „Á svæð-
inu eru tvær dagvistir, leikskóli og
stuðningsnet fólks sem er í sömu
stöðu og við. Einnig eru kennarar
mjög skilningsríkir gagnvart okkur
sem foreldrum. Hins vegar er kerfið
afar úrelt á meðan á óléttu stendur
og í fæðingarorlofi. Þá miðast fram-
færsla frá ríkinu við ákveðið hlutfall
af lágmarkslaunum sem er löngu úr-
elt upphæð. Það er nánast ómögu-
legt að komast af á henni eingöngu
því gert er ráð fyrir að það sé ein-
hver fyrirvinna.“
Það veldur því fjölskyldunni
hugarangri hvað tekur við eftir
stúdentagarðana. Reynsla þeirra á
leigumarkaðinum vekur ekki upp
öryggistilfinningu. „Á tímabili leigð-
um við íbúð á Baldursgötu sem var
aðeins stærri, en nýttist verr,“ segir
Bragi. „Leigan var töluvert hærri og
alltaf hætta á að innilokast í sífellt
hækkandi verði leigumarkaðarins.
Það er staðreynd að margir hérna
halda sér við námið til þess eins að
halda íbúðunum.“
Fjölskyldan lifir bíllausum lífsstíl
og segir Elinóra það ósköp einfalt
á svæði þar sem skólarnir og aðr-
ar nauðsynjar eru innan seilingar.
„Sebastian elskar að fara í strætó og
við erum duglega að hjóla. Flest er
í göngufæri fyrir utan Bónus.“ Þar
kemur samvinna nágranna sterk
inn og er Bragi gjarnan samferða
nágrönnunum í búðina. „Ég fæ oft-
ast far hjá vini mínum sem býr hinu
megin við götuna, við förum sam-
ferða í Bónus úti á Granda.“
Fleiri myndir á
frettatiminn.is
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
ALICANTE f rá
12.999 kr.*
BARCELONA f rá
12.999 kr.*
NICE f rá
9.999 kr.*
EDINBORG f rá
9.999 kr.*
VERTU
WOW Í
SUMAR
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
maí - okt .
jún í - sept .
jú l í - okt .
jú l í - okt .
LYON f rá
9.999 kr.*
jún í - sept .
Myndir | Hari
Garðarnir þar sem
foreldrar hjálpast að
Hvernig er best að nýta smáhýsi? Litla fjölskyldan á Eggertsgötu, þau
Elinóra, Bragi og Sebastian, eru viðmælendur vikunnar í myndaröðinni
Stúdentagarðarnir, þar sem litið er inn til námsmanna sem búa á stúd-
entagörðum. Skoðað er hvernig ungt fólk nýtir rými þar sem nægjusemi
einkennir búskapinn. Leigumarkaðurinn er til umræðu og kynslóðin sem
dreymir ekki um einbýlishúsið.
Stúdentagarðarnir #2
Bragi, Sebastian og Elínóra búa í 50 fermetra stúdentaíbúð og
segja nóg pláss fyrir alla. Í blokkinni hjálpast foreldrar að við
innkaupaferðir og barnapössun.
Á náttborðinu
Galdrar, kúrekatímabilið og Dalton-bræður
Freyja Sigrún er 11 ára gömul
körfuboltakempa og lestrarhestur:
„Uppáhaldsbækurnar mín-
ar eru Harry Potter-bækurnar
sem Snærós stjúpmamma mín
las fyrir mig. Við lásum allar sjö
bækurnar á þremur árum. Þær
eru í uppáhaldi því ég elska galdra
og karakterunum er svo vel lýst í
bókunum.“
Þegar Freyja les sjálf segist
hún oft lesa teiknimyndasögur á
borð við Viggó Viðutan, Tinna,
Lukku-Láka og Hinrik og Hag-
barð. „Lukku-Láki er samt upp-
áhaldið mitt af þessum, því ég er
mjög hrifin af kúrekatímabilinu
og Dalton-bræðrum: Þeir eru svo
fyndnir og vitlausir.“
Þessa dagana eru þær Snærós að
lesa saman fyrstu bókina í trílóg-
íunni um Hungurleikana: „Hún
er um Katniss, stelpu sem á systur
sem er valin til að berjast upp á líf
og dauða í Hungurleikunum, leik-
um sem sá vinnur sem er á lífi við
enda þeirra. Katniss býður sig þá
fram í staðinn fyrir systur sína. Nú
erum við Snærós staddar þar sem
hún er að æfa sig fyrir Hungurleik-
ana. Þetta er rosalega spennandi
bók,“ segir Freyja. |sgþ
Lífsstíll fjölskyldunnar er minimalískur þó er alltaf rúm fyrir nýjar vínylplötur.
38 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016