Fréttatíminn - 13.05.2016, Blaðsíða 59
Total
recharge frá
Biotherm
homme
Algjört orku-
skot fyrir húðina.
Létt, frískandi
og kælandi gel
sem endurnýjar
húðina og eflir
varnarkerfi henn-
ar. Gefur góðan
raka og frískar
samstundis upp á
húðina. Fyrir alla
karlmenn á öllum
aldri.
Gelshaver
frá Biotherm
homme
Frískandi rakstursgel
sem hentar einnig fyrir
viðkvæma húð. Dregur
úr bruna og ertingu og
gefur húðinni frísklega
tilfinningu og þéttleika.
Facial exfoliator frá
Biotherm homme
Kornahreinsir sem hreinsar húðina á
mildan hátt. Djúphreinsar húðina svo
hún verður bjartari og áferðarfallegri.
Notist einu sinni til tvisvar í viku með
vatni og hreinsið svo af húðinnni. Mjög
góður hreinsir til að fyrirbyggja inngró-
in hár. Hentar fyrir allar húðgerðir.
Aquapower frá
Biotherm homme
Frískandi, silkimjúkt rakakrem
sem gefur húðinni góða næringu
og þægindi sem endast allan
daginn. Húðin verður þétt, mjúk
og fersk. Mjög gott að nota eftir
rakstur. Hentar öllum húðgerðum.
Baume Aprés-rasage
frá YSL ĺ homme
Frískandi after shave sem gef-
ur húðinni góða vellíðan. Húð-
in verður mjúk og endurnærð.
Verndar húðina gegn utan-
aðkomandi áreiti og mengun.
Hentar öllum húðgerðum.
…húðin 14 | amk… FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016
Rakstur getur haft nokkra hvimleiða fylgifiska ef ekki er vandað til verks. Rauðar bólur, inngróin hár
og útbrot eru lýti sem enginn vill
skarta, hvorki á andliti eða leggj-
um. Þessi atriði er gott að hafa í
huga þegar rakvélin er brúkuð.
1. Gott er að hita húðina fyrir
rakstur. Ef þú rakar þig í sturt-
unni er gott að gera það í lokin, ef
ekki skaltu leggja heitan þvotta-
poka á svæðið í nokkrar mínútur
fyrir rakstur. Hitinn mýkir hárin og
opnar húðina, þannig að rakstur-
inn verður auðveldari og heppn-
ast betur.
2. Notaðu vel beitt rakvélarblað
og passaðu upp á að það sé ekki
orðið gamalt. Bitlaust blað getur
orsakað bæði útbrot, bólur og
skurði.
3. Gættu þess að raka alltaf í
sömu átt og hárin vaxa. Rakstur á
móti hárvexti er ein helsta ástæð-
an fyrir inngrónum hárum.
4. Til þess að koma í veg fyr-
ir rauðar bólur eftir rakstur er
gott að skrúbba svæðin sem þú
rakar reglulega með kornskrúbbi
tvisvar í viku.
5. Eftir rakstur er gott að kæla
húðina snögglega með köldu
vatni, þannig lokast húðin og
minni líkur verða á kláða og pirr-
ingi.
6. Að loknum rakstri skaltu þurrka
svæðið varlega með mjúku hand-
klæði. Gott er að nota barnapúð-
ur á húðina þegar hún er orðið
alveg þurr eða milt og lyktarlítið
húðkrem.
Vandaðu þig
við raksturinn
Rakstur getur haft nokkra
hvimleiða fylgifiska
Unnið í samstarfi við Jurtaapótekið
Í Jurtaapótekinu í Skipholti er hægt að fá mikið úrval af líf-rænum húðvörum. „Við bjóðum upp á vörur sem eru lausar
við öll auka- og rotvarnarefni og
aðstoðum hvern og einn við að
finna vörur sem henta þeirra húð-
gerð,“ segir Kolbrún Björnsdóttir
grasalæknir.
Í Jurtaapótekinu er til dæm-
is hægt að fá andlitsnæringu og
andlitsvatn fyrir mismunandi
húðgerðir, olíu til þess að hreinsa
húðina og leirmaska. „Andlitsnær-
ingin er eins og krem nema hún
er fljótandi og þú þarft að hrista
hana til þess að efnin nái að tengj-
ast. Úr verður gelkúla sem þú
berð á andlitið og þetta fer miklu
betur inn í húðina en flest önn-
ur krem. Við erum með nokkrar
tegundir af andlitsnæringunni
meðal annars fyrir blandaða og
yngri húð, fyrir rósroða, fyr-
ir þroskaða og eldri húð og svo
næringu fyrir karlmenn,“ segir
Kolbrún.
Kolbrún mælir með apríkósu-
kjarnaolíu til þess að hreinsa húð-
ina. „Þú setur smá vatn í bómull,
nokkra dropa af olíu og þrífur
andlitið. Það fer auðvitað eftir því
hvað þú ert með í andlitinu hversu
vel þarf að fara yfir það. Ef notað-
ur er farði þarf að hreinsa andlitið
tvisvar. Olían er alveg hrein og
ekki með neinum aukaefnum.“
Eftir að andlitið hefur verið
hreinsað er gott að fara yfir það
með andlitsvatni. „Við bjóðum upp
á andlitsvötn sem búin eru til úr
blómavatni og eru ekki með neinu
alkahóli eða aukaefnum. Það er
misjafnt hvaða jurtir eru í þeim,
það veltur á húðgerð og hvernig
virkni vatnið á að hafa.“
Hægt er fá ráðleggingar í Jurta-
apótekinu um hvaða vörur henta
þinni húð best.
Í Jurtaapótekinu er hægt að fá
úrval af lífrænum snyrtivörum
Vörurnar eru lausar við öll auka- og rotvarnarefni og hver og einn
getur fengið aðstoð við að finna vörur fyrir sína húðgerð
Alvöru karlmenn
hugsa um húðina
Komdu í veg fyrir inngróin hár, rauðar bólur og útbrot með þessum ráðum