Fréttatíminn - 13.05.2016, Blaðsíða 66
Light & Silky Lotion
sólarvarnir
Sterkar og góðar sólar-
varnir í formi létts krems.
Áferð kremanna er nánast
ósýnileg og silkimjúk eins
og nafnið gefur til kynna.
Varnirnar fara hratt inn í
húðina, klístrast ekki og
veita sterka og góða vörn
gegn bæði UVA og UVB
geislum sólar. Kremin eru
fáanleg í þremur styrkleik-
um, Spf 15, 20 og 30 og
þau gefa frá sér léttan og
sumarlegan ilm.
BB Cream
Það gerist nú varla klass-
ískara en að bæta góðu
bb kremi í snyrtibudduna
þegar sólin fer hækkandi.
BB kremin eru hönnuð með
það í huga að gefa húðinni
fallega áferð, meiri raka
og til að verja hana fyrir
geislum sólar. BB kremið
frá Garnier hefur fengið
fjöldann allan af viðurkenn-
ingum fyrir gæði og góða
virkni. Þetta krem hentar
öllum húðgerðum en þó
eru til sérstakar gerðir fyrir
ákveðnar tegundir af húð.
After Sun Calming
Moisturising Lotion
Eftir dag úti í sólinni er
ómissandi að veita húðinni
næringu sem róar húð-
ina einnig. Þessi milda
húðmjólk inniheldur Aloe
Vera og kaktusþykkni sem
hjálpa líkamanum að koma
jafnvægi á rakamyndun
húðarinnar eftir heitan dag.
Kremið má nota daglega
en það smitast hvorki né
klístrast, það kælir og nær-
ir húðina sem er ómissandi
fyrir alla.
Eye Make Up Remover 2 in 1
Þegar sumarið gengur í garð
er algengt að vatnsheld-
um möskurum fjölgi í snyrti-
buddunni. Þá er ómissandi að
vera með góðan vatnsheldan
augnhreinsi. Þessi inniheld-
ur olíu en hann þarf að hrista
saman fyrir notkun, setjið hann
svo í bómullarskífu og legg-
ið yfir augnalokin. Það er gott
að leyfa bómullarskífunni að
liggja aðeins á augnalokinu á
meðan hreinsirinn leysir upp
förðunarvörurnar og strjúka svo
varlega af.
The Miracle Cream
Stundum vill maður alls
ekki hafa neitt á húðinni,
bara fá raka, jafnan lit og
góða vörn. Miracle Cream
sameinar öll þessi atriði
og meira til því húðin fær
aukið líf og fallegri áferð
með hverju skiptinu sem
kremið er notað. Kremið
er litlaust en inniheldur
örfín litapigment sem eru
með léttum lit og ljóma.
Litapigmentin aðlaga sig
að litaraftinu svo það
hentar öllum.
Optical Blur 5 sec
Cream
Ein allra vinsælasta
varan frá Garnier er
hið svokallaða Blur
krem. Kremið er sett
yfir rakakrem og
hentar mjög vel sem
farðagrunnur. Eigin-
leikinn sem blur-
kremið býr yfir er að
það jafnar út ójöfnur
á yfirborði húðar-
innar svo hún verður
áferðarfallegri og
grunnurinn jafnari.
Með stöðugri notk-
un á blur kreminu
verður áferð húðar-
innar jafnari.
Dry Mist sólarvarnir
Einhverjar léttustu sólarvarnir sem völ er á. Garnier
hefur þróað þessa fisléttu formúlu svo þú finnur
varla fyrir henni á húðinni. Dry Mist úðarnir eru fá-
anlegir í Spf 10, 20 og 30. Formúlan inniheldur síu
sem tryggir stöðuga og góða vörn gegn bæði UVA
og UVB geislum. Auk þess er formúlan vatnsheld
og án alkóhóls, úðana þarf að hrista vel fyrir notk-
un og þeir gefa matta áferð.
Moisture+ Anti Dull-
ness Spf 20
Til að hrista af sér
vetraráferð húðarinnar
er tilvalið að bæta við
rakakremi í rútínuna
sem færir ljóma húðar-
innar fram á yfirborð
hennar. Þetta krem
leitast við að draga
úr dökkum, gráum,
þreytulegum tónum í
húðinni og færa henni
aukna birtu og líf. Svo
skemmir alls ekki fyrir
að kremið inniheldur
Spf 20.
…amk21 | amk… FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016