Fréttatíminn - 13.05.2016, Blaðsíða 46
„Fólk lítur stundum á mig sem
fórnarlamb þó ég upplifi mig ekki
sem slíkt. Ég er opinská og geri mig
svolítið varnarlausa fyrir vikið. En
ef það hjálpar einhverjum þá er það
þess virði. Ég sé allavega ekki eftir
neinu.“
Magnaðir hlutir í maníu
Eins og fram hefur komið er Harpa
á góðum stað í dag. Það á líka við
varðandi geðhvarfasýkina sem hún
heldur nú í skefjum með lyfjum.
„Síðasti kærastinn minn neyddi mig
til að byrja á geðlyfjum. Hann sagð-
ist hætta með mér ef ég færi ekki á
lyf,“ segir Harpa og skellir upp úr.
„Það var mjög gott hjá honum að
setja mér þessa afarkosti. Hann kom
inn í líf mitt á réttum tímapunkti og
hjálpaði mér mikið að hreinsa til í
lífi mínu.“
Harpa hafði þá nokkrum sinnum
reynt að fara á lyf en alltaf hætt fljót-
lega eftir að hún byrjaði. „Ég fékk
svo lyf sem hentuðu mér vel og þau
hafa gert mér alveg ótrúlega gott. Ég
fattaði hvað líf mitt var búið að vera
erfitt út af þessum sveiflum. Ég var
svo veruleikafirrt og upplifði hlutina
sterkari og öðruvísi en þeir voru í
raunveruleikanum. Það varð allt
ýktara og meira fyrir vikið. Ég viður-
kenni það reyndar að ég sakna þess
stundum að detta í þessar maníu. Ég
gerði oft magnaða hluti í maníu, en
líka mjög heimskulega hluti. Ég held
samt að ég muni alltaf vera á lyfjun-
um. Þau hjálpa mér að halda söns-
um, vera skipulögð og glöð. Kvíðinn
er líka farinn. Ég sé ekki eftir þessari
ákvörðun,“ segir Harpa og virðist
staðföst. Að taka lyfin hefur líka
hjálpað henni að styrkja sambönd
við fjölskyldu og vini, sem er henni
mjög dýrmætt.
Var ástfangin af ástinni
Hér áður fyrr átti Harpa það jafn-
framt til að sækja í að vera ástfangin.
Hún sóttist sífellt eftir því að vera í
samböndum og þá skipti engu hvort
þau gerðu henni gott eða ekki. „Ég
hef verið ástfangin af ástinni og hef
alltaf þurft að hafa eitthvað í gangi.
En núna, í fyrsta skipti, er ég búin
að vera lengi án alls þessa. Og ég er
mjög sátt við það. Sátt við að vera
ekki í sambandi. Mér finnst gott
að treysta bara á sjálfa mig,“ segir
Harpa og það er ljóst að henni líður
vel.
Eftir að hafa misst heimili sitt um
tíma er hún nú búin að koma sér
vel fyrir í litlu húsi í gamla bænum
í Hafnarfirði. Þar býr hún ásamt
16 ára dóttur sinni sem er að ljúka
tíunda bekk í Lækjaskóla. En 18 ára
gamall sonur hennar er að læra flug
á Keili og býr hjá ömmu sinni og afa
í Keflavík á meðan. „Börnin mín
eru bæði alveg stórkostleg. Ég skil
ekki hvernig ég fór að þessu,“ segir
Harpa og brosir. Stoltið leynir sér
ekki þegar hún talar um börnin. Að
koma þeim á legg er hennar mesta
afrek í lífinu og það tekur enginn af
henni.
til að átta sig á hvert maður er að
fara og hvað maður vill gera við líf
sitt. Ég tók þátt í mjög spennandi
listaviðburði á Seyðisfirði í febrúar
og vann á hóteli við Mývatn í mars,
og naut þess að vera með husky-
-tíkinni minni á hundasleða í nátt-
úrufegurðinni þar. Ég gaf mér tvo
mánuði í að ákveða hvort ég ætlaði
að gera aðra tilraun í tískubransan-
um eða gefa mig alla í myndlistina
og láta þennan bransa bara eiga sig
fyrir fullt og allt.“
Fyrirtækið til vinkonu
Þrátt fyrir að Harpa sé mjög sátt við
það sem hún er að gera í dag, er sú
ákvörðun að fara af stað með nýtt
vörumerki þó ekki komin til af góðu.
Árið 2014 missti hún fyrirtækið sitt,
Ziska, í hendur fjárfesta eftir að hafa
unnið að því í sex ár. Sagan á bak við
þessa atburði er mjög dapurleg enda
var um að ræða vinkonu Hörpu.
„Hún kom inn fyrirtækið sem fjár-
festir en ákvað svo að draga sig í hlé
vegna persónulegra vandamála. Ég
var þá með allt tilbúið í framleiðslu
og var komin inn í verslunina Gottu
á Laugavegi. Ziska var listamanns-
nafnið mitt og því erfitt að missa
fyrirtækið í hendur annarra. Mér
bauðst samstarf með annarri við-
skiptakonu sem framleiddi línuna
fyrir Gottu, og um leið reyndi hún
að hjálpa mér að fá merkið aftur í
mínar hendur.“
En vegna þess að framleiðslan
var sett í gang án þess að nýjum
samningi hafði verið lokað þá gerð-
ist Harpa brotleg við þann samning
sem hún hafði áður gert við vinkonu
sína. „Þannig að hún, með sína
sterku lögfræðinga, tók allan hagnað
af sölu línunnar og eignaðist í fram-
haldi af því Ziska. Þetta var afar lær-
dómsrík reynsla og kenndi mér líka
að treysta ekki öllum um leið. Ég
lærði að samningar eru samningar.
Ég reyni að láta hvatvísi mína ekki
koma mér í svona vandræði framar.“
Var rosalega dramatísk
Harpa segist reyndar hafa miklu
meiri húmor fyrir hlutunum í dag
en hún hafði áður. Líka þegar illa
gengur. Hún getur alveg hlegið að
hrakförum sínum og því sem fer
úrskeiðis. Það gerir gæfumuninn að
geta það.
„Ég var rosalega dramatísk og tók
allt aðeins of mikið inn á mig. Það
er mikið frelsi í því að geta hlegið að
sjálfum sér, yppt öxlum og haldið
áfram. Það er miklu verra að gefast
upp og játa sig sigraða heldur en að
spýta í lófana og reyna aftur,“ segir
Harpa sem hefur alltaf verið óhrædd
við að koma til dyranna eins og
hún er klædd. Hún hefur tjáð sig
opinskátt um geðhvarfasýki sem
hún glímdi við, sem og heimilisof-
beldi sem hún bjó við um tíma. Það
að hún stigi fram og segði sína sögu
veitti fleirum styrk til að gera slíkt
hið sama. Harpa er stolt af því að
hafa opnað umræðuna, en hún varð
hins vegar fyrir töluverðum fordóm-
um í kjölfarið.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Það er stórt skref að fara aftur af stað, alveg frá grunni. En fatahönnun-in er einskær ástríða hjá mér þannig ég verð að
halda áfram og gera það sem ég er
menntuð til,“ segir fatahönnuður-
inn og listakonan Harpa Einarsdótt-
ir sem er að reyna að koma undir
sig fótunum með nýtt vörumerki
– Myrka.
Með Hilton-systur á kantinum
Harpa hefur sett af stað söfnun á
Karolina Fund til að geta lagt loka-
hönd á línuna sem hún er nánast til-
búin með. Henni hefur verið boðið
að taka þátt í spennandi viðburði í
tengslum við kvikmyndahátíðina í
Cannes í næstu viku og þarf hún því
að hafa hraðar hendur við að klára
frumgerðir línunnar og útbúa kynn-
ingarefni. Harpa ljómar af tilhlökk-
un þegar hún talar um Cannes þar
sem við sitjum á notalegu kaffihúsi í
Hafnarfirði. Hún dreypir á kaffi, því
besta í bænum, að hennar sögn.
„Þetta er á vegum fyrirtækis sem
heitir Beverly Hills Haute Coutere.
Þau leigja glæsihýsi, halda veislur
og tískusýningar,“ segir Harpa. Hún
þekkir einn þeirra sem að fyrir-
tækinu standa og vill sá hinn sami
hjálpa henni við að kynna nýja vöru-
merkið. Að sjálfsögðu tekur hún því
fagnandi.
„Ég get fengið gott tengslanet
þarna og vonandi klætt einhverja
stjörnuna í Myrka. Hollywood-
-sena er kannski ekki alveg það sem
Myrka stendur fyrir, en svona fögn-
uður kitlar hégómann örlítið. Ég
hef aldrei upplifað neitt í líkingu við
þetta. Að sitja á sundlaugarbakka
með Hilton-systur á kantinum. Það
er mjög fjarlægt mínum íslenska
veruleika,“ segir Harpa og skellir
uppúr. Og það eru orð að sönnu.
Síðustu mánuðir hafa verið henni
frekar erfiðir.
Missti heimilið og bílinn
„Eftir að ég lokaði búðinni minni,
Baugar og bein, síðasta haust þá
missti ég eiginlega allt úr höndunum
á mér. Heimilið, bílinn og allt. Ég er
búin að vera á flakki um landið, eins
og sígauni, síðustu mánuði. Það er
samt gott að komast aðeins í burtu
…viðtal 2 | amk… FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016
Fólk lítur stundum á mig sem
fórnarlamb þó ég upplifi mig
ekki sem slíkt. Ég er opinská og geri
mig svolítið varnarlausa fyrir vikið.
„Ég sakna þess stundum
að detta í maníu“
Harpa Einarsdóttir, fatahönnuður og listakona, er farin að hanna undir merkinu Myrka, eftir að hafa misst fyrirtækið
sitt, Ziska, í hendur fjárfesta fyrir tveimur árum. Hún hefur sett af stað söfnun á Karolina Fund til að leggja lokahönd
á frumgerðir nýju línunnar. Næst á dagskrá er svo sýning í Cannes þar sem fína og fræga fólkið fær að sjá flíkurnar.
Lyfin gera gott Harpa er þakklát síðasta kærastanum sínum fyrir að hafa sett henni þá afarkosti að annað hvort færi hún á geðlyf eða þau hættu saman. Mynd | Rut
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir,
solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.